Fréttablaðið - 29.12.2012, Qupperneq 50
29. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 34
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
24
Hvað skyldi nú árið 2013 bera í skauti sér fyrir Konráð og
félaga? Ætli þau muni komast í gegnum allar þrautir ársins?
En þú, kemst þú í gegnum þetta völundarhús ársins?
2013
2012
Thea Snæfríður Kristjánsdóttir
á afmæli 1. janúar, sem skýrir
afmælissönginn á nýársnótt.
Hún hlakkar mikið til afmælis-
ins og ætlar að halda veislu fyrir
vinkonur sínar og fjölskyldu.
Hún fagnar áramótunum með
fjölskyldunni, sem skálar síðan
bæði fyrir nýju ári og afmælis-
degi Theu á miðnætti. Og henni
finnst ekkert verra þótt hún sé
dálítið þreytt á afmælisdaginn.
Hvernig er gamlárskvöld hjá
þér, Thea? Á gamlárskvöld
fæ ég að vera með stjörnu-
ljós og gera alls konar mynst-
ur. Ég horfi á áramótaskaupið
og líka á flugeldana. Ég fæ líka
oft galdrastafi og borða mikið
nammi.
Hefur þú gaman af flugeldum?
Já. En mér finnst lætin í þeim
stundum ærandi.
Er afmælissöngurinn sunginn
á miðnætti á áramótunum? Já,
og mér er óskað til hamingju
með afmælið.
Hvernig heldur þú upp á
afmælið þitt? Fyrst býð ég
vinkonum mínum og bekkjar-
systrum í partý, svo held ég
fjölskylduboð seinna um dag-
inn. Í partýinu sem ég held fyrir
vinkonur mínar förum við í leiki
og borðum góðan mat. Síðan er
dansað í kringum jólatréð. Við
förum líka í ratleik og finnum
nammipoka fyrir alla gestina.
Ætlar þú að strengja áramóta-
heit? Ég er ekki búin að ákveða
hvort ég geri það í ár.
Hvað finnst þér skemmtilegast
við að eiga afmæli fyrsta dag
ársins? Það er svo gaman að allir
eru í fríi þegar maður á afmæli.
Svo er gaman að ef ég hef óskað
mér einhvers í jólagjöf sem ég
fæ ekki á jólunum þá fæ ég það
kannski í afmælisgjöf.
En hvernig er það, Thea, ertu
ekki dálítið syfjuð stundum á
afmælinu þínu þegar þú hefur
vakað lengi fram eftir kvöldið
áður? Það breytir engu, því það
er svo gaman að eiga afmæli.
Afmælissöngurinn
sunginn á miðnætti
Thea Snæfríður Kristjánsdóttir er sjö ára. Hún verður þó bráðlega átta
ára, en það gerist um leið og nýja árið gengur í garð.
Á AFMÆLI FYRSTA DAG ÁRSINS Thea Snæfríður Kristjánsdóttir fagnar áramótunum með fjölskyldunni, sem skálar bæði fyrir
nýju ári og afmælisdegi Theu á miðnætti.
Það er svo gaman að allir eru í fríi þegar maður
á afmæli. Svo er gaman að ef ég hef óskað mér
einhvers í jólagjöf sem ég fæ ekki á jólunum þá
fæ ég það kannski í afmælisgjöf.
1. Af hverju rignir aldrei samfellt tvo daga í röð hér á Íslandi?
2. Hver eru þau fjögur mannanöfn sem þú sérð út um gluggann?
3. Ég dreg yfir mig skýlu svo þið þekkið mig ekki. Hver er ég?
4. Ég er karlmaður og heiti það sem fátækur er. Hvert er nafn mitt?
5. Hvað getur alltaf svarað þér, og það á öllum tungumálum?
6. Hvenær er hægt að bera vatn í gatasigti?
SVÖR
1. Af því það er nótt á milli. 2. Loftur, Stígur, Steinn og Máni. 3. Gátan 4.
Eiríkur. 5. Bergmálið. 6. Þegar það er frosið.
Það voru vinkon-
urnar Anna Lilja
8 ára og Eik 7 ára
sem búa í Kópa-
vogi og Hrafn-
hildur Klara 5
ára, systir Eikar,
sem teiknuðu
þessar fallegu
myndir.
Heilabrot
Á Vísi er hægt að horfa
myndskreyttan upplest
úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
á
ur
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928
í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað.
Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna hollenska meistarans
G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.