Fréttablaðið - 30.01.2013, Side 27

Fréttablaðið - 30.01.2013, Side 27
KYNNING − AUGLÝSING Útfarir30. JANÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR 7 Graníthöllin býður upp á fjölbreytt úrval fallegra legsteina. „Markmið okkar er að vera með falleg- ustu legsteina landsins og leggj- um við okkur fram við að bjóða vandaða vöru á viðráðanlegu verði,“ segir eigandinn, Heið- ar Steinsson, sem hefur margra ára reynslu af vinnu við leg- steina og meðhöndlun á graníti. „Við bjóðum upp á gríðarlega mikið úrval og erum með yfir hundrað gerðir og liti í verslun- inni auk þess sem hægt er að sérpanta steina ef þess er óskað. Við erum bæði með einfalda og klassíska steina og einnig steina með miklum útskurði. Það ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“ Steinarnir eru allir úr há- gæða granítsteini sem Heið- ar segir þola íslenska veðráttu mjög vel. Hann segir að í vöxt hafi færst að fólk vilji hafa alls kyns fylgihluti við legstein- inn eins og luktir og blóma- vasa. Graníthöllin býður upp á gömlu koparluktirnar sem hafa notið vinsælda undanfarna ára- tugi en einnig granítluktir og vasa í stíl við legsteininn sem er nýjung hér á landi. „Fólki hefur líkað þessi nýjung vel, enda eru þetta stílhreinir og fallegir hlutir. Kosturinn er að luktirn- ar eru afar sterkbyggðar og það sér ekkert á þeim með árunum ólíkt koparnum,“ segir Heiðar. Þá tekur Graníthöllin að sér viðgerðir og viðhald á legstein- um. „Það borgar sig að gera við hættulega legsteina sem eru við það að falla á hliðina en það hafa orðið mörg slys víðs vegar um heiminn af þeirra völdum,“ segir Heiðar. „Ef börn príla utan í slíkum steinum og þeir falla á hliðina getur það haft slæm- ar afleiðingar. Við viljum koma í veg fyrir slíkt og bendum fólki á að hafa samband ef legsteinar eru farnir að halla en við lögum það fyrir sanngjarnt verð. Þá bjóðum við upp á þá þjónustu að bæta við nöfnum á legsteina, hreinsa og endurmála stafi.“ Graníthöllin er til húsa að Bæjarhrauni 26 í Hafnarfirði, á móti Fjarðarkaupum, en fyrir- tækið þjónustar allt landið. „Við erum í fallegu húsnæði. Þar er gott aðgengi og við tökum vel á móti öllum,“ segir Heiðar. Nán- ari upplýsingar er að finna á www.granithollin.is. Graníthöllin býður upp á vandaða granítlegsteina í miklu úrvali Hjá Graníthöllinni er markmiðið að bjóða fallegustu legsteina landsins. Úrvalið er ríkulegt og er bæði hægt að velja um einfalda steina og steina með miklum útskurði. Þá eru ýmsir fylgihlutir á boðstólum auk þess sem boðið er upp á viðgerðir og viðhald. Granítlugtir og vasar í stíl við legsteininn er nýjung sem hefur verið vel tekið. Graníthöllin er til húsa að Bæjarhrauni 26 í Hafnarfirði. Þar er gott aðgengi og tekið vel á móti fólki. Hægt er að velja um yfir hundrað gerðir steina og liti auk þess sem hægt er að sérpanta sé þess óskað. Steinarnir eru allir úr hágæða graníti og þola íslenska veðráttu afar vel. Heiðar hefur margra ára reynslu af vinnu við legsteina og meðhöndlun á graníti. MYND/GVA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.