Fréttablaðið - 25.10.2012, Blaðsíða 30
KYNNING − AUGLÝSINGHillur & skápar FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa
Jensdóttir elsaj@365.is sími 512 5427 | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Auk hillukerfa býður Ísold ehf. upp á sérsmíðaðar lausnir. MYND/GVA
Ísold ehf. sérhæfir sig í hillukerf-um og verslunar innréttingum. Að sögn Kristins Gests sonar
framkvæmdastjóra hefur starfs-
fólk f yrirtækisins miðlað af
reynslu sinni og þekkingu á hillu-
kerfum og verslunarinnrétting-
um til viðskiptavina sinna síðustu
tuttugu ár.
„Við höfum lagt aðaláherslu á
innflutning og sölu á hillukerfum í
hæsta gæðaflokki frá Metal sistem
til bæði fyrirtækja, stofnana og
einstaklinga,“ segir Kristinn.
„Viðskiptavinir okkar og jafnvel
keppinautar hafa haft það á orði
að þessar hillur sé að finna víðast
hvar á landinu.
Hillurnar frá Metalsistem eru
afar auðveldar í uppsetningu, þar
sem þær eru skrúfulausar og þarf
einungis að smella þeim saman.
Þær bjóða upp á mikla burðargetu
og langa endingu.
Auk hillukerfa býður Ísold ehf.
upp á sérsmíðaðar lausnir og ýmsa
aðra vöruflokka, eins og til dæmis
stálskápa, verslunarinnréttingar,
plastkassa, brettatjakka, lyftu- og
hjólaborð og margt fleira.
Við bjóðum fyrirtækjum og ein-
staklingum upp á fría ráðgjöf og
komum með tillögur að heildar-
lausnum sem miðaðar eru við
þarfir hvers og eins.“
www.isold.is
Sterkir í hillukerfum
í yfir tuttugu ár
Fyrirtækið Ísold ehf. var stofnað árið 1992 og er starfrækt í dag í rúmgóðum
húsakynnum að Nethyl 3-3a, í Reykjavík. Þá býður fyrirtækið upp á sérsmíði.
DÚKKUHÚS ÚR HILLUM
Gamlar hillur má nýta til ýmissa hluta. Það er upplagt að nota eldri hill-
ur sem hætt er að nota og búa til úr þeim dúkkuhús fyrir yngstu börnin.
Það dugar að nota eina hillu en ef tvær eins hillur eru til á heimilinu má
tengja þær með tveimur lömum og búa til sannkallað stórhýsi.
Hver hilla myndar nýja
hæð í húsinu og ákvarðar
stærð hússins. Mesta
vinnan liggur í því að mála
veggina. Það er upplagt
að þekja veggi heimilisins
með ólíkum litum eða
veggfóðri og þá er um að
gera að leyfa hugmynda-
fluginu að njóta sín. Ein
hæðin gæti innihaldið
ljósan lit, önnur gæti haft
veggfóður úr gömlum
efnisbútum og svo má
skreyta barnaherbergin
með ýmsum dúllum.
Á hverja hæð er upplagt
að útbúa glugga, annað
hvort með því að saga
þá út (sem er meira mál)
eða einfaldlega mála þá á
vegginn. Að sama skapi er
hægt að bæta við hurðum,
málverkum, stiga og ýmsum stærri heimilistækjum á veggi hússins. Svo
heimilið standi ekki autt má fylla húsið með þeim litlu húsgögnum sem
börnin eiga úr öðrum leiktækjum og tilvalið er að virkja afa og ömmu til
að föndra fallega hluti í nýja húsið. Íbúar dúkkuhússins þurfa auðvitað
ekki að vera dúkkur. Playmobil-karlar kunna vel við sig í slíkum húsum og
allar þær litlu verur sem búa í barnaherbergjum landsins.
Bergrún Íris bjó til dúkkuhús úr hillu, sjá nánar á www.bergruniris.com.
ÍSLENSKAR HIRSLUR
Föt þarf ekki alltaf að hengja inn í skáp og þau geta verið til prýði
hangandi uppi á vegg. Þá geta sjálfar hirslurnar einnig verið til prýði
og sum herðatré ætti ekki að loka inni. Íslenskir hönnuðir hafa verið
duglegir að hanna fallegar og hentugar hirslur.