Fréttablaðið - 29.12.2012, Side 72
29. desember 2012 LAUGARDAGUR| SPORT | 56SPORT
ÚRSLIT
FÍ DEILDARBIKAR KVENNA
VALUR– FRAM 24-28 (10-12)
Mörk Vals(skot): Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 6
(8), Dagný Skúladóttir 5/1 (7/1), Íris Ásta Péturs-
dóttir 3 (7), Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 3 (8/1),
Karólína Bæhrenz Lárudóttir 2 (3), Ragnhildur
Rósa Guðmundsdóttir 2/1 (5/1), Þorgerður Anna
Atladóttir 2 (9), Rebekka Rut Skúladóttir 1 (1),
Varin skot: Jenný Ásmundsdóttir 18 (46/4, 39%).
Mörk Fram (skot): Elísabet Gunnarsdóttir 8/4
(8/4), Ásta Birna Gunnarsdóttir 8 (11), Birna Berg
Haraldsdóttir 4 (11), Stella Sigurðardóttir 3 (12),
Sunna Jónsdóttir 2 (3), Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2
(4), Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 1 (3),
Varin skot: Guðrún Bjartmarz 15/1 (39/3, 38%).
ÆFINGALANDSLEIKUR
ÍSLAND– TÚNIS 33-26 (19-9)
Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson 7/4
(7/4), Aron Pálmarsson 5 (5), Vignir Svavarsson
4 (4), Ásgeir Örn Hallgrímsson 4 (6), Ólafur
Guðmundsson 3 (3), Þórir Ólafsson 3 (4), Arnór
Þór Gunnarsson 3 (4), Stefán Rafn Sigurmannsson
1 (1), Róbert Gunnarsson 1 (1), Ernir Hrafn
Arnarson 1 (1), Snorri Steinn Guðjónsson 1 (3),
Ólafur Bjarki Ragnarsson (1),
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 11 (29/1,
38%), Daníel Freyr Andrésson 3 (11, 27%),
Hraðaupphlaup: 12 (Ásgeir Örn 3, Vignir 3,
Guðjón Valur 2, Arnór 2, Aron, Þórir)
Mörk Túnis (skot): Mahmoud Gharbi 6 (7), Amine
Bannour 6/1 (9/1), Mohamed Jilani Maaref 5 (6),
Selim Hedoui 2 (2), Kamel Alouini 2 (4), Issam
Tej 1 (1), Oussama Hosni 1 (1), Wael Jallouz 1 (2),
Mosbah Sanai 1 (3), Abdelhak Ben Salah 1 (4).
Varin skot: Wassim Helal 4 (23/4, 17%),
Mohamed Sfar 3 (17, 18%).
ÍÞRÓTTIR Íþróttamaður ársins
verður útnefndur í 57. sinn í
kvöld. Enginn meðal þeirra tíu
efstu í kjöri Samtaka íþrótta-
fréttamanna hefur verið kosinn
Íþróttamaður ársins og það er því
þegar ljóst að 38. íþróttamaður-
inn bætist í frábæran hóp þeirra
sem hafa hlotið þann heiður að
vera kosinn Íþróttamaður ársins
þegar kjörinu verður lýst í Gull-
hömrum í Grafarholti. Hófið er
með óhefðbundnu sniði þetta árið
vegna aldarafmælis ÍSÍ.
Við það tilefni verður brotið
blað í sögu kjörs íþróttamanns
ársins. Í fyrsta sinn verða lið árs-
ins og þjálfari ársins verðlaunuð
af Samtökum íþróttafréttamanna
og verður það framvegis gert
árlega, samhliða kjöri íþrótta-
manns ársins.
Sjö íþróttagreinar eiga fulltrúa
meðal þeirra tíu efstu að þessu
sinni. Hér fyrir neðan má sjá
hvaða íþróttamenn eru á topp tíu
listanum í ár. - óój
TOPP TÍU LISTINN 2012
Alfreð Finnbogason knattspyrna
Aron Pálmarsson handbolti
Auðunn Jónsson kraftlyftingar
Ásdís Hjálmsdóttir frjálsar íþróttir
Ásgeir Sigurgeirsson skotfimi
Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrna
Íris Mist Magnúsdóttir fimleikar
Jón Margeir Sverrisson íþróttir fatlaðra
Kári Steinn Karlsson frjálsar íþróttir
Þóra Björg Helgadóttir knattspyrna
Íþróttamaður
ársins krýndur
HEIÐAR HELGUSON Íþróttamaður
ársins í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/HJÖRTUR
HANDBOLTI Íslenska karla-
landsliðið í handbolta hóf loka-
undirbúning sinn fyrir HM á
Spáni með sannfærandi sjö marka
sigri á Túnis, 33-26, í Laugardals-
höllinni í gærkvöldi eftir að hafa
náð mest fjórtán marka forskoti
í seinni hálfleiknum. Íslenski
hópur inn hefur mátt þola þung
högg á síðustu vikum og lykil-
menn hafa helst úr lestinni en það
var ekki að sjá að íslenska liðið
saknaði þeirra mikið í gær.
Aron Kristjánsson leyfði öllum
að spreyta sig og liðið var að fá
flott framlag frá mörgum mönn-
um í þessum leik. Túnis er reynd-
ar ekki lið sem er líklegt til afreka
á HM á Spáni en strákarnir sýndu
með þessari frammistöðu að liðið
ætlar ekki að láta áföll síðustu
vikna draga úr sér kjarkinn fyrir
átökin framundan.
„Þetta var fínt, við spilum lengi
vel af miklum krafti og þetta var
nokkuð öruggt og þægilegt allan
tímann. Við náðum fjórtán marka
forystu þar sem vörnin var að
virka vel. Sóknarleikurinn var
óaðfinnanlegur í fyrri hálfleikn-
um en hikstaði á stórum köfl-
um í seinni. Strákarnir slökuðu
aðeins á í vörninni eftir að við
vorum komnir með svona mikið
forskot. Við hrærðum líka í liðinu
og ákváðum að nýta tækifærið til
þess að skoða menn,“ sagði Aron í
sjónvarpsviðtali eftir leik.
Það voru mörg augu á Ásgeiri
Erni Hallgrímssyni og hann gaf
tóninn með því að skora tvö fyrstu
mörkin. Túnisbúar nýttu fyrstu
sóknir sínar en svo fór íslenska
vörnin í gang.
Íslenska liðið skoraði meðal
annars níu mörk í röð og breytti
stöðunni úr 6-5 í 15-5 og eftir það
var orðið nokkuð ljóst hvernig
leikurinn myndi fara. Íslenska
liðið var síðan tíu mörkum yfir í
hálfleik, 19-9. Íslenska liðið náði
fjórtán marka forystu í seinni
hálfleik en Túnisbúar náðu
að laga stöðuna aðeins á loka-
kaflanum.
Liðin mætast aftur í Laugar-
dalshöllinni klukkan 13.30 í dag
og er það síðasti heimaleikur
íslenska liðsins fyrir HM á Spáni.
ooj@frettabladid.is
Strákarnir líta vel út
Íslenska handboltalandsliðið átti ekki í miklum vandræðum með slakt Túnislið í
Höllinni í gær. Áföll síðustu vikna hafa ekki dregið kjarkinn úr strákunum okkar.
KLIKKAÐI EKKI Á SKOTI Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska liðsins, skorar hér eitt marka sinna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Framkonur eru deild-
arbikarmeistarar kvenna í hand-
bolta 2012 eftir fjögurra marka
sigur á Íslands- og bikarmeist-
urum Vals í gær, 28-24. Valsliðið
virkaði þreytt eftir framlengdan
leik í gærkvöldi gegn Stjörnunni á
meðan Fram vann leik sinn gegn
ÍBV nokkuð auðveldlega.
Valsliðið byrjaði leikinn betur
og komst í 3-1 en eftir það tóku
Framarar undirtökin og litu aldrei
til baka eftir það.
„Það var rosalega gaman að ná
loksins sigri og titli í Safamýrina,
það er kominn tími til,“ sagði Ásta
Birna Gunnarsdóttir, leikmaður
Fram, eftir leikinn.
„Það var kominn tími á annan lit
en silfur um hálsinn, mér fannst
við vera sterkari í dag allan
tímann í dag, þetta var mjög flott-
ur sigur, við vorum ákveðnari og
spiluðum kraftmeiri vörn. Þrátt
fyrir að þær spiluðu 80 mínútur
í gær voru þær að keyra hraða-
upphlaupin allt fram á síðustu
mínútu. Það var kominn tími á að
við sýndum hvað í okkur býr og
þetta fleytir vonandi meira sjálfs-
trausti í liðið fyrir erfiða dagskrá
sem bíður okkur eftir áramót,“
sagði Ásta.
„Við kunnum varla að tapa en
við áttum ekki skilið að vinna
í dag, Við áttum varla skilið að
spila þennan leik miðað við þessa
frammistöðu,“ sagði Valskonan
Dagný Skúladóttir. Valsliðið átti
möguleika að vinna sinn fimmta
titil á árinu 2012 með sigri.
- kpt
Framkonur stöðvuðu
sigurgöngu Vals
Valskonur náðu ekki fi mmta titlinum á árinu 2012.
BIKAR Í SAFAMÝRINA Framkonurnar Sigurbjörg Jóhannsdóttir og Ásta Birna
Gunnars dóttir lyfta hér bikarnum eftir sigurinn á Val í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í BEINNI UM HELGINA
LAUGARDAGUR
12.45 Sunderland - Tottenham
Sport 2 & HD
15.00 Man. United - West Brom
Sport 2 & HD
Norwich - Man. City Sport 3
Reading - West Ham Sport 4
Aston Villa - Wigan Sport 5
Stoke - Southampton Sport 6
17.30 Arsenal - Newcastle
Sport 2 & HD
SUNNUDAGUR
13.30 Everton - Chelsea
Sport 2 & HD
16.00 QPR - Liverpool
Sport 2 & HD
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
LE
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
2
4
1
9
1
2
/1
2
Gildir út janúar.
Lægra
verð
í Lyfju
20% afsláttur af Nicorette QuickMist munnholsúða 15% afsláttur af ölluNicorette fruitmint
Ungbarnasund
Námskeiðið hefst 5. febrúar nk. í Árbæjarlaug.
Sunddeild Ármanns
Barnasund
Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára
hefst laugardaginn 15. janúar nk.
í Árbæjarskóla
Innritun virka daga frá kl. 17:00 og um helgar frá kl. 13:00
í síma 557-6618 (Stella) og Eygló í síma 866-0122
i ið hefst 1 s ptember 2012 í Árbæjarlaug.
Innritun virka daga frá kl. 17.00 og um helgar frá kl. 13.00
í síma 557-6618 Stella, stella.gunnars@gmail.com
stella.gunnarsdottir@reykjavik.is
Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára
hefst laugardaginn 15. september nk.
í Árb jarskóla.
6 r r 2013 í Árbæjarlaug.
ll . il.
ll . i j i .i
s i fyrir r j - r
f t l r i 9. janúar nk.
r j r l .