Fréttatíminn - 04.11.2011, Blaðsíða 16
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz og KIA á Íslandi.
Dæmi um kjarabíla
Tegund Gerð Árgerð Akstur Tilboðs- Mán. Afborgun
km. verð pr. mánuð*
Hyundai Getz 06/08 72.000 1.090.000 60 15.890 kr.
Volkswagen Touran 04/04 154.000 990.000 24 32.490 kr.
Honda Accord 05/08 40.000 2.590.000 72 32.590 kr.
Hyundai Santa Fe 02/06 122.000 2.090.000 48 36.990 kr.
Volkswagen Passat 03/07 38.000 3.490.000 72 44.590 kr.
Toyota Avensis 09/06 80.000 2.590.000 48 45.790 kr.
Kia Sorento 12/10 21.000 4.890.000 72 62.390 kr.
Nissan Patrol 02/07 79.000 4.590.000 60 66.690 kr.
*Afborgun miðast við 30% útborgun og óverðtryggðan bílasamning á 8,95%
föstum vöxtum fyrstu 36 mánuðina. Nánari upplýsingar á www.landsbankinn.is.
KJARADAGAR
Notaðir bílar á góðu verði.
Sérstök kjör á völdum bílum og frábærir lánamöguleikar.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
0
-0
8
6
5Kia cee’d 2008
Verð 1.790.000 kr.
Útborgun 537.000 kr.
25.990 kr.
m.v. 60 mán.
6 ára ábyrgð eftir frá framleiðanda
Dæmi um frábær kaup
langt að segja að „ekki einu sinni Jesús Kristur
gæti verið formaður Sjálfstæðisflokksins utan
þings.“ Það sé langt í kosningar og betra sé fyrir
hana að bíða þar til í byrjun árs 2013 þegar næsti
landsfundur verður haldinn því þá séu kosningar
í nánd. Bæði Geir Hallgrímsson og Þorsteinn
Pálsson voru formenn Sjálfstæðisflokksins
án þess að gegna ráðherraembætti. Það þótti
óheppilegt svo mjög að farið var að tala um „stól
fyrir Steina“ strax eftir að hann tók við, krafa
sem var áberandi veturinn 1983 til 1984. Davíð
Oddson var ekki þingmaður þegar hann vann
Þorstein árið 1991 en þá komu alþingiskosningar
nokkrum vikum seinna og í kjölfarið flaug Davíð
inn á þing.
Sögusagnir hafa verið á kreiki um að Björn
Bjarnason, náfrændi Bjarna, standi á bak við
Hönnu Birnu. Þau hafa átt náin samskipti í gegn-
um árin og herma heimildir Fréttatímans að
Björn hafi hvatt hana dyggilega til
að byrja með – allt þar til honum
var bent á af ættingjum sínum úr
Bjarnaarmi að halda sér til hlés.
Einn viðmælandi Fréttatímans
sagði að Björn tæki hlýðni fram
yfir frændsemi. Þess vegna væri
hann hrifnari af Hönnu Birnu
en Bjarna frænda sínum. Hún
hlýddi honum en hann ekki.
Víst er að bæði Þór og Árni
Sigfússynir standa þétt við
bakið á Hönnu Birnu ásamt
Gylfa bróður þeirra sem er for-
stjóri Eimskips. Staða Þórs hefur
oft verið sterkari innan flokksins
en nú vegna laskaðrar ímyndar
eftir forstjórsetu hjá Sjóvá en
bæði Árni, bæjarstjóri Reykja-
nesbæjar, og hann hafa verið at-
kvæðamiklir innan flokksins.
Helsti stuðningsmaður
Hönnu Birnu og hennar nánasti
samstarfsmaður er Ásdís Halla
Bragadóttir, fyrrverandi bæjar-
stjóri í Garðabæ. Sagt er að hún
hafi jafnvel meiri áhuga á því að
Hanna Birna verði formaður en
Hanna Birna sjálf og eru viðmælendur Frétta-
tímans einróma í þeirri skoðun sinni að hún vilji
fá framkvæmdastjórastöðu flokksins ef Hönnu
Birnu tekst að vinna – og hún muni fá hana.
Ásdís Halla hefur unnið grimmt að því að vinna
Hönnu Birnu brautargengi í væntanlegum for-
mannsslag og er skemmst að minnast uppákomu
hennar og Auðar Finnbogadóttur á fundi sjálf-
stæðisfélaganna í Garðabæ þar sem þær stöllur
reyndu að koma í veg fyrir að Þóra Baldvinsdótt-
ir, eiginkona Bjarna Benediktssonar, og Kristín
Jónsdóttir, bróðurdóttir Bjarna, yrðu landsfunda-
fulltrúar. Óhætt er að segja að þær stöllur hafi
verið reknar til föðurhúsanna með hugmyndir
sínar því báðar tillögurnar voru felldar með 33
atkvæðum gegn tveimur. Þykir mönnum sem
Fréttatíminn ræddi við sérstakt í því samhengi
hversu lítið bakland bæjarstjórinn fyrrverandi
hefur í Garðabæ.
Hanna Birna er oddviti Sjálfstæðismanna
í borginni og er staða hennar sterk innan
borgarstjórnarflokksins ef litið er til hugsanlegs
framboðs hennar. Þar hangir einkum tvennt á
spýtunni. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, sem er
reyndar í fæðingarorlofi þessa dagana, styður
Hönnu Birnu algjörlega en Júlíus Vífill Ingvars-
son, Kjartan Magnússon og Gísli Marteinn Bald-
ursson gætu litið á sigur hennar í formannskjöri
sem tækifæri fyrir sig til að komast í oddavita-
sætið sem hún hlyti að víkja úr í fyllingu tímans.
Með þingflokkinn á bak við sig
Samdóma álit viðmælenda Fréttatímans er að
staða Bjarna Benediktssonar innan
þingflokks Sjálfstæðismanna sé af-
skaplega sterk. Ekki er endilega víst
að allir þingmennirnir muni kjósa
hann en ólíklegt er talið að nokkur
þeirra muni vinna gegn honum.
Tveir af öflugustu þingmönnum
flokksins, Guðlaugur Þór Þórðarson
og Illugi Gunnarsson, sem barist
hafa hatrammlega um yfirráðin í
Reykjavík, standa þétt við bak Bjarna
og sömu sögu er að segja af Ólöfu
Nordal, núverandi varaformanni
ásamt þeim formannsframbjóðend-
unum Kristjáni V. Júlíussyni og Pétri
H. Blöndal. Einu spurningarmerkin
er þingkonurnar þrjár; Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, Ragnheiður
Elín Árnadóttir og Ragnheiður Rík-
harðsdóttir. Þorgerður Katrín og
Ragnheiður Elín eru vinkonur Hönnu
Birnu og tengdadóttir Ragnheiðar
Ríkharðs er Þórey Vilhjálmsdóttir,
framkvæmdastjóri borgarstjórnar-
flokks Sjálfstæðismanna og náin sam-
starfskona Hönnu Birnu. Viðmæl-
endur Fréttatímans eru á einu máli
um að þrír síðustu formenn flokksins,
Davíð Oddsson, Þorsteinn Pálsson og Geir H.
Haarde, styðji allir Bjarna. Davíð hefur reyndar
tuskað Bjarna til í leiðurum í Morgunblaðinu en
hann kýs frekar óþægan mann eins og Bjarna
heldur en Hönnu Birnu sem hann hefur lítinn
smekk fyrir vegna ákvarðanafælni og lélegrar
(að mati Davíðs) stjórnarandstöðu í borgar-
stjórn. Þorsteinn Pálsson hefur ráðlagt Hönnu
Birnu á opinberum vettvangi að fara ekki fram
og Geir H. Haarde stendur þétt við bak Bjarna
eftir framgöngu Bjarna í Landsdómsmálinu en
í því hefur Bjarni varið Geir með kjafti og klóm.
Varla þarf að geta þess að Benedikt Sveinsson,
faðir Bjarna, og frændur hans Benedikt Jóhann-
esson og Halldór Blöndal, sem nú er formaður
Félags eldri sjálfstæðismanna, styðja Bjarna.
Að hræða Bjarna
Ef eitthvað er að marka þær þrjár kannanir sem
birtar hafa verið á undanförnum vikum má segja
að staða Hönnu Birnu sé sterk. Hún hefur rúllað
upp tveimur netkönnunum á vegum MMR og
einni Gallup-könnun sem reyndar var geymd í
tvo mánuði áður en hún var birt. Í öllum könnun-
unum nýtur hún yfirburðarfylgis umfram Bjarna
í formannsstólinn hvort heldur sem það er hjá
almennum kjósendum eða kjósendum Sjálf-
stæðisflokksins. Einn viðmælandi Fréttatímans
segir það augljóst að tilgangur þessara kannana
hafi verið að stugga við Bjarna jafnvel þannig
að hann segði sig sjálfur frá formennsku. Sú sé
krafa stuðningsmanna Hönnu Birnu í ljósi niður-
stöðu sem kannanirnar bera með sér. Talað hefur
verið um að stuðningsmenn hennar hafi lekið því
til DV að Bjarni hafi verið yfirheyrður af embætti
sérstaks saksóknara í tengslum við málefni Sjóvá
en það hefur ekki fengist staðfest. Innan herbúða
Bjarna telja menn þó að sú frétt hafi komið sér
vel fyrir Bjarna því þar með tókst honum að svara
fyrir mál sem hefur reynst honum afskaplega
erfitt: Tengsl hans við viðskipti Karls Werners-
sonar og Milrstone. Bjarni er þannig langt frá því
að vera óumdeildur innan Sjálfstæðisflokksins.
Flestir er sammála um að hann hafi styrkst mikið
á undanförnum árum og sé öruggari og með
sterkari sjálfsmynd sem stjórnarmálamaður en
áður. Viðmælendur Fréttatímans telja allir sem
einn að það veiki Hönnu Birnu að fátt sé vitað um
hennar pólitísku skoðanir. Það viti engin fyrir
hvað hún stendur. Allir þeir sem Fréttatíminn
ræddi við telja að hik hennar undir lok síðasta
kjörtímabils í borginni, þar sem hún talaði niður
gjaldskrárhækkanir hjá Orkuveitunni sem og
uppsagnir hjá fyrirtækinu, hafi komið illilega í
bakið á henni þegar „grínistar“ eins og einn við-
mælandinn orðaði það sáu að það eina sem hægt
var að gera í stöðunni var að hækka gjaldskrá og
segja upp fólki – þveröfugt við það sem Hanna
Birna sagði. Flestir hafa mikið álit á Hönnu
Birnu, segja hana klára og útsjónarsama þótt
einhverjir efist um leiðtogahæfaleika hennar.
Það á reyndar við um Bjarna einnig en margoft
hefur verið sett spurningarmerki við það innan
flokksins hvort hann sé nægilega aðsópsmikill til
að leiða flokk eins og Sjálfstæðisflokksins.
Hvað sem verður skal þó hafa eitt í huga. Á
landsfundinn kemur fólk allstaðar að úr öllum
kjördæmum, eða eins ogeinn viðmælandinn
orðaði: Landsfundurinn hefur sitt eigið líf.
Menn fara inn á fund vissir um eitthvað en koma
síðan út af fundinum með allt aðra niðurstöðu í
farteskinu.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Aldur: 45 ára
Starf: borgarfulltrúi
Ábyrgðarstöður: forseti
borgarstjórnar 2006 til
2008, borgarstjóri 2008
til 2010
Davíð Oddsson hefur hvorki smekk
fyrir Bjarna né Hönnu Birnu en
styður að öllum líkindum Bjarna.
Ekki af því hann sé svo öflugur
heldur af því hann sé skárri.
Bjarni
Benediktsson
Aldur: 41 árs
Starf: þingmaður og
formaður Sjálfstæðis-
flokksins
Ábyrgðarstöður: for-
maður Sjálfstæðis-
flokksins
Björn Bjarnason veit vart í hvorn
fótinn hann á að stíga. Ættartengsl
hans við Bjarna gera honum nær
ómögulegt að styðja eins vel við
bakið á Hönnu Birnu og hann vildi.
Kjartan Gunnarsson er sagður heil-
inn á bak við framboð Hönnu Birnu
og er hennar nánasti ráðgjafi
16 fréttaskýring Helgin 4.-6. nóvember 2011