Fréttatíminn - 11.02.2011, Blaðsíða 38
M örgum þykir það skjóta skökku við hve marga háskóla er að finna á landinu. Þó eru
flestir sammála um nauðsyn þess að
hafa háskólastarf hér á landi. Hitt er svo
annað mál hversu umfangsmikið það
starf skuli vera og hvernig ríkið eigi
að koma að því. Eitt hlutverk háskóla-
starfs á Íslandi er að hlúa að menningar-
arfi, og því er nauðsynlegt að halda
úti námsleiðum er varða íslensk fræði,
bókmenntafræði, sögu og þess háttar.
Annað hlutverk er að þjálfa fólk til starfa
og því er eðlilegt að boðið sé upp á
kennslufræði, lögfræði, hjúkrun, verk-
og tæknifræði og fleira af því tagi. Síð-
ast en ekki síst ber að nefna rannsóknir
og nýsköpun. Grunnmenntun í háskóla
er almennt starfsmenntun, undirbún-
ingur fyrir frekara nám, eða hugsuð til
þess að auðga andann. Rannsóknarhlut-
inn er hins vegar beintengdur framhaldsnámi.
Raunhæft markmið fyrir íslenskt háskólasamfélag er
að bjóða upp á staðgóða grunnmenntun og gott fram-
haldsnám á afmörkuðum sviðum. Þá er einnig mikil-
vægt fyrir samfélagið að fjölbreytileiki sé sem mestur.
Það kann ekki góðri lukku að stýra að kynslóð eftir
kynslóð læri við sama heygarðshornið. Hvað grunn-
menntunina varðar má vera ljóst að ríkisháskóli hlýtur
að sinna þeim sviðum sem fáir nemendur sækja í, en
talin eru nauðsynleg. Hins vegar eru
til þau svið sem eru mjög vinsæl, þar
sem rúm er fyrir fleiri en einn háskóla.
Þó að rekstrarleg hagkvæmni kunni
að vera minni heldur en ef aðeins einn
háskóli væri til staðar (sem þó er ekki
alveg víst), þá getur verið að heilbrigð
samkeppni og mismunandi nálgun
kennslustofnana sé til hagsbóta. Annar
kostur væri að hafa sjálfstæðari skóla.
Til dæmis mætti hugsa sér sérstakan
tækniháskóla. Þannig væri hægt að
stuðla að þeim sveigjanleika sem vill oft
týnast í stórum ríkisstofnunum.
Hvað framhaldsnám áhrærir er aug-
ljóst að þar eru aðstæður allt aðrar.
Í fyrsta lagi er ástæða til að hvetja
sem flesta sem tök hafa á til að fara í
framhaldsnám til útlanda, og að auka
hlutfall erlendra nemenda og kennara
hér á landi. Í öðru lagi eru mun færri
í framhaldsnámi en grunnnámi og menntunin hlut-
fallslega dýrari. Því er nauðsynlegt að framhaldsnám
í landinu sé samstillt og þeim sviðum sem skara fram
úr gert hátt undir höfði. Nýta þarf krafta allra þeirra
háskólamanna sem skila árangri. Til þess þurfa yfir-
völd menntamála að þrýsta á raunverulegt og skilvirkt
samstarf um framhaldsnám, jafnframt því að hvetja til
samkeppni milli fræðasviða með breyttri fjármögnun
rannsóknarstyrkja. En það er efni í aðra grein.
30 viðhorf Helgin 11.-13. febrúar 2011
Austurströnd 3, 170 Seltjarnarnesi. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri:
Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsinga-
stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Fært til bókar
David hefur sýnt okkur þetta allt
Þeir sem fylgst hafa með frábærum dýra-
lífsþáttum Davids Attenborough í Sjón-
varpinu kannast vel við þann mikla slag
sem verður þegar öflugt ungt karldýr
ræðst á þann karl sem farið hefur fyrir
hjörðinni og leitt hana. Slagurinn er harður
og blóðugur. Á meðan foringi hjarðarinnar
er nógu öflugur hafa þeir ungu ekkert í
hann að gera. Hann hrekur þá brott og
situr áfram að sínu. Þar kemur þó að
sá gamli verður að láta í minni pokann.
Öflugra yngra karldýr reynist sterkara
og rekur hið eldra á brott. Hjörðin fylgir
hinum nýja foringja. Sá gamli vafrar á
brott og hristir blóðugan hausinn. Með
slíkum brottrekstri eldra forystudýrs hefur
þjóðin fylgst undanfarna daga þótt um
mannskepnur sé að ræða. Sá yngri lætur
til skarar skríða. Það er allt undir. Sá gamli
tekur fast á móti og lætur sig ekki fyrr en í
fulla hnefana. Eðlið er hið sama hver sem
dýrategundin er. David hefur sýnt okkur
þetta allt í sjónvarpinu.
Að „vgreiða“
Þótt prentvillur séu hvimleiður fylgifiskur
textaskrifa geta þær engu að síður verið
skemmtilegar. Vefur DV var fyrr í vikunni
að velta fyrir sér örlögum þeirra þing-
manna Sjálfstæðisflokksins sem gengu
úr skaftinu við afgreiðslu á Icesave-mál-
inu í síðustu viku. Þar var fullyrt að þeir
myndu lenda úti í kuldanum hjá Bjarna
Benediktssyni flokksformanni. „Víst er að
frami uppreisnarfólksins verður ekki mikill
ef Bjarni situr. Það mun því verða hagur
þeirra að fella formanninn hið fyrsta,“
sagði þar og voru nöfn Birgis Ármanns-
sonar og Sigurðar Kára Kristjánssonar
nefnd sérstaklega en þeir sátu m.a. hjá við
atkvæðagreiðsluna. Unnur Brá Konráðs-
dóttir var sú eina sem greiddi atkvæði
gegn hinum nýja samningi eða „vgreiddi“
eins og DV-vefurinn sagði. Hrós Stein-
gríms J. Sigfússonar, formanns VG, í garð
Bjarna Benediktssonar fór fyrir brjóstið
á mörgum sjálfstæðismanninum og ein-
hvern veginn náði vg-ið inn í frásögnina af
greiðslu þessa atkvæðis Unnar Brár.
Íbúar Reykjavíkur standa frammi fyrir
umtalsverðum niðurskurði í skólamál-
um. Engin leið er fram hjá því að það
verði sársaukafull og erfið aðgerð. Sparn-
aður af þessari stærðargráðu næst aldrei
án þess að það komi illa við einhverja.
Hingað til hafa þeir látið hæst í sér heyra
sem tengjast tónlistarskólum borgarinn-
ar. Þeim finnst gengið harðar að sér en
öðrum. Það er reyndar klassískt sjónar-
mið. Þeir sem verða fyrir niðurskurði sjá
alltaf meiri og betri sparnaðartækifæri
hjá öðrum en sjálfum sér.
Staðan er hins vegar sú að
Reykjavíkurborg er blönk.
Þetta sameiginlega fyrir-
tæki borgarbúa ræður illa
við þau útgjöld sem á það
eru lögð. Það er ekki annað
í boði en að finna leiðir til að
nýta þá fjármuni sem eru til
skiptanna á annan hátt en
tíðkast hefur.
Krafa borgarbúa hlýtur óhjákvæmilega
að vera sú að peningarnir, sem þeir leggja til
samneyslunnar, fari þangað sem flestir njóta
þeirra. Tónlistarnám fellur því miður ekki í
þann flokk.
Tölurnar tala sínu máli. Meðalútgjöld
borgarinnar á hvern tónlistarnema hlaupa
á hundruðum þúsunda króna. Nemi í söng-
námi kostar til dæmis á fimmta hundrað
þúsund króna á hverju ári. Og framhalds-
nemendur í tónlistarnámi eru ennþá dýrari.
Stuðningsfólk tónlistarskólanna hefur
gjarna bent á að borgin greiði margfalt meira
til íþrótta en tónlistarkennslu. Staðreyndin
er þó sú að kostnaður við niðurgreiðslu á
íþróttaiðkun reykvískra ungmenna er um
það bil einn tíundi af kostnaði við hvern tón-
listarnema, sé miðað við höfðatölu. Óþarfi er
að deila um hvorum megin peningunum er
betur varið.
Hinn sígildi metingur milli lista og íþrótta
er hins vegar fjaðurvigtarmál í samanburði
við niðurskurðaráform í grunnskólum
borgarinnar. Það mál er á allt öðrum og
stærri skala.
Á síðasta ári kostaði rekstur grunn-
skólanna tæplega fimmtán milljarða króna.
Spara á ríflega 200 milljónir á þessu ári sam-
kvæmt áætlunum. Hagræðingartækifærin
eru örugglega á ýmsum sviðum. Sameina
má litla skóla, lækka stjórnunarkostnað og
fara í aðrar aðgerðir.
Hugmyndin er að þetta verði gert án þess
að það komi niður á gæðum námsins, sem
er metnaðarfullt markmið. Mildari sparn-
aðarkrafa myndi þó örugglega hjálpa til. Í
því samhengi er rétt að hafa í huga að borgin
hefur ekki nýtt sér þá leið að fara með út-
svarið í lögbundið hámark. Það er nú 13,2
prósent en má fara í 13,28 prósent. Með
þeirri hækkun fengjust um það bil 200 millj-
ónir króna.
Ef sú upphæð væri eyrnamerkt menntun
barnanna í borginni, má gera ráð fyrir að
góð sátt næðist um útsvarshækkun.
Niðurskurður í skólamálum
Börnin í borginni
Jón Kaldal
kaldal@frettatiminn.is
Í
Ágúst Valfells
dósent við tækni- og verkfræði-
deild Háskólans í Reykjavík
Mismunandi hlutverk
Íslenska háskólasamfélagið
Krafa borgarbúa hlýtur óhjákvæmilega að vera sú að
peningarnir, sem þeir leggja til samneyslunnar, fari þang-
að sem flestir njóta þeirra. Tónlistarnám fellur því miður
ekki í þann flokk.
TÍBRÁ – tónleikaröð Salarins auglýsir
eftir umsóknum fyrir starfsárið 2011-2012
Eftirfarandi þarf að fylgja umsóknunum:
Ferilskrá(r)
Efnisskrá
Myndir af flytjendum
Símanúmer og netföng
Upplýsingar um óskatíma flytjenda
Búðu þig undir
að koma fram í Salnum!
salurinn.is
Umsóknir sendist á
salurinn@salurinn.is
merkt TÍBRÁ 2011-2012.
Valið er úr umsóknum og
verður öllum svarað að
því loknu.
Umsóknarfrestur er
til 1. mars 2011.
Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík
S: 58 58 900 - www.jarngler.is
Nýtt Nýtt !!! Vorum að fá sendingu frá FABRIANO
gæða teikni-,vatnslita-,akríl-,olíu-pappír í örkum, og
blokkum. Einnig teikni-og vatnslita pappír í rúllum.