Fréttablaðið - 30.01.2013, Side 20

Fréttablaðið - 30.01.2013, Side 20
FÓLK|FERÐIR FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Íslensk matargerð og matarmenning er ein af vannýttum auðlindum í ís-lenskri ferðaþjónustu að mati Jóns Baldurs Þorbjörnssonar, eins eiganda Ísafold Travel, sem um fjögurra ára skeið hefur unnið að markaðssetningu landsins sem áfangastaðar fyrir matar- áhugamenn. „Þegar kemur að íslensk- um mat búum við að bestu hráefnum sem við getum fengið. Við höfum úrvals hráefni frá norðlægum slóðum og kunn- um að vinna það. Auk þess er mikið af vannýttum mat í náttúrunni sem nútímamaðurinn þekkir lítið í dag, til dæmis sveppir, fjallagrös og þörungar.“ Það er þó ekki eingöngu hráefnið sem ferðamönnum finnst spennandi, segir Jón. „Flestum finnst mest spennandi að reyna fyrir sér, að útvega matinn og taka þátt í eldun hans.“ Í lok síðasta árs bauð Ísafold Travel nokkrum erlendum blaðamönnum í kynningarferð til landsins. „Hópur- inn var mjög hrifinn af því sem í boði var hér á landi, til dæmis hvernig við nýttum berin, sveppina, fjallagrösin og skelfiskinn. Margs af þessum mat er ekki hægt að neyta með sama hætti erlendis vegna mengunar. Síðan búum við svo vel að eiga marga matreiðslu- menn sem kunna að nýta matinn úr náttúrunni. Þetta er fólk sem er bundið náttúrunni í tengslum við mat og opnar marga möguleika. Sannkallaðir boðber- ar nýrra tíma sem nota það sem er til í náttúrunni auk þess að rækta eitt og annað.“ Jón segir mikil tækifæri vera til staðar hérlendis þegar kemur að þessum þætti ferðamennskunnar en það taki alla nýbreytni tíma að festa sig í sessi. „Við erum ekki dæmigert land sem er þekkt fyrir matarmenningu erlendis en það er engin ástæða til að vera með minnimáttarkennd í þeim efnum. Við trúum því að matur eigi erindi við alla. Í raun á allur vestrænn matarmenningar- heimur erindi hingað en við tökum bara eitt skref í einu. Nú hafa birst greinar í þekktum þýskum blöðum sem vakið hafa athygli á okkur. Þetta mun opna augu útlendinga sem hafa aldrei hugsað um Ísland sem matarmenningarland.“ starri@365.is ÍSLENSK MATARGERÐ FREISTAR FERÐAMANNA MATARMENNING Náttúran hefur lengi verið helsta aðdráttarafl erlendra ferðamanna hérlendis. Nú er íslensk matargerð farin að vekja athygli. ÚRVALS HRÁEFNI „Þegar kemur að íslenskum mat búum við að bestu hráefnum sem við getum fengið,“ segir Jón Baldur Þorbjörnsson, einn eigenda Ísafold Travel. MYNDIR ÚR EINKASAFNI JEPPAFERÐ Konurnar skemmtu sér vel í jeppaferð en síðan var snætt á veit- ingahúsi á eftir. FJÖR Í FERÐUM Jón Baldur tekur í gítarinn í einni ferðinni. M yn d í b ak gr un ni : © E in ar G uð m an n na rG uð m an n Fyrir árshátíðina Fleiri myndir á Facebook 50 % afsláttur í dag af síðkjólum og völdum stuttum kjólum Ath. aðeins í dag Skipholti 29b • S. 551 0770 NÝ SENDING! AF VINSÆLU KULDASKÓNUM MEÐ MANNBRODDUNUM FYRI R DÖ MUR OG H ERRA Verð :24.0 00.- Útvarpsþátturinn Snorri með Orra - frá hádegi alla virka daga

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.