Fréttablaðið - 28.12.2012, Page 35
Be a Man var opnuð í brottfararverslun Fríhafn-
arinnar 21. desember síðastliðinn. Verslunin er
sérstaklega ætluð körlum og fékk enskt nafn þar
sem hún er starfrækt á alþjóðlegum flugvelli.
„Verslunin er einstök að mörgu leyti. Í fyrsta
sinn er öllum snyrtivörum fyrir karla komið
fyrir á einum stað í umhverfi sérhönnuðu fyrir
karla. Þarna geta konur auðvitað verslað líka,
eins og karlar gera í verslunum með vörur fyrir
konur, en hugmyndin er að fólk þurfi ekki að
fara um allt verslunarrými okkar til þess að
leita að snyrtivörum fyrir karlmenn,“ segir Ásta
Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri Frí hafnarinnar.
„Það eru kynningar á öllum vöruflokkum hjá
okkur allan ársins hring. Nýbreytnin er að karl-
menn geta nú skoðað snyrtivörur á meðan
þeir smakka á þeim tegundum sem verið er að
kynna hverju sinni. Þjónustan er sú sama og
verið hefur, en í breyttu, bættu og skemmtilegu
umhverfi.“
Hún segir margt standa upp úr á árinu. „Það
hefur nánast verið ævintýralegt fyrir margra
hluta sakir og meginskýringin sú mikla far-
þegaaukning sem varð á árinu. Þá skiptir
sköpum í rekstri sem þessum að vera með
gott vöruúrval á réttu verði. Við berum okkur
stöðugt saman við samkeppnisaðila okkar,
sem fyrst og fremst eru flugvellir erlendis og
auðvitað í sumum tilvikum verslanir í erlendum
borgum. Það sem við höfum þó hér á landi
og er án efa okkar helsta samkeppnisforskot
er starfsfólkið. Ég þori nánast að fullyrða að
þjónustan og þekkingin á þeim vörum sem við
bjóðum upp á sé meiri hér en á nágrannaflug-
völlum okkar.“
En það eru ekki einungis nýjar verslanir sem
setja svip sinn á reksturinn. Vörufram boðið í
Fríhöfninni hefur stóraukist að undanförnu og
nú má finna mikið af vörum í flestum vöru-
flokkum sem finnast hvergi annars staðar hér
á landi. „Eins leynast gullmolar innan um, eins
og til dæmis í rauðvínum sem eru á svo hag-
stæðu verði að starfsmenn framleiðenda er-
lendis kaupa það í miklu magni þegar þeir eiga
leið um hjá okkur. Það verður að teljast gott,“
segir Ásta Dís. Hún segir verðlagið í heildina
afar hagstætt og að stöðugar verðkannanir
haldi fólki við efnið.
„Við heyrum ekki lengur kvartanir vegna
verðlags á sælgæti, að það sé dýrara í Fríhöfn-
inni en í ónefndum matvöruverslunum, enda
höfum við lagt allt kapp á að vera afar sam-
keppnishæf hvað það varðar. Aðrir vöru flokkar
hjá okkur eru þekktir fyrir lægra verðlag en
gengur og gerist og við fáum oft á dag dæmi
um það hversu hagstætt verðlagið sé orðið hjá
okkur miðað við nágrannaflugvelli.“
Ásta Dís segir starfsfólk Fríhafnarinnar
horfa fullt eftirvæntingar til nýs árs og hlakka
til að takast á við þær áskoranir sem á vegi
þeirra verða. „Við hjá Fríhöfninni óskum lands-
mönnum öllum gleðilegrar hátíðar.“
ALLT FYRIR KARLMENN Á EINUM STAÐ
Óhætt er að segja að árið 2012 hafi verið eitt besta rekstrarár í sögu Fríhafnarinnar. Í upphafi ársins var opnuð fyrsta Victoria´s Secret
verslunin á Íslandi, og reyndar á öllum Norðurlöndunum, sem býður fyrst og fremst vörur fyrir konur og nú fyrir skemmstu var Be a Man
opnuð, en hún er sérstök eðalverslun fyrir karlmenn.
Ralph Lauren ilmir í úrvali.
Það er breitt vöruval í hverri línu.
Meðal vörumerkja má nefna Ralph Lauren, Hugo Boss og Armani.
Þjónustan er sú sama en umhverfið er breytt, bætt og skemmtilegt.
Karlmenn geta nú skoðað snyrtivörur á meðan þeir smakka á þeim
tegundum sem verið er að kynna hverju sinni.
Í versluninni má finna allar snyrtivörur fyrir karla á einum stað.
Ásta Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, segir árið hafa
verið ævintýralegt enda var ferðamannaaukningin mikil.
AUGLÝSING – FRÍHÖFNIN KYNNIR
Sjá nánar á visir.is/lifid