Fréttablaðið - 30.01.2013, Síða 27
KYNNING − AUGLÝSING Útfarir30. JANÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR 7
Graníthöllin býður upp á fjölbreytt úrval fallegra legsteina. „Markmið
okkar er að vera með falleg-
ustu legsteina landsins og leggj-
um við okkur fram við að bjóða
vandaða vöru á viðráðanlegu
verði,“ segir eigandinn, Heið-
ar Steinsson, sem hefur margra
ára reynslu af vinnu við leg-
steina og meðhöndlun á graníti.
„Við bjóðum upp á gríðarlega
mikið úrval og erum með yfir
hundrað gerðir og liti í verslun-
inni auk þess sem hægt er að
sérpanta steina ef þess er óskað.
Við erum bæði með einfalda og
klassíska steina og einnig steina
með miklum útskurði. Það ættu
því allir að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi.“
Steinarnir eru allir úr há-
gæða granítsteini sem Heið-
ar segir þola íslenska veðráttu
mjög vel. Hann segir að í vöxt
hafi færst að fólk vilji hafa alls
kyns fylgihluti við legstein-
inn eins og luktir og blóma-
vasa. Graníthöllin býður upp á
gömlu koparluktirnar sem hafa
notið vinsælda undanfarna ára-
tugi en einnig granítluktir og
vasa í stíl við legsteininn sem er
nýjung hér á landi. „Fólki hefur
líkað þessi nýjung vel, enda
eru þetta stílhreinir og fallegir
hlutir. Kosturinn er að luktirn-
ar eru afar sterkbyggðar og það
sér ekkert á þeim með árunum
ólíkt koparnum,“ segir Heiðar.
Þá tekur Graníthöllin að sér
viðgerðir og viðhald á legstein-
um. „Það borgar sig að gera við
hættulega legsteina sem eru
við það að falla á hliðina en það
hafa orðið mörg slys víðs vegar
um heiminn af þeirra völdum,“
segir Heiðar. „Ef börn príla utan
í slíkum steinum og þeir falla
á hliðina getur það haft slæm-
ar afleiðingar. Við viljum koma
í veg fyrir slíkt og bendum fólki
á að hafa samband ef legsteinar
eru farnir að halla en við lögum
það fyrir sanngjarnt verð. Þá
bjóðum við upp á þá þjónustu
að bæta við nöfnum á legsteina,
hreinsa og endurmála stafi.“
Graníthöllin er til húsa að
Bæjarhrauni 26 í Hafnarfirði, á
móti Fjarðarkaupum, en fyrir-
tækið þjónustar allt landið. „Við
erum í fallegu húsnæði. Þar er
gott aðgengi og við tökum vel á
móti öllum,“ segir Heiðar. Nán-
ari upplýsingar er að finna á
www.granithollin.is.
Graníthöllin býður upp á vandaða
granítlegsteina í miklu úrvali
Hjá Graníthöllinni er markmiðið að bjóða fallegustu legsteina landsins. Úrvalið er ríkulegt og er bæði hægt að velja um einfalda
steina og steina með miklum útskurði. Þá eru ýmsir fylgihlutir á boðstólum auk þess sem boðið er upp á viðgerðir og viðhald.
Granítlugtir og vasar í stíl við legsteininn
er nýjung sem hefur verið vel tekið.
Graníthöllin er til húsa að Bæjarhrauni 26 í Hafnarfirði. Þar er gott aðgengi og tekið vel á móti fólki.
Hægt er að velja um yfir hundrað gerðir
steina og liti auk þess sem hægt er að
sérpanta sé þess óskað.
Steinarnir eru allir úr hágæða graníti og
þola íslenska veðráttu afar vel.
Heiðar hefur margra ára reynslu af vinnu við legsteina og meðhöndlun á graníti. MYND/GVA