Fréttatíminn - 04.11.2011, Qupperneq 78
VIÐ ERUM 50 ÁRA
FAGNAÐU MEÐ OKKUR
3.–5. NÓVEMBER FRÁ
KLUKKAN 8:50–21:50
Gleraugnasalan | Laugarvegi 65 | 551 8780 | gleraugnasalan.is
AFSLÁTTUR AF ÖLLU
Blessið kostaði 4,5 milljónir
Guðjón Þórðarson,sem er orðaður við Grindavík, fékk 4,5 milljónir í starfsloka-
samning frá BÍ/Bolungarvík eftir því sem fregnir herma. Guðjóni var sagt upp störfum
hjá Vestfjarðaliðinu eftir ár
í starfi en heimildir segja
að hann hafi verið með
sex mánaða uppsagnar-
frest. Sjötta sæti í 1. deild
og undanúrslit í bikar var
ekki nægur árangur fyrir
metnaðarfulla Vestfirðinga
sem ákváðu að láta Guðjón
taka pokann sinn. Maður
með ferilskrá Guðjóns situr
þó ekki lengi aðgerðarlaus
ef allt er eðlilegt.
Bergsveinn þessa árs
Fyrir jólin í fyrra sló Svar við bréfi Helgu
eftir Bergsvein Birgisson eftirminnilega
í gegn. Bjartur er útgefandi en þar á bæ
áttu menn ekki von á neinum stórtíð-
indum, fyrsta prentun var 1000 eintök en
áður en yfir lauk hafði bókin verið prentuð
fimm sinnum og endaði í 8.500 eintökum
seldum. Nú gætu svipaðir hlutir verið að
gerast hjá litlu systur Bjarts, Veröld. Far-
andskuggar eftir Úlfar Þormóðsson hefur
hlotið frábæra dóma eins og var raunin
með Svar við bréfi Helgu. Bækurnar eiga
fleira sammerkt: Farandskuggar eru ekki
nema rétt um 100 síður eins og „Svarið“
og fjallar einnig um íslenskt alþýðufólk
á síðustu öld af hlýju og næmi en hún
segir frá syni sem reynir að raða saman
brotum úr lífi aldraðrar móður sinnar.
Útgefendurnir velta því nú fyrir sér hvort
Farand- skuggar verði hinn
óvænti senuþjófur
jólaver- tíðarinnar
eins og „Svarið“ í
fyrra.
Lúsiðinn Stefán
Stefán Jónsson, leikstjóri, leikari og
prófessor, er maður sem fellur sjaldan
verk úr hendi eins og komið hefur fram
í Fréttatímanum. Einhverjir myndu
jafnvel kalla hann lúsiðinn. Hann gegnir
fullri stöðu prófessors við leiklistardeild
Listaháskóla Íslands en leikstýrir jafn-
framt verkum bæði í Þjóðleikhúsinu og
Borgarleikhúsinu. Þrátt fyrir þetta hefur
hann fundið lausan tíma í þéttriðinni dag-
skrá sinni til að leika í auglýsingu fyrir Ge-
valia-kaffi. Glöggir sjónvarpsáhorfendur
hafa séð Stefáni bregða fyrir í auglýsingu
með Brynhildi Guðjónsdóttur þar
sem þau sitja prúðbúin við kaffidrykkju.
Gera má ráð fyrir því að tökur hafi verið
snöggar og snarpar að teknu tilliti til þess
hversu stíft bókaður maður Stefán er.
S igrún Lilja Guðjónsdóttir, hönnuður og fram-kvæmdastjóri Gyðju, hlaut hin eftirsóttu Gol-den Quill verðlaun afhent við hátíðlega athöfn
í Hollywood núna fyrir stuttu. The National Aca-
demy of Best Selling Authors veitti Sigrúnu Lilju
verðlaunin fyrir framlag sitt til bókarinnar The Next
Big Thing sem fólst í því að skrifa kafla í bókina.
The Next Big Thing varð metsölubók á Amazon að-
eins 24 klukkustundum eftir að hún fór í sölu fyrr á
þessu ári.
„Þetta var einstök tilfinning og frekar óraunveru-
legt allt saman. Hátíðin var virkilega vel heppnuð
og ég er einstaklega stolt að hafa fengið þessi verð-
laun. Mikill heiður. Í kjölfar þeirra hafa mér boðist
nokkur spennandi verkefni í þessu sviði sem ég er
nú að skoða vandlega,“ segir Sigrún í samtali við
Fréttatímann.
Guðfaðir sjálfshjálparbókanna, Brian Tracy, hlaut
einnig verðlaun fyrir ævistarf sitt við sama tæki-
færi en verðlaunaafhendingin fór fram á hinu marg-
rómaða Roosevelt hóteli sem er í hjarta Hollywood.
Golden Quill verðlaunastyttan, sem er hin glæsi-
legasta, er búin til af þeim sömu og gera Óskarinn
og Emmy-verðlaunin.
„Það var einstaklega ánægjulegt að fá tækifæri til
að skarta íslenskri hönnun og vera í roði frá toppi til
táar við þetta tækifæri. Íslenska efnið vakti mikla
athygli meðal gesta á hátíðinni,“ segir Sigrún Lilja
sem klæddist sérhönnuðum hvítum og gylltum kjól
frá íslenska merkinu Arfleifð – hönnuður er Ágústa
Margrét Arnardóttir.
Sigrún Lilja fékk Jóhannes Ottóson gullsmið, sem
er með skartgripahönnunina Nox, til liðs við sig en
hann sérhannaði skartgripi fyrir viðburðinn; hár-
skraut úr gulli og eyrnalokkar í stíl. Skórnir sem hún
klæddist voru að sjálfsögðu frá Gyðju Collection en
þeir bera nafnið Aníta í höfuðið á Anítu Briem enda
upphaflega hannaðir sérstaklega fyrir brúðkaup
leikkonunar. Voru skórnir úr perluhvítu laxaroði.
Sigrún hefur dvalið undanfarna daga í Los Ange-
les en auk þess að taka á móti verðlaununum er hún
ásamt sínu liði á fundum frá morgni til kvölds vegna
fyrirtækis síns Gyðju Collection.
Síðar um kvöldið eftir hátíðina sást Sigrún Lilja
ásamt vinafólki í fylgd þeirra Ryan Secrest, Simon
Cowell og Randy Jackson, sem fólk þekkir úr hinum
vinsæla þætti Amerian Idol, þar sem þau sátu saman
í góðu yfirlæti og snæddu kvöldverð á Drai´s sem
er einn heitasti staðurinn í Hollywood um þessar
mundir. Sigrún vill lítið tjá sig um það að öðru leyti
en því að þeir séu mjög indælir félagarnir og að þar
sé Simon Cowell, sem þekktur er fyrir að geta verið
skæður á skjánum, ekki undanskilinn.
Næst á dagskrá hjá Sigrúnu er að kynna til leiks
nýja fylgihlutalínu, reyndar nú strax um helgina,
sem ber nafnið Meyja by Gyðja.
Línan var framleidd sérstaklega fyrir verslanir
Hagkaups og verður eingöngu til sölu í takmörkuðu
upplagi. Sérstök áhersla var lögð á að línan væri á
mjög viðráðanlegu verði og kemur hún í valdar versl-
anir Hagkaupa í dag föstudaginn 4. nóvember. Línan
verður svo formlega kynnt á morgun laugardag með
með glæsilegri tískusýningu sem haldin verður fyrir
utan Hagkaup í Kringlunni á 2. hæð klukkan 14.30.
Fegurðardrottningar fyrri tíma munu frumsýna lín-
una að sögn Sigrúnar Lilju.
oskar@frettatiminn.is
Verðlaun Samtök metSöluhöfunda
Gyðja fékk Golden Quill
verðlaunin í Hollywood
Sigrún Lilja Guðjóns-
dóttir var verðlaunuð
fyrir framlag sitt til met-
sölubókarinnar The Next
Big Thing við glæsilega
athöfn í Hollywood.
Sigrún Lilja klæddist sérhönnuðum hvítum og gylltum
kjól frá hönnuðinum Ágústu Margréti Arnardóttur á
verðlaunaafhendingunni.
Ryan Seacrest, Radny
Jackson og Simon
Cowell skemmtu sér
með Sigrúnu Lilju á
einum heitasta staðnum í
Hollywood.
SjónVarp danS danS danS
Baltasar gestadómari
Leikstjórinn og leikarinn Baltas-
ar Kormákur verður gestadómari í
dansþættinum Dans Dans Dans á
RÚV á morgun, laugardag. Í þætt-
inum munu sex atriði keppa um tvo
laus sæti og komast þar með áfram
á næsta stig keppninnar. Baltasar
segir í samtali við Fréttatímann að
hann sé mikill dansáhugamaður og
hafi alltaf dansað mjög mikið. „Þú
ert að tala hérna við mann sem var
tangódansari, hefur dansað með
ballettflokknum og lék aðalhlut-
verkið í West Side Story. Ég kann
þetta allt,“ segir Baltasar og bætir
við að auðvitað snúist þetta líka um
almennan „performance“ á svíðinu.
Ragnhildur Steinunn Jónsdótt-
ir, kynnir þáttanna, segir það til-
hlökkunarefni að fá Baltasar sem
gestadómara. „Hann hefur mikið
vit á þessu að eigin sögn,“ segir
Ragnhildur Steinunn og hlær.
Hún segir mikið hafa gengið á hjá
dönsurunum á æfingum í vikunni.
„Þessir krakkar eru búnir að æfa
marga tíma á dag. Þau leggja allt
undir til að þetta verði sem best.
Ein er puttabrotin og önnur sleit
vöðva en þær munu harka þetta af
sér fyrir þáttinn,“ segir Ragnhildur
Steinunn. -óhþ
Baltasar Kormákur segist koma með
mikla dansþekkingu í þáttinn.
Ragnhildur Steinunn segir Dans Dans Dans hafa fengið góðar viðtökur og allt
niður í þriggja ára börn hafi komið að máli við hana og dásamað þáttinn.
70 dægurmál Helgin 4.-6. nóvember 2011