Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.01.2011, Blaðsíða 55

Fréttatíminn - 07.01.2011, Blaðsíða 55
tíska 55Helgin 7.-9. janúar 2011 Feðgarnir David og Romeo Beckham eru á listanum yfir þrjátíu best klæddu karlmenn Bretlands í breska herra- blaðinu GQ. Romeo Beckham, sem er aðeins átta ára, er sá langyngsti á listanum en hann þykir hafa afburðanef fyrir tísku þrátt fyrir ungan aldur. Hann þykir vera óhræddur við að gera tilraunir, passar upp á litasamsetningar og sérfræð- ingar eru ekki í vafa um að hann verði framtíðarstjarna. Sá sem varð hlutskarpastur var leikarinn Aaron Johnson, sem sló í gegn í myndinni Kick Ass. Hann velti Twilight- hjartaknúsaranum Robert Pattinson úr sessi sem sá best klæddi. Leikarinn góðkunni Mel Gibson, sem má muna sinn fífil fegri, var valinn sá verst klæddi.  tíska Best klæddu karlmenn Bretlands Beckham-feðgar á meðal best klæddu Mel Gibson þarf að breyta um stíl. Aaron Johnson þykir vera sá flottasti.Beckham-feðgarnir David og Romeo kunna að klæða sig. Gossip Girl-stjarna andlit Chanel Leikkonan Blake Lively, sem er best þekkt fyrir að leika Serenu í Gossip Girl- þáttunum vinsælu, hefur landað einu af stærstu verkefnunum í tískubransanum. Hún verður andlit Chanel Mademoiselle- tasknanna. Karl Lagerfeld, aðalhönn- uður Chanel, er mikill aðdáandi Lively og hefur tröllatrú á stúlkunni. „Hún er þessi dæmigerða bandaríska draumastúlka. Hún á eftir að verða frábær leikkona,“ sagði Lagerfeld. Blake Lively hefur í nokkur ár þótt eitt mesta tískutáknið í Bandaríkjunum og þykir það ekki síður gott fyrir Chanel að hafa náð að landa þessari fyrirmynd margra ungra kvenna. Victoria Beckham á forsíðu Vogue Kryddpían Victoria Beckham mun prýða forsíðu febrúar- heftis ensku útgáfunnar af tískublaðinu Vogue. Þetta er í sjötta sinn sem tískudrottn- ingin er á forsíðu þar. Í blaðinu má lesa ítarlegt viðtal við hana þar sem hún segir meðal annars frá því hvernig fatastíll hennar hefur breyst eftir að hún varð vinsæll fatahönnuður sjálf. Þá segir hún frá því í við- talinu hvernig er að vakna upp við hliðina á David Beckham á hverjum morgni og vilja margir lesendur vafalítið fá að vita það.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.