Fréttablaðið - 29.12.2012, Page 14
29. desember 2012 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 14
Þriðja dag jóla birtist í leiðaraopnu
Fréttablaðsins grein Árna Richards
Árnasonar um málsmeðferð land-
læknis á kvörtun hans til embættis-
ins árið 2009. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem Árni ber skoðanir sínar á
borð fyrir landsmenn og efni henn-
ar því flestum kunnugt. Eðli máls-
ins samkvæmt getur landlæknir
ekki fjallað efnislega um kvörtun
Árna þar sem mál hans er enn í
skoðun. Aftur á móti er í framhaldi
greinar Árna Richards full ástæða
til að lýsa fyrir lesendum máls-
meðferð kvartana hjá Embætti
landlæknis.
Samkvæmt 12. grein laga um
landlækni og lýðheilsu er heim-
ilt „að beina formlegri kvörtun til
landlæknis vegna meintrar van-
rækslu og mistaka við veitingu
heilbrigðisþjónustu. Þá er notend-
um heilbrigðisþjónustunnar jafn-
framt heimilt að bera fram form-
lega kvörtun til landlæknis telji
þeir að framkoma heilbrigðisstarfs-
manna við veitingu heilbrigðisþjón-
ustu hafi verið ótilhlýðileg. Kvörtun
skal vera skrifleg og þar skal koma
skýrt fram hvert sé tilefni hennar.“
Þverfaglegt teymi
Þegar kvörtun berst Embætti land-
læknis fer hún fyrir þver faglegt
teymi heilbrigðisstarfsmanna
og lögfræðinga sem greinir efni
kvörtunar innar og að hverjum hún
beinist, heilbrigðis starfsmanni,
einum eða fleiri, eða stofnun.
Kvartanda er send staðfesting á
að kvörtun hans sé móttekin og
úrvinnsla hennar fari í skilgreint
ferli. Kvörtunin er síðan send þeim
sem hún beinist að og hann beð-
inn um að gera grein fyrir máls-
atvikum og sínum sjónarmiðum.
Aflað er allra nauðsynlegra gagna
er varða málið. Umsögn óháðs sér-
fræðings um efni kvörtunarinnar
og málavexti er mikilvægur hluti
hinnar faglegu úrvinnslu. Hún er
eftir því sem við á rituð af sérfræð-
ingum sem starfa við embættið eða
leitað er til sérfræðinga utan þess.
Ætíð er metið hæfi þeirra sem fá
málið til faglegrar úrvinnslu sam-
kvæmt ákvæðum laga um stjórn-
sýslu. Þegar sérfræðingar hafa
komist að niðurstöðu og skilað
umsögnum eru þær sendar bæði til
kvartanda og þess sem kvörtunin
beinist að þannig að þeir hafi tök á
að koma andmælum á framfæri telji
þeir þörf á. Þau rök sem fram koma
í andmælunum eru tekin til skoð-
unar og metið hvort þau hafi áhrif
á álit landlæknis, sem hann ritar að
lokinni málsmeðferð. Álitið er sent
til allra aðila. Samkvæmt lögum
geta þeir kært málsmeðferð emb-
ættisins til velferðar ráðuneytisins
en ekki hina efnislegu niðurstöðu
embættisins í málinu. Starfsfólk
embættisins vinnur úr kvörtunar-
málum ítarlega og faglega með
lögfræðilegri ráðgjöf um rétta og
sanngjarna málsmeðferð.
Óvíst um fullkomna sátt
Það er augljóst að óvíst er að full-
komin sátt verði um niðurstöðu
jafn flókinnar málsmeðferðar og
hér er lýst. Málsaðili getur einatt
fundið hjá sér ástæðu til að vera
ósáttur við niðurstöðuna, hvort sem
hann er heilbrigðis starfsmaður
sem kvartað er undan eða sá sem
kvartar. Í þessu samhengi vill land-
læknir leggja áherslu á að starfs-
menn embættisins og þeir sér-
fræðingar sem embættið leitar til
leggja sig alla fram um að vinna
heiðarlega og af trúmennsku við
úrvinnslu allra kvartana. Aftur
á móti er mikil hætta á að æ erf-
iðara verði að fá sérfræðinga hér
á landi til að taka að sér að gefa
álit á flóknum læknisfræðilegum
úrlausnarefnum ef þeir eiga von
á að fá yfir sig ásakanir á borð
við þær sem Árni Richard hefur í
frammi í Fréttablaðinu nú 27. des-
ember.
Landlæknir kveinkar sér ekki
undan málefnalegri umræðu um
störf embættisins. Uppbyggi-
leg gagnrýni getur stutt viðleitni
starfsmanna til að gera gott starf
betra. Ásakanir um gróf mann-
réttindabrot af hálfu embættisins
dæma sig aftur á móti sjálfar. Þær
endurspegla þó eðli þeirra flóknu
viðfangsefna sem starfsmenn emb-
ættisins og álitsgjafar þess eru að
glíma við á hverjum degi. Land-
læknir fullvissar landsmenn um
að í þeirri vinnu hefur hann, starfs-
menn embættisins og álitsgjafar
þess það eitt að leiðarljósi að vinna
af trúmennsku og heiðarleika í
samræmi við lögbundið hlutverk
embættisins, í þágu lands og þjóðar.
Meðferð kvörtunarmála
HEILBRIGÐISMÁL
Geir
Gunnlaugsson
landlæknir
Anna Björg
Aradóttir
sviðsstjóri Sviðs
eft irlits og gæða,
Embætti land-
læknis
➜ Samkvæmt lögum geta
þeir kært málsmeðferð
embættisins til velferðar-
ráðuneytisins en ekki
hina efnislegu niðurstöðu
embættisins í málinu.
Klipptu út
ávísunina og
m
æ
ttu á næ
sta sölustað
Ef þú kaupir fyrir 20.000 kr. þá færðu næstu 5.000 kr. frítt með því að framvísa þessari ávísun
5.000,-
Gildir áramótin 2012-2013 Alvöru Flugeldar
Elvis hefði fílað þessa!
REYKJAVÍK
KÓPAVOGUR
Suðurlandsbraut 48 ( bláu húsin við hliðina á Subway) Einar 899-6005
Stórhöfði v/Gullinbrú Rúnar 660-0565
Bæjarlind 16 (verslunin Persía) Jóhann & Ragnar 690-7424
Nýbílavegur 10 (við hliðina á gamla Toyota) Jóhann & Ragnar 690-7424
Lækjagata 2 (áður videoleiga) Emil 694-4150 & Guðni 618-0560HAFNARFJÖRÐUR
(við Eimskip)Vitinn, Oddeyrarbryggju 696 6042AKUREYRI
„Í grænubaunadósinni var
bara rauðkál en við áttum
nóg af rauðkáli.“
Fjölskylda Sigurgeirs Finnssonar hló dátt
þegar dós af grænum baunum, sem opnuð
var á aðfangadagskvöld, reyndist innihalda
rauðkál í stað bauna.
„Þegar hann var að koma
sér inn í handboltahreyfing-
arnar þá var lengra í land en
hann gat sætt sig við.“
Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari útskýrði
hvers vegna Ólafur Stefánsson hefði hætt
við að hætta við að hætta í landsliðinu í
handbolta.
„Maður á ekki að geta
hlaupið í gegnum girðingu í
öryggisfangelsi.“
Páll Winkel skrifar ekki upp á að það hafi
verið mannlegum mistökum að kenna að
Matthías Máni Erlingsson hafi strokið af
Litla-Hrauni.
ORÐ VIKUNNAR
22.12.2012 ➜ 28.12.2012
UMMÆLI VIKUNNAR