Fréttatíminn - 04.11.2011, Page 76
S I Ð M E N N T
Borgaraleg ferming 2012
Kynningarfundur
í Háskólabíói
Laugardaginn 12. nóvember kl. 11
Salur 1
Upplýsingar og skráning í námskeiðin
er á www.sidmennt.is
„Það er
dýrmætt
að eiga
val”
Öll ungmenni og foreldrar / aðstandendur velkomin
sími: 567 7752, 557 3734
eða 553 0877
KviKmyndir Jesus Christ superstar
Nicole leikur frægustu
vændiskonu veraldar
B rynja Þorgeirsdóttir og Eg-ill Eðvarðsson frumsýndu heimildarmynd sína Snúið
líf Elvu í Bíó Paradís á fimmtudag-
inn. Myndina gerðu þau í framhaldi
af því að þau hittu Elvu Dögg Gunn-
arsdóttur vegna umfjöllunar í Kast-
ljósi um tourette-heilkennið en Elva
Dögg er með versta tilfelli tourette-
heilkennis sem læknir hennar hefur
nokkru sinni séð.
„Það má segja að myndin sé inn-
slag sem vatt upp á sig,“ segir Brynja
en hún og Egill hrifust af einlægni
og hispursleysi Elvu Daggar. „Ég sá
strax að hún er fædd stjarna. Hún er
svo ófeimin og blátt áfram og veitti
okkur innsýn í líf sitt og talaði opin-
skátt um líðan sína. Við Egill vorum
bara að gera það sem við gerum
venjulega og það er Elva sjálf sem
gerir myndina óvenjulega.“
Nánast stöðugir og ósjálfráðir kæk-
ir hafa þjakað Elvu Dögg árum saman
og engin lyf hafa slegið á höfuðkippi
og óstjórnlega þörf fyrir að snúa sér
í hringi á nokkurra skrefa fresti. Síð-
asta von hennar var aðgerð þar sem
rafskaut voru grædd átta sentimetra í
heila hennar. Hún undirgekkst þessa
aðgerð fyrst íslenskra tourette sjúk-
linga og Brynja og Egill fylgdu henni
alla leið á skurðarborðið. Aðgerðin
er ekki hættulaus enda borað fram
hjá málstöðvum heilans og stöðvum
sem stjórna hreyfingum. „Elva var
óttalaus fram á síðustu stundu fyrir
aðgerðina. Þá sótti að henni ótti og
kvíði þannig að hún skrifaði fimm ára
syni sínum bréf, sem hún setti í nátt-
borðsskúffuna sína, ef illa myndi fara.
Hún sagði móður sinni frá bréfinu
rétt áður en hún var svæfð. Og bætti
svo við á sinn einstaka kaldhæðna
hátt: „Og bíllinn minn, hann ætti að
„kovera“ skuldirnar mínar.““
Elva Dögg er húmoristi af guðs
náð og Brynja segir skopskynið hafa
komið Elvu og fjölskyldu hennar í
gegnum erfiðleikana sem fylgja veik-
indum hennar. „Þau eru öll svona í
fjölskyldunni; gera óspart grín að
henni og kækjunum. Þetta er þeirra
leið til að takast á við þetta,“ segir
Brynja.
Snúið líf Elvu verður sýnd í Sjón-
varpinu sunnudagskvöldið 13.
nóvember.
„Þau eru öll svona í
fjölskyldunni; gera
óspart grín að henni
og kækjunum.“
s öngkonan Nicole Scherzinger, sem er meðal dómara
í X factor-þáttunum í
Bandaríkjunum, mun
leika eitt aðalhlutverk-
anna í endurgerð mynd-
arinnar Jesus Christ
Superstar sem byggir
á samnefndum söng-
leik eftir Andrew Lloyd
Webber. Frumgerðin
var frumsýnd árið 1973
en ekki er búist við að
endurgerðin verði sýnd
fyrr en árið 2014.
Scherzinger, sem mun
vera mikill aðdáandi
söngleiksins, hefur átt
í viðræðum við Webber
undanfarna sex mánuði
og nú er ljóst, ef marka
má enska götublaðið The
Sun, að hún mun leika
frægustu vændiskonu
veraldar, Mariu Magdal-
enu, í myndinni. Þetta
verður ekki frumraun
söngkonunnar þokka-
fullu á hvíta tjaldinu því
hún leikur í stórmynd-
inni Men in Black III sem
kemur út á næsta ári.
Auk þess lék hún í ung-
lingaþáttunum um norn-
ina Sabrinu sem sýndir
voru fyrir tíu árum.
Og hæfileikar Scherz-
inger ættu að koma sér
vel við gerð myndarinnar
því hún þykir prýðileg
söngkona og liðtækur
dansari.
Þokkagyðjan Nicole
Scherzinger.
Nordic Photos/Getty Images
BrynJa Þorgeirsdóttir Fylgdist með aðgerð elvu daggar
„Og bíllinn minn, hann ætti
að „kovera“ skuldirnar mínar.“
Elva Dögg (fyrir miðju) og Brynja ásamt Agli (til vinstri) og Jóni Víði Haukssyni.
Þ að vakti litla kátínu hjá Skjá einum í haust þegar Ellý Ármanns hætti við
að vera með vinkonu sinni Tobbu
Marínós í fyrirhugðum sjónvarps-
þætti þeirra. Brotthvarf Ellýar
gekk ekki átakalaust fyrir sig en
Skjárinn sendi henni bréf þar sem
kom fram að Skjárinn teldi hana
hafa gert sig seka um samnings-
rof og myndi jafnvel leita réttar
síns. Tobba hélt hins vegar ótrauð
áfram og stendur ein í eldlínunni
í þættinum Tobba sem Skjár einn
sýnir á miðvikudagskvöldum.
Þegar Fréttatíminn spurði Frið-
rik Friðriksson, sjónvarpsstjóra
Skjás eins, hvort stöðin ætlaði hart
við Ellý neitaði hann því alfarið.
Sjónvarpsstöðin hafi hins vegar
sent Ellý bréf þar sem henni var
gerð grein fyrir afstöðu stöðvar-
innar en þar með hafi málinu verið
lokið af hálfu Skjásins.
„Þetta mál er gleymt og grafið
hvað okkur varðar. Tobba hélt
áfram og stendur sig vel,“ segir
Friðrik. Ellý og Tobba sögðu fyrst
frá áformum sínum um sjónvarps-
þátt sérstaklega ætlaðan konum
í Fréttatímanum síðsumars og
í kjölfarið spratt upp hörð og
óvægin umræða þar sem þeim
var legið á hálsi fyrir að einblína
um of á staðalímyndir af konum
og láta eins og ekkert kæmist að
í kolli íslenskra kvenna annað en
snyrtivörur, megrun og kynlíf.
Eftir ruddalega tölvupósta, hótanir
og símtöl ákvað Ellý að draga sig í
hlé og láta þann slag eiga sig sem
virtist í uppsiglingu vegna þáttar-
ins. Ellý vildi ekki tjá sig um málið
þegar Fréttatíminn leitaði eftir
því en heimildir blaðsins herma
að henni hafi verið mjög brugðið
þegar hennibréfið frá Skjá einum
barst henni í hendur. -þþ
Var hótað vegna
samningsrofs
ellý Kaldar KveðJur Frá sKJá einum
Tobba og Ellý á meðan allt
lék í lyndi og stefndi í mikið
stuð á Skjá einum. Ævintýri
vinkvennanna varð þó aldrei
að veruleika.
68 dægurmál Helgin 4.-6. nóvember 2011