Fréttablaðið - 29.12.2012, Page 35

Fréttablaðið - 29.12.2012, Page 35
KYNNING − AUGLÝSING Líkamsrækt29. DESEMBER 2012 LAUGARDAGUR 3 Linda Björk Hilmarsdóttir hóf störf hjá líkamsræktar-stöðinni Hress í Hafnarfirði fyrir 25 árum. Í dag er hún eigandi hennar ásamt manni sínum, Jóni Þórðarsyni. „Ég fékk vinnu hérna þegar ég var tvítug og bauðst svo seinna að kaupa stöðina. Þetta er búið að vera alveg frábært, en að sjálfsögðu hefur þetta stundum tekið á,“ segir Linda um upplifun sína af rekstrinum. Dalshraun og Ásvellir Í fyrstu var aðeins ein Hress- líkamsræktarstöð í Hafnarfirði en í dag eru þær tvær; önnur í Dals- hrauni og hin á Ásvöllum. „Hafn- firðingar hafa verið afar duglegir að æfa hjá okkur. Svo reis alveg ný byggð í Hafnarfirði upp úr 2000 og í kjölfarið var sundlaugin á Ás- völlum opnuð. Við opnuðum seinni stöðina þar árið 2008. Í húsinu eru einnig starfandi sjúkraþjálfun- in Ásmegin sem við erum í sam- starfi við. Þá nýtum við líka sund- laugina og útivistarsvæðin í kring, auk þess sem aðgangur að sund- lauginni fylgir með korti í Hress.“ Hóptímar vinsælir Linda segir að hjá Hress hafi löngum verið mikið lagt upp úr hóptímum, sem notið hafi mikilla vinsælda. „Ætli við séum ekki með um 20 mismunandi hóptíma í boði þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Bæði þeir sem vilja rólegri tíma með lágstemmdri tónlist og þeir sem vilja meiri læti, hraða og púl. Við leggjum metnað okkar í að vera alltaf með það nýjasta sem er að gerast í heilsuræktar heiminum. Enda erum við með allt frá Sund- lauga-Zumba, Krossþjálfun og Hot-yoga í boði og erum að bæta við nýjungum í janúar eins og Foam-Flex og Byggjum og brenn- um.“ Les Mills-æfingakerfi Hress-stöðvarnar nýta sér Les Mills-æfingakerfi sem er frá Nýja-Sjálandi. „Kennararnir okkar þurfa að fara í gegnum erfið og ströng námskeið til að geta kennt þá tíma. Reglulega, eða á þriggja mánaða fresti, fáum við svo send handrit að tímum frá þeim; æfingar, tónlist, mynd- bönd og fleira. Sem dæmi um Les Mills-tíma eru BodyPump, Body- Balance, BodyVive og fleiri. Allar æfingar eru yfirfarnar og álags- mældar af læknum og sjúkraþjálf- urum. Þetta er virkilega vandað og öruggt kerfi sem gerir miklar kröfur um öryggi og árangur.“ Heitast í vetur Spurð um hvað sé heitast í vetur segir Linda heimskreppuna lita áhuga fólks á líkamsrækt. „Það sést til dæmis á því hve mikið er sótt aftur til fortíðar og í æfing- ar sem krefjast ekki dýrra tækja, þar sem aðeins er notast við eigin líkamsþyngd eða örfá lóð. Ég er til dæmis að kenna Warm-fit tíma þar sem ég nota æfingar frá Jane Fonda. Þar er verið að taka mikinn fjölda vöðva fyrir í einu. Annað sem hefur verið að sækja í sig veðrið eru hjólatímarnir og ég spái því að pallatímar eigi eftir að komi sterkir inn.“ Námskeið Á nýju ári fer Hress af stað með ný námskeið en hinn 7. janúar hefjast kynjaskipt átaks námskeið. „Þessi námskeið eru mjög sniðug til að hefja heilsuræktina, enda góð kynning og fræðsla sem er frábært veganesti út í heilsu- ræktarheiminn.“ Sama dag fara af stað mjög krefjandi og skemmti- leg Brazil buttlift-námskeið sem slegið hafa í gegn. Hinn 14. janú- ar hefjast síðan kynjaskipt nám- skeið fyrir krakka á aldrinum tólf til fimmtán ára. „Þar kynnast þau öllu því helsta sem við erum að gera í Hress.“ Fríðindi Með því að kaupa kort í Hress fæst aðgangur að tækjasal heilsuræktar- stöðvanna tveggja í Hafnarfirði auk fjölda hóptíma. Frítt er í sund- laugina í Áslandi og aðgangur að líkamsræktarstöðvum í Vest- mannaeyjum og Akureyri fylgir. Þá er boðið upp á barnagæslu í Dals- hrauni. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.hress.is eða á Facebook-síðu Hress. Hressandi heilsurækt í Hafnarfirði Linda Hilmarsdóttir hóf störf hjá líkamsræktarstöðinni Hress í Hafnarfirði fyrir 25 árum. Seinna bauðst henni að kaupa stöðina, sem hún gerði. Í dag eru stöðvarnar orðnar tvær og leiðin liggur upp á við. Með því að kaupa kort í Hress fæst aðgangur að tækjasal heilsuræktarstöðvarinnar við Dalshraun og Ásvelli og fjölda hóptíma, auk þess sem frítt er í sundlaugina við Ásvelli. Með því að kaupa kort í Hress fæst aðgangur að sundlauginni í Áslandi og tækjasal heilsuræktarstöðvanna tveggja í Hafnarfirði auk fjölda hóptíma. MYND/ VILHELM Linda fékk vinnu hjá Hress þegar hún var tvítug. Seinna bauðst henni að kaupa stöðina, sem hún gerði. „Þetta er búið að vera alveg frábært, en að sjálfsögðu hefur það líka stundum tekið á,“ segir Linda.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.