Fréttatíminn - 04.11.2011, Síða 66
Helgin 4.-6. nóvember 201158 tíska
Dúkkulísuleikur mæðranna
Skrítið að hugsa til þess hversu vinsæl barnafatatíska getur reynst. Foreldr-
arnir, þá helst mæðurnar, njóta þess að klæða barnið sitt upp í allskonar
fatnað og leika dúkkulísuleik. Börnin spranga um í dýrum merkjavörum
sem þau svo vaxa uppúr á nokkrum vikum.
Ég hafði alltaf staðið í þeirri trú að þetta barnafatasnobb einskorðaðist við
vestræn samfélög og kom mér það því sannarlega á óvart þegar ég tók eftir
þessu hér í Úganda þar sem ég hef dvalið í heimahúsi síðustu vikur. Við
búum alls fimmtán saman, í rúmgóðu húsi, og eru það tvær litlar stelpur,
eins árs og þriggja ára, sem lífga upp á heimilislífið. Þær eru duglegar að
merkja sitt svæði og pissa þær á okkur sjálfboðaliðana á nokkurra daga
fresti. Bleiur eru ekki fáanlegar hér í Jinja og svo virðist sem móðirin eyði
þeim peningum sem annars gætu farið í bleiukaup í merkjaföt handa litlu
stelpunum. Aldrei hef ég séð þær í sömu flíkinni tvisvar þessar tvær vikur
sem ég hef dvalið hérna, enda fataskápur þeirra endurnýjaður reglulega.
En þrátt fyrir mikið fataflóð hér á bæ telst þessi fjölskylda sem ég bý hjá
ekki rík. Eins og í vestrænum samfélögum hefur móðirin fatnað ofarlega á
forgangslistanum. Á morgnanna leikur hún dúkkulísuleikinn og heimtar að
við sjálfboðaliðarnir tökum þátt. Bleikir kjólar, slaufur í hárið og skór í stíl er
yfirleitt fyrsta verkefni dagsins.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
5
dagar
dress
Pælir ekki mikið í tísku
Föstudagur:
Skór: GS Skór
Sokkabuxur: Oriblu
Pils: H&M
Bolur: Zara
Hálsmen: Götumarkaður
Esther Viktoría Ragnarsdóttir er
tuttugu ára starfsmaður í Garðsapóteki
og spilar handbolta með Stjörnunni. Í
vor kláraði hún Verzlunarskóla Íslands
og stefnir á að sjá heiminn á komandi
mánuðum.
„Ég pæli ekkert rosalega mikið í fötum
eða tísku. Ég skoða ekki blöð eða blogg
og klæði mig bara í það sem mér finnst
þægilegt og flott. Þótt að fötin mín koma
líklegast mest frá þessum þekktu búðum
eins og H&M, Topshop og stundum
Spútnik, á ég mér engar sérstakar uppá-
haldsbúðir. Kaupi bara föt sem mér finnst
flott, sama hvar ég finn þau.“
Miðvikudagur
Skór: Fókus
Stuttbuxur: H&M
Bolur: Spúútnik
Hálsmen: Forever21
Fimmtudagur:
Skyrta: Monki
Gallabuxur: Zara
Skór: Gs Skór
Hálsmen: Forever21
Nýjar umbúðir Guerlain
sólarpúðurs
Á sumrin er oft nóg að setja á sig maskara, gloss og sólar-
púður til að fríska sig upp og líta þokkalega út. Á veturna,
þegar húðin er ekki lengur böðuð d-vítamíni og er orðin
föl, þarf að huga sérstaklega að því hvaða litur af púðri og
farða er settur á húðina. Mælt er með því að tóna þetta
niður og taka sem nemur einum ljósari lit að vetri en sumri
og gildir þá einu hvort um er að ræða farða eða sólarpúður.
Guerlain hefur í tilefni af 25 ára afmælis fyrirtækisins
sett sitt sívinsæla sólarpúður í örlítið breytta öskju en
eftir sem áður er þetta sama góða
varan. Fyrir þá húðgerð sem er
algengust hér á norðurhjara
veraldar er litur nr. 1 sá sem
passar best okkar fölu húð í
svartasta skammdeginu en
síðan má skipta yfir í dekkri
liti þegar líður nær vori.
Stór stund hjá
tískutímaritinu V
Nýjasta tölublað tímaritsins V ma-
gazine hefur vakið mikla athygli
meðal áhugamanna um tísku
en þetta er í fyrsta skipti í tvö ár
sem fyrirsætur prýða forsíðuna.
Fyrrum ritstýra Vogue, Carine
Roitfeld, stjórnaði myndatökunni
ásamt hinum umdeilda ljósmynd-
ara Terry Richardson. Roitfeld
segir þetta stóra stund hjá tíma-
ritinu – tímamót. Alls eru fjórar
forsíður í umferð sem sýna átta
ólíkar fyrirsætur og segir Carine
þetta nýja kynslóð fyrirsæta sem
munu umbreyta tískuheiminum á
komandi árum. -kp
Blæs lífi í America’s Next Top Model
Fyrirsætan Tyra Banks hefur haldið raunveruleikaþætti sínum, America’s
Next Top Model, lengi á lífi og er hún síður en svo á þeim buxunum að láta þá
geispa golunni. Nú hefur hún ákveðið að markaðssetja nafn þáttarins betur
og í byrjun næsta árs mun koma út nýr ilmur undir nafninu Dreams Comes
True – ANTM. Ilmurinn var kynntur í þætti sem sýndur var í Bandaríkjunum
á miðvikudaginn síðasta og mun sigurvegarinn í yfirstandandi þáttaröð verða
andlit ilmvatnsins. Ilmurinn verður ekki dýr, seldur í litlum flöskum og ætlaður
konum á öllum aldri,
Mánudagur
Skór: Converse
Stuttbuxur:
Topshop
Bolur: Topshop
Peysa: Spúútnik
Þriðjudagur
Skór: GS skór
Samfestingur: For-
ever21
Jakki: Spúútnik
Getur þú verið heimilisvinur
Abigale?
www.soleyogfelagar.is
Kolbrún er í Úganda
þessa dagana. Hér
er hún með nokkrum
vinum úr hópi
heimafólks.
Ljósmynd/Haakon Bro-
der Lund