Fréttatíminn - 04.11.2011, Page 8
ÞESS VEGNA ERTU HJÁ SJÓVÁ
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
1
-2
0
1
1
VEGAAÐSTOÐ SJÓVÁ
Bensínlaus, straumlaus, sprungið, tjónaskýrsla?
ÞÚ HRINGIR Í 440 2222
Stýrivaxtahækkun
0,25%
hækkun
stýrivaxta
Peningastefnunefnd
Seðlabanki
íslands
Rýmingarsala!
Seljum garðhúsgögn, bastsófasett, blómapotta ofl.
með allt að 80% afsl. í nokkra daga!
Frábært tækifæri til að eignast vandaða vöru
á pallinn, svalirnar eða í sólstofuna.
Alicante sett m/4 stólum kr. 219.500,-
verð nú kr. 109.750,- m/50% afsl.
V ið vinnum á tólf tíma vöktum allan sólarhringinn,“ segir Guðmundur Valgeir Magnússon, verksmiðju-
stjóri Íslenska kalkþörungafélagsins á
Bíldudal. Rúmlega fimm þúsund tonnum
af kalkþörungum var skipað út í nýliðnum
október en þrír farmar á ári fara til vatns-
hreinsiverksmiðju í Frakklandi. Frönsku
kaupendurnir hafa óskað eftir því að fá
meira en verksmiðjan annar því ekki að
sinni.
„Við framleiðum um 35 þúsund tonn á
ári. Verkefnið gengur mjög vel og leiðin
hefur bara legið upp á við frá því að verk-
smiðjan var sett á laggirnar haustið 2007,“
segir Guðmundur Valgeir. Nú er verið að
stækka lagerhús um 1000 fermetra og til
stendur að stækka verksmiðjuna með því
að bæta við öðrum þurrkara. „Við erum að
vinna í leyfismálum vegna stækkunarinn-
ar en í dag erum við ekki að nýta starfs-
leyfið til fulls, það er 57 þúsund tonn af
unnu efni á ári,“ segir Guðmundur Valgeir.
Kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal er
nánast að fullu í eigu írska fyrirtækisins
CelticSea Minerals. Hún vinnur hráefnið
úr setlögum í Arnarfirði en kalkþörung-
arnir eru að mestu notaðir sem steinefni
fyrir búpening. Stærstu kaupendurnir eru
í Sádi-Arabíu. Þess utan nýta Frakkar af-
urðirnar í vatnsmeðhöndlun og lítill hluti
fer til matvælaframleiðslu, að sögn Guð-
mundar Valgeirs. Skipafélagið Nes flytur
hráefnið til Írlands en þar er umskipunar-
höfn fyrir smásöludreifingu á vegum írska
félagsins sem einnig rekur verksmiðju þar.
Guðmundur Valgeir segir setlögin vera
mest í innanverðum Arnarfirði en einnig
hafa svæði verið skoðuð í Ísafjarðardjúpi
og innfjörðum Húnaflóa. Í matsskýrslu var
áætlað að í Arnarfirðinum væri hægt að
vinna 21-22 milljónir rúmmetra en verk-
smiðjan hefur leyfi iðnaðarráðuneytisins
til að taka 87 þúsund rúmmetra á ári.
Í fyrstu nýtti verksmiðjan gas til
þurrkunar en í fyrra hófst þurrkun með
rafmagni frá Orkubúi Vestfjarða. „Það er
mjög þægilegt og hefur í alla staði gengið
vel,“ segir verksmiðjustjórinn.
Velta verksmiðjunnar nemur hundruð-
um milljóna á ári. „Ég hef stundum sagt,“
segir Guðmundur Valgeir, „að þessir 160
íbúar á Bíldudal séu að skapa milljarð í út-
flutningstekjur, þ.e. verksmiðjan okkar,
frystihúsið og rækjuvinnslan. Það mættu
þeir hafa í huga sem stundum virðast ætla
að leggja niður landsbyggðina.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
almenningur tjáir sig um
íslensk fyrirtæki
nýr upplýsinga- og leitarvefur fyrirtækisins
Já, stjörnur.is, hefur formlega verið opnaður.
um 700 umsagnir um íslensk fyrirtæki og
þjónustuaðila eru komnar inn á vefinn en þar
eru upplýsingar um öll fyrirtæki og þjónustu-
aðila sem skráð eru hjá Já. Þar geta notendur
skoðað og/eða gefið íslenskum fyrirtækjum
og þjónustuaðilum umsagnir og stjörnur, sem
byggðar eru á upplifun og reynslu þeirra af
þjónustu fyrirtækjanna. umsagnir eru merktar
þeim sem þær veita, en notendur þurfa að
vera með aðgang að Facebook til að geta
gefið umsagnir. „Við gerum okkur vonir um að
umsagnir á stjörnur.is verði komnar í um tíu
þúsund næsta vor,“ segir stefán B. Önundar-
son, samfélagsstjóri fyrir stjörnur.is. - jh
Leiðin hefur
bara legið
upp á við.
KalKþörungaVerKsmiðjan unnið allan sólarhringinn á Bíldudal
Annar ekki eftirspurn
Ársfram-
leiðslan nemur
35 þúsund
tonnum en
stefnt er að 57
þúsund tonna
framleiðslu
með stækkun.
hráefnið
er unnið úr
setlögum í
Arnarfirði.
kalkþörungaverkmiðjan á Bíldudal annar ekki eftirspurn. stefnt er að stækkun hennar. Ljósmynd Guðmundur Valgeir.
Peningastefnunefnd seðlabanka Íslands hækk-
aði vexti um 0,25 prósentustig á miðvikudaginn.
stýrivextir verða því 4,75% og innlánsvextir 3,75%.
síðasta vaxtaákvörðun var 21. september. Þá ákvað
seðlabankinn að halda vöxtum óbreyttum. Í rök-
stuðningi nefndarinnar segir að nýjustu hagtölur og
spá Seðlabankans staðfesti að efnahagsbatinn hafi
haldið áfram þrátt fyrir að dregið hafi úr hagvexti í
heiminum og óvissa aukist. Gert sé ráð fyrir því að
hagvöxtur verði nokkru meiri í ár og á næsta ári en
spáð var í ágúst. Þá verði verðbólga heldur minni á
næstu misserum vegna þess að gengi krónunnar sé sterkt og vegna minni
innfluttrar verðbólgu. Fram kom í fréttum að Gylfa Arnbjörnssyni, forseta
Alþýðusambandsins, hafi brugðið vegna vaxtahækkunarinnar. Hann sagði
vexti hér þegar vera 3,5-4 prósentum hærri en í nágrannalöndunum. Fjár-
festingar séu í sögulegu lágmarki en seðlabankinn glími við þenslu. - jh
Getur þú
verið
heimilisvinur
Dieter?
www.soleyogfelagar.is
8 fréttir helgin 4.-6. nóvember 2011