Fréttablaðið - 28.12.2012, Blaðsíða 46
Netfang auglýsingadeildar
auglys ing ar@markadurinn.is
Veffang visir.is
Netfang
rit stjorn@markadurinn.is
Sími 512 5000 Fax 512 5301
Viðtal við
Kára Stefánsson
Viðtal við Björn
Þór Sigbjörnsson
Hin
ÞÓRÐUR SNÆR
JÚLÍUSSON
hliðin
Á þessum stað fyrir einu ári voru
Íslendingar boðnir velkomnir í bóluna.
Þar var því haldið fram að þar sem
nóg væri til af peningum á Íslandi,
læstum inni í gjaldeyrishöftum, sem
þrá að leita í betri ávöxtun yrði eftir-
spurn eftir fjárfestingum meiri en
framboðið. Orðrétt sagði að „afleið-
ingin er sú að þrýstingur sem skapast
vegna skorts á fjárfestingatækifærum
hækkar einn og sér virði eignanna.
Undirliggjandi verðmæti þeirra hættir
að skipta máli“.
Óhætt er að fullyrða að þetta hafi
orðið raunin. Á hlutabréfamarkaði
hafa til að mynda öll nýskráð félög,
og þau sem hafa ráðist í umtalsverðar
hlutafjáraukningar, hækkað gríðar-
lega. Gengi bréfa í Icelandair hefur
hækkað um 230 prósent. Hagar,
sem var skráð á markað í desember
í fyrra, hefur hækkað um 67 prósent.
Fasteignafélagið Reginn, sem skráð
var á markað í júlí, um 33 prósent.
Bréf í Eimskip, sem voru tekin til við-
skipta í síðasta mánuði, hafa þegar
hækkað um 10,6 prósent.
Fasteignaverð hækkar
Af umræðunni um nauðsyn skulda-
niðurfellinga og leiðréttingar á for-
sendubresti á fasteignamarkaði mætti
ráða að fáir ef einhverjir af yngri kyn-
slóð Íslendinga hefðu ráð og rúm til
að kaupa sér fasteign. Samt sem áður
hefur vísitala íbúðaverðs á höfuð-
borgarsvæðinu, sem sýnir breytingar
á vegnu meðaltali fermetraverðs,
hækkað um 6,3 prósent á einu ári.
Kaupsamningum á fasteignamarkaði
á sama svæði hefur fjölgað um 18,5
prósent frá því í fyrra og velta aukist
um 33,6 prósent á sama tímabili. Vísi-
tala leiguverðs hefur hækkað um 7,8
prósent frá því í nóvember 2011. Allar
hagspár virðast sammála um að fram
undan sé umtalsverð raunaukning á
virði fasteigna næstu misserin.
Höftin fest í sessi
Skuldabréf á gömlu íslensku
bankanna virðast líka vera orðin
hin prýðilegasta fjárfesting við þær
aðstæður sem búið er að sníða þeim.
Í lok síðasta sumars hafði hluti þeirra
hækkað um 20 prósent á árinu. Þegar
sú upphæð er sett í samhengi við
þær þúsundir milljarða króna sem
eru í þrotabúum bankanna er ljóst að
um gríðarlega upphæð er að ræða.
Handbremsan sem sett hefur verið
á gagnvart nauðasamningum þeirra
á undanförnum vikum og mánuðum
og umræða um eigendur skulda-
bréfanna í fjölmiðlum hefur orðið til
þess að gengi skuldabréfanna hefur
lækkað. Það hefur samt sem áður
hækkað um tíu prósent á árinu 2012.
Búast má við því að háar upphæðir
muni sitja eftir hér innan hafta um
ófyrirséða framtíð. Þær upphæðir
munu óumflýjanlega leita í innlenda
ávöxtun.
Og höftin eru ekkert að fara. Nú
virðist enda hafa myndast þverpólitísk
sátt um að þau verði við lýði um
óákveðinn tíma. Að þau verði opin
í annan endann. Samtímis festist
bólan, sem blásið var kröftuglega í á
árinu 2012, rækilega í sessi.
Ári síðar
NÝTT
UPPGÖTVAÐU NÝJAN BRAGÐHEIM SENSEO