Fréttatíminn - 07.01.2011, Blaðsíða 6
S óst er eftir starfs-kröftum Sense, dótt-urfélags Nýherja, í
Noregi og er útlit fyrir að
fyrirtækið verði á næst-
unni með alla þá starfs-
menn sem það má missa
úr landi þar ytra. Þrír fara
til að mynda út í næstu viku
til að tengja tæknibúnað í
höfuðstöðvum norska olí-
urisans Statoil sem verið er
að reisa í Stavanger, segir
framkvæmdastjórinn Er-
ling Ásgeirsson.
„Við reiknum með að
vera með starfsmenn ytra
meira og minna allt árið.
Hefðum við ekki þetta verk-
efni værum við að kroppa
í þau nokkur hér og þar,“
segir hann. „Funda- og
upplýsingakerfi, er það
síðasta sem sett er inn í ný-
byggingar. Á meðan allt var
á fullu blússi sáum við verk-
efni fram í tímann. Núna
veit ég ekki um nein stór
mannvirki sem verið er að
byggja, nema tónlistarhús-
ið Hörpu. Að því komum
við ekki og því má búast
við því að lítið sem ekk-
ert verði að gera í þessum
sérhæfðu verkefnum hér
heima næstu árin,“ segir
hann. „Þess vegna koma
verkefnin í Noregi sér vel
fyrir alla, bæði fyrirtækið
og starfsmenn.“
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
tækniþekking ÍSlenSk þekking eftirSótt utan landSteinanna
Senda alla út til Noregs sem þeir geta
Erling Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Sense, segir
íslenska tækniþekkingu
eftirsótta. Ljósmynd/Hari
a ð sögn Páls Hjaltasonar, for-manns skipulagsráðs Reykjavík-ur, hafa komið fram fjölmargar
ábendingar um að ýmislegt hafi farið úr-
skeiðis við þessa fyrirhuguðu andlitsupp-
lyftingu á Nönnutorgi.
„Ég hef meðal annars fengið á minn
fund íbúa í hverfinu sem var í áfalli yfir
því sem hann kallaði yfirgang borgar-
innar við þessa framkvæmd. Það er til
dæmis grafalvarlegt mál að breytingin
á torginu lukkaðist ekki betur en svo að
hún virðist hamla aðkomu slökkvibíla.
Það liggur fyrir að þetta þarf að sjálf-
sögðu að lagfæra,“ segir Páll.
Nönnutorginu var breytt síðasta
nönnutorg liStræn innSetning, geymSluStaður eða hönnunarSlyS?
Bekkirnir á Nönnutorgi virðast fremur eiga að koma í veg fyrir að bílum sé lagt á torgið en þjóna þreyttum vegfarendum. Ljósmynd/Hari
Merkjagerðarmenn borgarinnar
reyna að útskýra hvaða mann-
virki þetta er við mót Nönnugötu,
Baldursgötu og Óðinsgötu.
Víti til varnaðar
Viðamiklar endurbætur á torginu á mótum Nönnugötu, Óðinsgötu og Baldursgötu eru svo misheppn-
aðar að ekki þykir annað fært en að gjörbreyta núverandi hönnun þess.
sumar í kjölfar íbúakosninga á
netinu. Verklýsingin var að fækka
bílastæðum, koma fyrir blómakerj-
um, bekkjum og ruslastömpum.
Kosningin var hluti af svokölluðu
Lýðræðisverkefni fyrri meirihluta í
borgarstjórn.
Eftir breytingarnar á torginu
hafa staðið þar í einni bendu og
á örfáum fermetrum sjö bekkir,
sem gætu á góðum degi rúmað
í kringum þrjátíu manns í sæti.
Svæðið hefur fyrir vikið litið út
eins og geymslustaður fyrir um-
frambekki borgarinnar eða jafnvel
listræn innsetning. Hvorugt er þó
raunin, að sögn Páls.
„Þetta gerðist ekki á okkar vakt.
Þetta var eitt af þeim verkefnum
þar sem framkvæmdir voru keyrð-
ar áfram þrátt fyrir meirihluta-
skiptin. Í raun er framkvæmdin
í hnotskurn nákvæmlega eins
og við viljum ekki gera hlutina.
Íbúar vildu lagfæringar á torginu,
en höfðu ekkert um það að segja
hvernig þær voru útfærðar. Þetta
er okkur víti til varnaðar.“
Að sögn Páls verða breytingarn-
ar á nýju útliti Nönnutorgs settar í
opna samkeppni. Sama gildir um
fyrirhugaðar breytingar á Óðins-
torgi, Vitatorgi, Lækjartorgi og
Ingólfstorgi, svo nokkur önnur
dæmi sé til tekin úr miðbænum. -jk
www.skjargolf.is
GOLFKORTIÐ VEITIR
40% AFSLÁTT
AF GOLFVÖLLUM UMHVERFIS ÍSLAND
AUK ANNARRA GLÆSILEGRA FRÍÐINDA
TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT STRAX!
6 fréttir Helgin 7.-9. janúar 2011