Fréttatíminn - 04.11.2011, Page 72
Plötuhorn Dr. Gunna
Órar
Hjálmar
Róttækir og
leitandi
Á fimmtu plötunni
sinni eru Hjálmarnir
sjálfum sér líkir eins og
þeir eigi sitthvað eftir
ósagt í fámennri deild
lopapeysuraggísins.
Boðið er upp á ellefu
misþykka slagara, suma
alveg hnaus en nokkra
aðeins þynnri. Bandið
hefur slík tök á forminu
að það getur óhindrað
brugðið á leik eins og
í lögunum Ég teikna
stjörnu, með sínu sterka
og óvenjulega grúvi, og
Í gegnum móðuna, með
sínum æsandi rafdöbb-
kafla. Bandið mætti að
ósekju grípa til slíkra
róttækra aðgerða því
mjög flott er hvernig
róttæknin blandast við
poppað raggíið. Í stuttu
máli: Enn ein frábær
og leitandi plata frá
Hjálmum!
töf
Náttfari
Tíu árum síðar
Hljómsveitin Náttfari
var starfandi í kringum
2000, spilaði póstrokk
(mitt á milli Tortoise og
Sigur Rósar) og var langt
komin með plötu þegar
hún koðnaði niður og
hætti. Sveitin lofaði góðu
og því er vissulega gott
að hún hafi snúið aftur,
klárað plötuna (eða öllu
heldur tekið hana upp
frá grunni og bætt við
hana) og komið henni út
undir viðeigandi heiti.
Ósungin músíkin byggir
á flæðandi stefum sem
rísa og hníga. Þessi
tegund tónlistar angar
vissulega ekki af sama
nýjabrumi og hún gerði
fyrir 10 árum - virðist
ekki eins áríðandi í dag
- en meðlimir Náttfara
eru þrumuklárir og halda
vel á spöðunum á heil-
steyptri og sannfærandi
plötu.
Den of lions
Ourlives
Mött gæði
Á annarri plötu sinni
heldur hljómsveitin
Ourlives áfram að þróa
sitt slípaða gæðarokk
(a la Dikta, Muse og
Radiohead áður en
tilraunagleðin tók yfir).
Barði Jóhannsson gerir
þetta dálítið Bang Gang-
legt, rokkið er settlega
snyrtilegt, evrópskt og
ekki mjög væld. Hvísl-
söngurinn er angurvær,
popprokkgítarar þykkt
ofnir og bítið þétt. Þetta
er flott plata, ekki síst
séð frá iðnaðarlegum
sjónarhóli; rokkmúsík
en nógu „seif“ til að
keyra í hátalarakerfi
stórmarkaðar. Mörg
laganna vinna á með
lúmskum popphúkkum,
sérstaklega er byrjunin
sterk. En það tekur á að
halda athygli því platan
rennur aðeins saman í
mattri einhæfni.
hollywooD Mislukkað hjÓnabanD
72 daga hamingja Kim
Hjónaband Kim Kardashian og Kris Humphries er á enda. Parið gifti sig með pomp og pragt 20.
Þ okkagyðjan Kim Kardashi-an er skilin við bandaríska körfuboltakappann Kris
Humphries – aðeins 72 dögum eftir
að þau giftust með mikilli viðhöfn.
Hún sleikir nú sárin í Ástralíu þar
sem hún kynnir nýja handtöskulínu
Kardashian-systranna ásamt syst-
ur sinni. Nokkuð hefur verið rætt
og ritað um ástæður skilnaðarins.
Meðal þess sem hefur verið nefnt er
að hjónabandið hafi verið sjónarspil
og ein allsherjar auglýsingabrella
en Kim hefur þráfaldlega neitað því.
Hún segir í yfirlýsingu að hún sé
fljótfær í ástum eins og mörgu öðru
og það hafi orðið henni að falli. Kris
Humphries ku vera með böggum
hildar og fer ekki út úr húsi vegna
ástarsorgar.
Dagur 74. Enginn hringur á baugfingri
vinstri handar Kim þar sem hún kynnti
döpur handtöskulínu þeirra systra í
Ástralíu á miðvikudag. Nordic Photos/Getty
Dagur 63. Kim og Kris hamingjusöm
í afmælisveislu hennar á Marquee
skemmtistaðnum í Las Vegas. Nordic
Photos/Getty Images
Dagur 45. Gaman hjá hjónakornunum
í spjallþætti Jay Leno. Nordic Photos/Getty
Dagur 31. Rómantík í New York. Hveiti-
brauðsdagarnir ekki liðnir. Nordic Photos/
Getty Images
Dagur 23. Sæt saman á tískusýningu Avril Lavigne. Nordic Photos/Getty Images
Dagur 11. Hjónakornin í eigin heim-
komuveislu í New York. Nordic Photos/
Wire Images
Þremur dögum fyrir giftingu. Kossa-
flens Kim og Kris. Nordic Photos/Getty
Images
64 dægurmál Helgin 4.-6. nóvember 2011