Fréttatíminn - 07.01.2011, Blaðsíða 32
Skattar, gjöld og bætur
Staðgreiðsla 2011
Staðgreiðsla skatta 2011 er reiknuð í þremur þrepum.
Útreikningur fyrir mánaðartekjur er sem hér segir:
Af fyrstu 209.400 kr. ........................... 37,31%
Af næstu 471.150 kr. ........................... 40,21%
Af fjárhæð umfram 680.550 kr. ......... 46,21%
Frá reiknuðum skatti dregst persónuafsláttur, sem er 44.205 kr.
Sjómannaafsláttur er 740 kr. á dag.
Laun frá fleiri en einum launagreiðanda
Þeir sem hafa laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa að passa að rétt hlutfall sé notað við
útreikning á staðgreiðslu. Fari laun yfir 209.400 kr. hjá einum launagreiðanda þarf að reikna 40,21%
staðgreiðslu af launum hjá öðrum launagreiðendum, eða eftir atvikum 46,21%.
Tryggingagjald
Tryggingagjald er 8,65% og er óbreytt frá fyrra ári.
Fjármagnstekjuskattur
Frá 1. janúar 2011 er skattur á fjármagnstekjur 20%.
Framtal og álagning 2011
Barnabætur
Fjárhæðir barnabóta eru óbreyttar frá fyrra ári. Skerðing vegna tekna verður 3% með fyrsta barni
(var 2% áður), 5% með öðru barni og 7% með þremur börnum og fleiri. Þá eru greiðslur með hverju
barni yngra en 7 ára nú tekjutengdar en voru það ekki áður. Þær skerðast með hverju barni um 3%
af tekjum umfram 1.800.000 kr. hjá einstæðum foreldrum og 3.600.000 kr. hjá hjónum
og sambúðarfólki.
Vaxtabætur
Hámark vaxtabóta fyrir einhleyping verður 400.000 kr. (var 246.944 kr.), fyrir einstætt foreldri
500.000 kr. (var 317.589 kr.) og fyrir hjón/sambúðarfólk 600.000 kr. (var 408.374 kr.).
Til útreiknings vaxtabóta eru notuð vaxtagjöld samkvæmt reit 87 (og/eða 166) á framtali. Þau geta
þó ekki orðið hærri en 7% af eftirstöðvum skulda vegna íbúðarkaupa og að hámarki 800.000 kr.
hjá einhleypingi, 1.000.000 kr. hjá einstæðu foreldri og 1.200.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki.
Skerðing vegna tekna verður 8% af tekjustofni (var 6%).
Vaxtabætur einhleypinga og einstæðra foreldra byrja að skerðast við nettóeign 4.000.000 kr.
(var 7.119.124 kr.) og falla niður þegar eignin nær 6.400.000 kr. (var 11.390.599 kr.).
Vaxtabætur hjóna og sambúðarfólks byrja að skerðast við nettóeign 6.500.000 kr.
(var 11.390.599 kr.) og falla niður þegar eignin nær 10.400.000 kr. (var 18.224.958 kr.).
Sérstök vaxtaniðurgreiðsla
Til viðbótar við hefðbundnar vaxtabætur kemur sérstök niðurgreiðsla vaxta
við álagningu opinberra gjalda árin 2011 og 2012.
Vaxtaniðurgreiðslan er 0,6% af skuldum vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota, þó að hámarki
200.000 kr. hjá einhleypingi og 300.000 kr. fyrir hjón, sambúðarfólk og einstæða foreldra.
Niðurgreiðslan og vaxtabætur getur ekki orðið hærri en vaxtagjöld ársins.
Vaxtaniðurgreiðslan er ekki tekjutengd, en skerðist miðað við eignir.
Skerðing hjá einstaklingi byrjar við nettóeign 10.000.000 kr. og fellur niður þegar eignin nær
20.000.000 kr. Skerðing hjá hjónum, sambúðarfólki og einstæðum foreldrum byrjar við nettóeign
15.000.000 kr. og fellur niður þegar eignin nær 30.000.000 kr.
Vaxtaniðurgreiðsla er greidd út í tvennu lagi, 1. maí og 1. ágúst.
Auðlegðarskattur
Á nettóeign einhleypings umfram 75 milljónir kr. og nettóeign hjóna umfram
100 milljónir kr. er lagður 1,5% auðlegðarskattur.
Auðlegðarskattur er ekki lagður á félög.
Fjármagnstekjuskattur
Frítekjumark vegna vaxtatekna er 100.000 kr. á mann.
Frítekjumark vegna leigutekna manna af íbúðahúsnæði er 30% af leigutekjum.
Frítekjumark gildir ekki um arð, söluhagnað og leigutekjur af öðru en íbúðarhúsnæði.
Skattlagning lögaðila
Tekjuskattur hlutafélaga, einkahlutafélaga og samvinnufélaga verður 18% við álagningu 2011.
Tekjuskattur annarra lögaðila verður 32,7%.
Gildir það m.a. um sameignar- og samlagsfélög, þrotabú og dánarbú.
Allir vinna
Í framtali 2011 er veitt lækkun á tekjuskattsstofni manna vegna vinnu við endurbætur og viðhald
á íbúðar- og frístundahúsnæði til eigin nota. Frádrátturinn er 50% af vinnu, án vsk., þó að hámarki
200.000 kr. hjá einhleypingi og einstæðu foreldri og 300.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki.
Skilyrði er að sótt hafi verið um frádráttinn, með umsókn um endurgreiðslu
á virðisaukaskatti, fyrir 1. febrúar 2011 (sjá eyðublaðið RSK 10.18).
Nánari upplýsingar á www.rsk.is