Fréttablaðið - 22.12.2012, Page 116

Fréttablaðið - 22.12.2012, Page 116
22. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 92 Jólaglögg er ómissandi hluti jólahátíðarinnar í hugum margra. Jólaglöggin er ekki aðeins jólahefð á Norður- löndunum heldur er hún einnig vinsæl í Þýskalandi og nágrannaríkjum þess og nefnist þar Glühwein. Fleiri þjóðir taka upp á því að malla glögg fyrir jólin: Í Tékklandi kallast hún svarené víno sem þýðir soðið vín. Í Ungverjalandi kallast hún forralt bor, sem einnig þýðir soðið vín, og er það oftast mallað úr ungverska rauðvíninu Egri Bikavér, kanil og negul. Glögg er drukkin í norðurhluta Ítalíu og kallast þar vin brulé, eða brennt vín. Í Lettlandi er drukkið karstvins, heitt vín, með skvettu af hinu rammsterka jurta- víni Riga Black Balsam út í. Í Moldóvu er drukkið izvar sem búið er til úr rauðvíni, svörtum pipar og hunangi. Í Póllandi er drukkið grzane wino, hitað vín, og svipar því mjög til glaggarinnar sem drukkin er í Tékklandi. Kanadabúar drekka einnig glögg sem búin er til úr rauðvíni, hlynsírópi og sterku áfengi. Jólaglöggin vermir og kætir yfi r hátíðina Jólaglöggin er ómissandi hluti jólanna. Fjöldi þjóða nýtur drykkjarins á aðventunni og yfi r jólahátíðina. „Ég hef veitt ansi mörgum ráð um vínið með jóla- matnum undanfarin ár,“ segir Dominique Plédel sem er eigandi Vínskólans og vín sérfræðingur. „Það er mjög skemmtilegt, fólk er að velta ýmsu fyrir sér í sambandi við vín og mat. Hangikjötið vefst mest fyrir fólki og hefur leitt marga á villi- götur í gegnum tíðina. Það helgast af því að marga langar í rauðvín á jólunum en sannast sagna fer rauðvín engan veginn við hangikjöt. Ég mæli sjálf með bjór með hangikjötinu. Hamborgar hryggur er líka snúinn, en þeir sem fara í hvítvín með honum verða ekki sviknir,“ segir Dominique, sem hér gefur ráð um vínin með jólamatnum. Hangikjötið leiðir marga á villigötur Dominique Plédel, eigandi Vínskólans, hefur í nógu að snúast í desember enda margir sem leita ráða hjá henni um hvaða vín fer best með jólamatnum. Hér gefur hún lesendum Fréttablaðsins góð ráð um vínin með hátíðarmatnum. Uppskrift að þýskri jólaglögg 1 flaska af þurru rauðvíni 3/4 bolli vatn 3/4 bolli sykur 1 appelsína 1 kanilstöng 10 negulnaglar Aðferð Setjið vatn, sykur, kanilstöng og negulnagla í meðalstóran pott. Hitið fram að suðu og hrærið duglega í á meðan. Þegar suðu er náð, lækkið hitann og látið malla. Skerið appelsínuna í sneiðar, stingið negulnöglum í börkinn og setjið út í pottinn. Hitið þar til blandan fer að þykkna, bætið þá við víninu og hitið við vægan hita. Passið að láta vínið ekki sjóða. HANGIKJÖT Ekkert vín á virkilega vel við hangikjöt þannig að skemmtileg upplifun verður. Mitt val er bjór, þá öl og helst rautt eins og Móri frá Ölvisholti, Dobbel Bock, eða aðrir jólabjórar sem eru lítt beiskir. Fyrir þá sem vilja endilega vín verður að velja mjúkt vín og vel þroskað, eins og Gran Reserva frá Spáni. HAMBORGARHRYGGUR Hér er valið auðveldara en athugið að meðlæti hefur mikið að segja. Pinot noir á einstaklega vel við léttreykta kjötið, t.d. Cono Sur Vision frá Chile eða Marques de Casa Concha, eða þroskuð vín frá Búrgund. Gran reserva er góður kostur líka. Ekki gleyma að hvít- vín á einnig vel við, þá Pinot Gris Réserve frá Alsace. KALKÚN Margt er hægt að velja með kalkún og meðlætin líka áhrifamikil: pinot noir, merlot-vín, en líka cabernet sauvignon frá Californíu, Chianti frá Toskana, rauðvín frá Sikiley (nero d‘Avola). Malbec frá Argentínu er góður kostur líka. ÖND Villiönd eða aliönd? Bragðmikil vín en ekki of þétt: Bordeau, Côtes du Rhône, spænsk vín frá Valencia-héraði (Cast- ano) eða Katalóníu (Perelada, Raimat, dýrari Torres-vín)– margt kemur til greina. Canard à l‘Organce (með appelsínu): Leita til Ribera del Duero, crianza. HREINDÝR Eðalkjöt þýðir eðalvín: Hér dugar ein regla, vínið sem ykkur finnst best mun vera besta vínið. En það má alveg benda á flott Bordeaux-vín, reserva frá Rioja, Ribera del Duero, Chianti Classico Reserva, kröftugri vín ef kjötið er af tarfi. Ekki hika við að velja dýr vín, það er jú einu sinni á ári. RJÚPA Ef rjúpan er matreidd „eins og mamma gerði“ þá er gott að leita í syrah-þrúgu (frekar en shiraz frá Ástralíu), hvort sem hún er frá Rhône- dalnum í Frakklandi og í dýrara kantinum, Gigondas, Hermitage eða jafnvel Côte Rôtie, eða frá Síle, tvö flott syrah-vín frá Vina Maipo og Morandé. Að ógleymdum betri vínunum frá Montes. Ef rjúpan er steikt á pönnu má hafa mildari vín, eins og Petit Mars frá Mas de Soleilla eða Côtes du Rhône. HUMAR Oft hefur verið sagt að „með humri klikkar Chablis aldrei“– og það er satt! Góð chardonnay-vín (og dýrari), lítt eikuð, dálítið þroskuð– frá Burgúnd (Meursault o.fl.) eða Norður-Ítalíu (Terlan). Þétt og þurr riesling-vín frá Alsace eða hvítvín frá Sikiley, nógu er úr að velja en ekki spara of mikið. DOMINIQUE PLÉDEL Gefur góð ráð um vínin með jólamatnum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hafdís og Klemmi eru sniðugir krakkar sem snúa hversdags- legum atburðum upp í ævintýri! Þau velta ýmsu fyrir sér. Af hverju að standa við gefin loforð? Geta góðverk lýst öðrum veginn? Brúður og syngjandi börn koma einnig við sögu ásamt Tinnu táknmálsálfi. Fæst í verslunum víða um land. Nú er Létt Bylgjan jólastöðin þín Ljúf og þægileg jólatónlist alla daga til jóla
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.