Fréttablaðið - 28.12.2012, Qupperneq 41
7FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2012
Árni Hauksson/Hallbjörn Karlsson, fjárfestar • Ása Katrín Hólm Bjarnadóttir, formaður Leiðtoga Auðar og ráðgjafi hjá Capacent • Friðrik
Guðjónsson, framkvæmdastjóri Keldunnar • Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania • Gísli Hauksson, framkvæmdastjóri Gamma • Herdís
Dröfn Fjeldsted, fjárfestingastjóri hjá Framtakssjóði Íslands • Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Datamarket • Hulda
Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnurekstri • Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kjölfestu • Magnús Þorlákur Lúðvíks-
son, blaðamaður á Fréttablaðinu • Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff og formaður Samtaka verslunar og þjónustu • Páll
Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar á Íslandi • Svana Gunnarsdóttir, sérfræðingur fjárfestinga hjá Frumtaki • Svana Helen Björnsdóttir,
forstjóri Stika og formaður Samtaka iðnaðarins • Valdimar Halldórsson, aðstoðarmaður atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra • Vilhjálmur
Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta og dósent við HÍ • Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnunar og reksturs hjá HR •
Þórður Snær Júlíusson, umsjónarmaður Markaðarins.
Í dómnefnd Markaðarins sátu:
SALAN Á 60 PRÓSENTA HLUT Í TM
SALA SLITASTJÓRNAR LANDSBANKANS Á VERSLUNARKEÐJUNNI
ICELAND FOODS GROUP
ÁFRAMHALDANDI ÚTRÁS CCP OG SKULDABRÉFAÚTGÁFA „Með ríkulegri
umframeftirspurn og traustri fjármögnun á framtíðaráformum félagsins.“
KAUP ERLENDRA AÐILA Á SKULDABRÉFUM FÖLLNU BANKANNA
„Ótrúlega góð ávöxtun, þrátt fyrir að hún hafi aðeins dalað í lok árs þegar
umræða um þetta fór loksins af stað.“
SALAN Á ICELANDIC USA TIL HIGHLINER FOODS
ÚTBOÐ OG SKRÁNING VODAFONE
SÖLUSAMNINGUR MARELS VIÐ FISKFRAMLEIÐANDA Í NORÐAUSTUR-
HLUTA KÍNA
ÚTGÁFA OG SALA RÍKISSJÓÐS Á SKULDABRÉFUM Í BANDARÍKJADÖLUM
Á ERLENDUM MÖRKUÐUM „Góður áfangi en illa nýttur til frekari sóknar.“
KAUP WOW AIR Á ICELAND EXPRESS „Aðdragandinn var spennuþrunginn.“
SKRÁNING HAGA Á MARKAÐ
VEL HEPPNAÐAR SKRÁNINGAR Í KAUPHÖLLINNI
SALAN Á NIKITA „Var selt til erlendra fjárfesta á alvöru verði. Menn fá alltaf
„respect fyrir exit“.“
KAUP TÍTAN Í SKÝRR
NÝTING Á GJALDEYRISÚTBOÐUM SEÐLABANKA ÍSLANDS „Aðilar sem komu
fé út úr landinu fyrir hrun geta komið með það til baka og fengið tugprósenta
afslátt á því sem þeir kaupa hér í boði Seðlabankans. Ótrúlega góður díll.“
ANNAÐ SEM VAR NEFNT
Kári er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum á öllu milli himins og
jarðar. Hann segist vera einn af þessum mönnum sem eiga mjög auðvelt með
að gagnrýna en geta kannski ekki boðið upp á tillögur til úrbóta. Það er þó ljóst
að hann hefur sterkar skoðanir á þjóðmálum og sýn á hvað gæti hjálpað til við
að gera líf okkar bærilegra. „Ég held að við séum tiltölulega dugleg þjóð sem
hefur búið hér á þessari eyju, þar sem engin manneskja ætti að hafa lengi vel
lifað af, í 1.100 ár. Ég held að við þurfum að finna einhverja leið út úr þeirri krísu
sem við erum í í dag. Krísu sem er sjálfskaparvíti. Þetta er vissulega flókið og ég
held að það sé mjög erfitt að vera í stjórnmálum þessa dagana og að þau séu
svolítið mannskemmandi.
Ég held samt að við þurfum á betri pólitískri leiðsögn að halda. Öll pólitíkin
á Íslandi, og nú er ég ekki að benda fingri á neinn ákveðinn stjórnmálaflokk, er,
held ég, allt saman drasl. Það er kominn tími til að henda þessu og byrja upp á
nýtt.“
Enginn mun bera okkur á herðum sér
Kári segir sjálfskaparvítið felast í því að við séum ekki að búa til nein ný verð-
mæti. „ Við erum enn að draga fisk úr sjó og bræða báxít sem flutt er hingað yfir
hálfan hnöttinn. Af þessu lifum við. Mér finnst við ekki hafa verið mjög skapandi
við að finna nýjar leiðir til að búa til verðmæti. Það skiptir til dæmis voðalega litlu
máli hvort við förum inn í Evrópusambandið eða ekki. Það sem skiptir mestu
máli er að við búum til meiri verðmæti en við notum. Hvernig við ætlum að
framfleyta okkur. Það gerir enginn fyrir okkur og það mun enginn bera okkur á
herðum sér.“
Kári bendir til dæmis á að Íslendingar flytji inn meirihluta þess grænmetis sem
þeir neyta frá löndum sem rækta það í gróðurhúsum. „ Hvað þarftu til að rækta
slíkt í gróðurhúsum? Þú þarft ódýra orku, sem við eigum. Sama með gagnaverin
sem áttu að byggjast upp hérna. Það gerðist aldrei vegna þess að það átti að
selja orkuna á svo háu verði. Í stað þess að nota orkuna til að draga að hinar
ýmsu atvinnugreinar hefur verið reynt að nota hana til að fá voðalega mikið fyrir
hana. Ég held að það sé geysilega mikil skammsýni sem felst í því og ég held að
við tökum ekki þetta vandamál nógu alvarlega.“
Þurfum að skilja kjarnann frá hisminu
„Til að eiga nokkur möguleika á því að byggja upp verðmæti verður að vera
raunverulegt innihald að baki. Það þýðir ekki að standa upp, berja sér á brjóst og
segja að við séum flinkastir í upplýsingatækni, að við séum svo rosalega flinkir
tónlistarmenn og að við séum með svo rosalega flottan ferðaiðnað. Það verður
að vera eitthvað að baki, annað en það að vera ánægð með okkur sjálf. Ég held
að við sem þjóð eigum möguleika til verðmætasköpunar á mörgum sviðum. En
við verðum að búa til kerfi sem skilur kjarnann frá hisminu.“
ÍSLENSKIR STJÓRNMÁLAMENN ERU DRASL
Kári er með róttækar hugmyndir um hvernig Ísland getur náð sér aftur á
gott efnahagslegt ról. Hann vill sekta gömlu bankana fyrir það sem þeir
gerðu íslensku samfélagi. „Ef við horfum til dæmis á það þegar borpallur
BP hrundi undan ströndum Bandaríkjanna fyrir nokkru, og olían olli allri
þessari mengun, þá var BP sektað um 4,5 milljarða dala [um 560 milljarða
króna].
Það þótti alveg sjálfsagt og það kvartaði enginn yfir því, ekki einu
sinni BP. Nú fara þrír bankar á hausinn hér á Íslandi og valda gífur legum
skemmdum í íslensku samfélagi. Það er flest sem bendir til þess að það
megi rekja einhvern þátt af þessum örlögum bankanna í að þeir hafi hagað
sér óskynsamlega, óvarlega og jafnvel ólöglega. Hvernig stendur á því að
við sektum ekki bankana? Hvers vegna erum við að greiða milljarða dala til
erlendra vogunarsjóða sem keyptu kröfur á fimm sent á dalinn?
Það væri í samræmi við hefð í alþjóðasamfélaginu að sekta bankana
og myndi auka virðingu okkar þar. Ef Alþingi setti lög um þetta þá myndi
það vinna aftur þá virðingu sem það glataði í hruninu í íslensku samfélagi.
Þetta yrði bara forgangskrafa í þrotabúið og algjörlega sjálfsögð sem slík.
Á þann hátt væri hægt að greiða niður skuldir ríkisins og snúa í gang
efnahagslífinu, sem hefur verið að hökta.“
VILL SEKTA BANKANAember. Ef þarna hefði verð fagmaður að verki þá hefði
hann vitað að ástæða þess að ég
gæti ekki talað við hann væri
sú að við vorum í þessu þagnar-
tímabili sem er alltaf til staðar
þegar svona viðskipti eiga sér
stað. Þegar það var síðan búið
að greina frá viðskiptunum þá
hélt sami blaðamaður áfram að
skrifa um að við hefðum verið
komnir að fótum fram og lýsir
sölunni eins og einhvers konar
nauðungarsölu. Mér fannst það
spaugilegt. Við vorum alls ekki
komnir að fótum fram. Fyrir-
tæki eins og Íslensk erfðagrein-
ing, sem er að byggja upp verð-
mæti í hugverkum, er ekki með
mikið tekjustreymi árum saman
til að byrja með. Það sem skiptir
máli er styrkur þeirra bakhjarla
sem þú hefur. Við vorum með
geysisterka fjárhagslega bak-
hjarla sem voru reiðubúnir að
styðja við bakið á okkur miklu
lengur ef með þurfti.“
Hagnaður skiptir ekki máli
Við kaupin verður ÍE eining
innan stórrar samstæðu. Spurð-
ur hvort það skipti þá ekki máli
hvort ÍE skili hagnaði eftir
kaupin svarar Kári því játandi.
„Einingin verður ekki notuð
sem slík. Okkar hlutverk verð-
ur að halda áfram að gera upp-
götvanir í erfðafræði sem nýt-
ast annars staðar innan Amgen
til tekju öflunar. Þeir sjá því
arðsemismöguleika í því að
hafa getuna til að gera þessar
uppgötvanir sem við erum að
gera og taka síðan það sem út
úr þeim kemur inn í sína lyfja-
gerð og búa til verðmæti. Fyrir
það borga þeir þessa háu fjár-
hæð. Við erum orðin nokkurs
konar verndaður vinnu staður og
verðum með miklu meira fé en
áður til að fjárfesta í til raunum
til að varpa ljósi á algengustu
sjúkdóma mannsins. Við fáum
að líta á erfðamengi mannsins
til að reyna að skilja af hverju
hann verður til, hvað hann gerir
og reyna að skilja hvaða örlög
bíða hans. Það eru forréttindi.“
Meðalörlög líftæknifyrirtækis
Kári segir örlög ÍE, að vera
keypt af stóru lyfjafyrirtæki,
mjög algeng örlög líftæknifyr-
irtækja. „Það tekur svona fyrir-
tæki að meðaltali um 15-20 ár að
skila hagnaði. Endanlegt mark-
mið er alltaf að búa til lyf eða
greiningartæki og þá er hægt
að hafa tekjur af þessu. Feyki-
lega fá líftæknifyrirtæki ná að
verða lyfjafyrirtæki og mjög
stór hundraðshluti þeirra er
keyptur á einhverjum tíma.
Það er í sjálfu sér ekkert
óeðlilegt. Það er fyrst og fremst
fjármögnunarvandi sem blasir
við þessum fyrirtækjum. Að
mörgu leyti hefur líftækni-
iðnaðurinn þjónað því hlutverki
að undirbúa verkefni fyrir stóru
lyfjafyrirtækin. Þau hafa mjög
gjarnan keypt verkefni af þess-
um litlu fyrirtækjum eða keypt
bara fyrirtækin sjálf. Okkar
örlög eru því að mörgu leyti
meðalörlög svona fyrirtækja.“
Starfsemin á Íslandi tryggð
Kaup Amgen tryggja starfsemi
ÍE að minnsta kosti um nokk-
urra ára skeið. Að sögn Kára
auka kaupin einnig möguleika
á að auka umfang starfsem-
innar sem nú er innt af hendi
og býður upp á að ráðast í ný
verkefni. „Amgen væri ekki að
kaupa fyrirtækið á 52 milljarða
króna til að loka því. Starfsemin
er því tryggð að minnsta kosti
um fimm ára skeið. Mér finnst
þetta spennandi staða til að vera
í. Ég er fyrst og fremst vísinda-
maður og hef lengi beðið eftir
því að fá að einbeita mér að því
starfi í stað þess að róa til að
halda þessu á floti.
Hinar jákvæðu fréttirnar
við þessi kaup eru þær að það
kemur inn til landsins mjög stór
aðili og er reiðubúinn til að fjár-
festa í vinnu af þessari gerð.
Það bendir til þess að það eru
ekki allir hræddir við að fjár-
festa hér. Þetta er fyrsta stóra
fjárfestingin inn í Ísland frá
hruni. Það vekur alltaf þá mögu-
leika á að það megi finna fleiri
af þessari gerð.“
Við fáum að líta á
erfðamengi
mannsins til að reyna að
skilja af hverju hann verður
til, hvað hann gerir og
reyna að skilja hvaða örlög
bíða hans.
BETRI STJÓRNMÁL
„Öll pólitíkin á Íslandi,
og nú er ég ekki að
benda fingri á neinn
ákveðinn stjórn-
málaflokk, er, held
ég, allt saman drasl.
Það er kominn tími
til að henda þessu
og byrja upp á nýtt,“
segir Kári Stefánsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA