Fréttablaðið - 30.01.2013, Síða 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Miðvikudagur
14
NÝIR STAÐIRStærstu lággjaldaflugfélögin í Evrópu,
Ryanair, Easyjet og Norwegian, eru sífellt að
bæta við sig nýjum áfangastöðum. Þeir sem
ætla að fara á nýjar slóðir í sumar ættu að skoða
heimasíður þessara félaga því ódýrustu sætin
fást oft með löngum fyrirvara.
É g varð alveg heillaður af kletta- og ísklifri eftir ferðina á Mont Blanc. Fljótlega fór ég að draga fólk með mér í þetta og þar á meðal Arnar Jónsson og Óðin Árnason. Við stofnuðum svo síðuna Climbing.is þar sem við setjum inn ýmislegt tengt ferðum okkar,“ segir Guðmundur.Ís- og klettaklifur er ekki eitthvað sem maður hendir sér út í á einum degi. Það krefst æfingar, þekkingar og reynslu. „Fljótlega keypti ég mér ísklifuraxir eftir Mont Blanc-ferðina. Við félagarnir fórum á tvö ísklifurnám-skeið hjá Alpaklúbbnum og erum svo búnir að lesa okkur helling til. Svo erum við bara búnir að vera duglegir að æfa okkur.“ Spurður um áhættuna sem fylgir klifrinu segir Guðmundur að hann hafi ekki dottið neitt alvarlega. „Ef maður gerir hlutina rétt og gætir að örygginu þá er þetta nokkuð öruggt. Klifur byggir líka á mikilli samvinnu og maður þarf að treysta félögunum. Ef það er ekki til staðar þá geturðu bara verið heima.“
Climbing.is er hugarsmíð þeirra félaga og eru þeir mjög ánægðir með
útkomuna. Þar er að finna ferðasögur,
myndir, pistla, fróðleik um klifur og vandað útivistarkort með upplýsing-
um um útivistarsvæði
Á TOPPI TILVERUNNARMEÐ BAKTERÍU Guðmundur Jónsson fékk útivistar- og klifurbakteríu árið
2005 eftir að honum var boðið í ferð á Mont Blanc. Hann heldur úti útivistar-
síðunni Climbing.is ásamt félögum sínum.
TÆKIFÆRISGJAFIR
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
www.tk.is
- mikið af frábærum tilboðum
OPERA
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerískgæðavara
Amerískgæðavara
Vertu vinurGóð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.mistyskor.is
Vandaðir, þýskir, herrakuldaskór úr leðri,
ullarfóðraðir. Góður sóli
Teg: 456703
Stærðir: 42 - 47
Verð: 24.500.-
Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10-18.Laugardag 10-14.
ÚTFARIRMIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2013
Kynningarblað
Útfararþjónusta,
blómaskreytingar,
legsteinar, útfararsiðir og
stuðningur í sorg.
Fjölsk ld f i k
Útfararþjónustan hefur látið hanna og smíða íslenskar kistur úr íslenskum viði í samstarfi við Þorstein B. Jónmundsson. „Hlýja, auðmýkt og virðing er það leiðarljós sem við fylgjum alltaf,“ segir Rúnar Geirmundsson útfararstjóri sem hér sést ásamt syni
sínum Elís við líkbílana þeirra tvo.
MYND/STEFÁN
2 SÉRBLÖÐ
Útfarir | Fólk
Sími: 512 5000
30. janúar 2013
25. tölublað 13. árgangur
Karlaflensan er víst til
Ólík virkni heila kynjanna leiðir til
þess að karlar verða veikari en konur
af ýmiss konar umgangspestum. 2
Skattarnir hækka lánin Skatt-
kerfisbreytingar hafa hækkað
íbúðalán landans um 21 milljarð. 4
Óttast að laxeldi hindri siglingar
Heimamenn í Fjarðabyggð óttast
að fjöldi sjókvía á Reyðarfirði loki á
siglingaleiðir fyrir olíuleitarskip. 6
Pólitískt Pandórubox Icesave-mál-
ið hefur skekið íslenska pólitík. Sagan
sýnir að stjórnarflokkar hafa verið
fylgjandi samningum en stjórnarand-
staðan á móti. 12
SPORT Ólafur Stefánsson snýr aftur
til Íslands í sumar og tekur þá við
þjálfun Vals. 30
SÉRVERKEFNI
www.iss.is
• Hreingerningar
• Iðnaðarþrif
• Bónvinna
• Parkethreinsun
• Steinteppaþrif
•
ALLT AÐ 75% AFSLÁTTUR
Sjá allt úrvalið á ht.is SUÐURLANDSBRAUT 26 - SÍMI 569 1500
BÍLTÆKIMP3 SPILARAR ÚTVÖRPFERÐATÆKI MAGNARAR
BÍLMAGNARAR ÞRÁÐLAUSIR SÍMAR
MEIRA EN 1000 VÖRUTEGUNDIR MEÐ ÓTRÚLEGUM AFSLÆTTI
MENNING Heimildarmyndin Hvellur
eftir Grím Hákonarson fær fjórar
stjörnur. 26
MENNING „Hingað til hef ég ein-
beitt mér alfarið að herrafatnaði
svo þetta er svolítið nýtt fyrir
mér. En ég er mjög spenntur fyrir
þessu,“ segir
Guðmundur Jör-
undsson, sem
frumsýnir fyrstu
dömulínu sína á
Reykjavík Fash-
ion Festival.
Guðmundur
hannar bæði
undir eigin nafni
og fyrir Herra-
fataverslun Kor-
máks og Skjaldar. Hann stefnir á
að opna eigin búð við Laugaveg.
Stílisti Chris Brown óskaði
eftir fötum frá Kormáki og Skildi
í haust en notaði þau ekki. Guð-
mundur segist feginn að söngvar-
inn hafi ekki farið í fötin hans.
- sm / sjá síðu 34
Færir út kvíarnar:
Hannar líka
fyrir dömurnar
GUÐMUNDUR
JÖRUNDSSON
SKOÐUN Bullið tröllríður hverjum
krók og kima íslenskrar umræðu,
skrifar Sif Sigmarsdóttir. 15
Bolungarvík 0° NA 8
Akureyri -1° NA 5
Egilsstaðir 0° NNA 7
Kirkjubæjarkl. 1° NA 3
Reykjavík 3° A 7
Lægir Í dag eru horfur á strekkingi á
annesjum NV-til og SA-til en vindur
verður hægari inn til landsins. Búast má
við stöku éljum norðan- og austantil 4
FJÖRUTÍU Í EINANGRUN Guðrún Ellen Halldórsdóttir, hjúkrunarfræðingur á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi, býr sig
undir að sinna sjúklingi í einangrun. Hátt í 40 sjúklingar hafa verið í einangrun síðustu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VESTFIRÐIR Íbúar á Vestfjörðum
eru orðnir langþreyttir vegna
langvarandi rafmagnsleysis og
-skömmtunar undanfarin miss-
eri. Rafmagnslaust var víða á
norðanverðum Vestfjörðum í gær
vegna skemmda á flutningslín-
um í Breiðadal, norður frá Mjólk-
árvirkjun í Arnarfirði. Er þetta
í annað sinn á stuttum tíma sem
Vestfirðingar glíma við rafmagns-
truflanir sem raska meðal annars
rekstri fyrirtækja.
Á fundi sínum í fyrrakvöld skor-
aði bæjarráð Ísafjarðarbæjar á
stjórnvöld, Landsnet og Orkubú
Vestfjarða (OV) að hraða uppbygg-
ingu varaaflstöðvar í Bolungarvík
og styrkja kerfi svæðisins til að
koma í veg fyrir langvarandi raf-
magnsleysi. Ljóst væri að afhend-
ingaröryggi raforku á svæðinu
væri með öllu óviðunandi og það
væri orðin regla frekar en undan-
tekning að tenging norðanverðra
Vestfjarða við dreifikerfi dytti út
þegar eitthvað væri að veðri.
Guðmundur Ingi Ásmunds-
son, aðstoðarforstjóri Landsnets,
játar að hinir ýmsu annmarkar í
rafveitukerfinu geri afhending-
aröryggi minna á Vestfjörðum en
annars staðar. Varðandi áskorun
bæjarráðs segir hann lítið hægt
að gera annað en að halda fram-
kvæmdum áfram. „Við getum ein-
faldlega ekki hraðað þeim þar sem
þær eru á fullri fart,“ segir hann.
Gert er ráð fyrir að aflstöðin kom-
ist í gagnið næsta haust og nemur
kostnaður hundruðum milljóna.
Kristján Haraldsson, orkubús-
stjóri OV, tekur undir orð Guð-
mundar og segir afhendingarör-
yggi ábótavant, þó svo það hafi
farið batnandi síðustu ár. „Það er
mjög langt síðan við höfum lent í
svona langvarandi ástandi, en það
stafar af því hversu alvarleg línu-
bilunin er núna,“ segir hann.
Guðni Einarsson, framkvæmda-
stjóri fiskvinnslufyrirtækisins
Klofnings á Suðureyri, segir raf-
magnsskammtanirnar orsaka eitt-
hvert framleiðslutap hjá fyrirtæk-
inu, en lítið annað sé hægt að gera
en að laga sig að aðstæðum. „Auð-
vitað er þetta ekki viðunandi,“
segir Guðni.
Einar Valur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri hraðfrystihúss-
ins Gunnvarar í Hnífsdal, segir
Landsnet og OV hafa staðið sig
mun betur nú en um jólin varð-
andi upplýsingaflæði, meðal ann-
ars með fjöldaskilaboðum í síma.
Bilanirnar hafi haft vond áhrif á
tölvukerfi Gunnvarar og annan
tæknibúnað en framleiðslan hafi
náð að halda sér að mestu.
Varaaflstöðvar voru notað-
ar víða í gær og var rafmagn
skammtað á Þingeyri, Flateyri,
Ísafirði, Hnífsdal og Bolungarvík
þar til viðgerð á Breiðdalslínu lauk
síðdegis. - sv / þj
Reglan að rafmagnið fari
Vestfirðingar langþreyttir á rafmagnstruflunum sem fylgja vondum veðrum. Bæjarráð Ísafjarðar skorar á Lands-
net og OV að flýta framkvæmdum við varaaflstöð. Óviðunandi ástand, segir framkvæmdastjóri fiskvinnslu.
Guðmundur Ingi hjá Landsneti bendir á að verði af framkvæmdum við
göng úr Dýrafirði undir Hrafnseyrarheiði muni Landsnet leggja þar línur
í jörð í gegnum göngin. „Þá tökum við af þennan slæma kafla sem fer
yfir heiðina og það mun bæta afhendingaröryggið til muna,“ segir hann.
Hrafnseyrarheiði er helsti vegartálminn milli norðanverðra og sunnan-
verðra Vestfjarða og lokast iðulega yfir vetrartímann.
Göng undir heiðina bæti ástandið
HEILBRIGÐISMÁL Farið er yfir biðlista vegna
aðgerða og lyfjameðferða daglega á Landspítalan-
um til að velja úr fólk sem getur ekki beðið lengur.
Dregið hefur úr allri slíkri valstarfsemi á spítalan-
um eftir að óvissustigi var lýst yfir að nýju í gær
vegna plássleysis og flensu. Sjúklingum á biðlist-
um er forgangsraðað til að tryggja öryggi þeirra.
Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar, segir sjúklinga, aðstandendur og
starfsfólk sýna ástandinu skilning. „Fólk tekur
því ótrúlega vel að þurfa að bíða,“ segir hún. „Við
köllum veikustu sjúklingana inn af biðlistum, en
því sem má bíða er ýtt aftar.“
Sjúkrarýmum á spítalanum hefur verið fjölg-
að til að bregðast við ástandinu og nauðsynlegt
var að útvega aukadýnur í sjúkrarúmin sem til
voru. Fjölgunin hefur verið á kostnað dagdeildar-
plássa, en einnig hefur rúmum verið komið fyrir
í setustofum, vinnuherbergjum og á göngum.
Allt starfsfólk spítalans hefur verið beðið um að
aðstoða frekar við vinnuna með því að taka á sig
aukavaktir. - sv
Þurftu að fá fleiri dýnur til að geta bætt við sjúkrarúmum á Landspítalanum:
Velja daglega veikasta fólkið