Fréttatíminn - 11.02.2011, Blaðsíða 56
48 tíska Helgin 11.-13. febrúar 2011
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Eykur og styrkir
heilsuna
Óteljandi rannsóknir hafa verið gerðar á hreyf-
ingu. Margar spurningar hafa verið lagðar fram
og enn fleiri svör. Í flestum tilvikum, ef ekki
öllum, hafa niðurstöðurnar reynst jákvæðar.
Niðurstöður hafa sýnt fram á að við græðum á
hreyfingu á öllum sviðum. Líkamlega, andlega og
félagslega.
Alveg frá upphafi mannkynsins hefur hreyfing
verið ein af grunnþörfum okkar en eftir því sem
leið á upplýsingaöldina fór þetta allt að dragast
saman. Nú á 21. öldinni þarf oftast mikinn metnað
og ákefð til þess halda við hreyfingunni og því
miður eru ekki allir sem finna þann kraft. Það er
ekki sjálfsagt að öllum falli vel við líkamsræktar-
stöðvar. Langt í frá. Það er mikilvægt að við
finnum það sem hentar okkur best og sinnum því
af einstakri löngun.
Ungt fólk á erfitt með að draga sig inn í rútínu
sem krefst líkamlegra átaka. Þægindin eru í
fyrrarúmi. Kókið í hægri og tölvan í þeirri vinstri.
Það verður alltaf fyrir valinu. Löng nótt með tölv-
una fyrir framan sig og snooz-takkinn ofnotaður
morguninn eftir. Lítið sem ekkert hugsað um
mataræðið og líkaminn er notaður sem ruslafata
skyndibitastaðanna. Ætli meðalaldur Vestur-
landabúa fari ekki lækkandi með árunum?
Fleiri rannsóknir hafa sýnt fram á það að hreyfing
eykur og styrkir andlega heilsu. Svefninn kemst
í fastar skorður og mataræðið er ósjálfrátt tekið í
gegn. Það eru margir sem geta tekið undir þessa
staðreynd þeirra fræðimanna sem vinna hörðum
höndum að því að fullvissa komandi kynslóðir.
Það er mikilvægt að við hugsum vel um líkama
okkar. Því miður er ekki hægt að hafa líkama eftir
pöntun og við þurfum því að hlúa vel að honum og
halda honum þannig að okkur líki við hann.
Miðvikudagur
Skór: Kaupfélagið
Buxur: Original
Peysa: H&M
Fimmtudagur
Skór: Monki
Leggings: Selected
Kjóll: Lindex
Jakki: H&M
Dökkir litir á veturna
Gurrý Jónsdóttir er tuttugu ára og stundar snyrtifræðinám í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti. Hún hefur mikinn áhuga á öllu sem tengist líkamsrækt,
tísku og tónlist og finnst ekkert skemmtilegra en að ferðast. „Ég klæði mig
helst í það sem mér finnst flott; er ekki mikið að spá í aðra í kringum mig. Ég
tek þó eftir því hvernig aðrir klæða sig og pæli í því. Stíllinn minn er rosalega
einfaldur. Ég er mjög dökkklædd á veturna, geng helst í gráu eða svörtu. Á
sumrin bæti ég jafnvel einhverjum litum við. Mín helsta fyrirmynd þegar kemur
að tísku er leikkonan Eva Longoria. Mér finnst hún alltaf rosalega flott. Fötin
sem ég klæðist kaupi ég mest í H&M og skóna í Kaupfélaginu. Uppáhaldsbúðin
mín er þó Armani Exchange í New York. Við kærastinn minn kláruðum þá búð
um daginn. Ég hreinlega elska hana!
Mánudagur
Hálsmen: Armani Exchange
Skór: Kaupfélagið
Buxur: Sautján
Bolur: Armani Exchange
Peysa: Armani Exchange
Þriðjudagur
Skór: Fókus
Samfestingur: H&M
Hundrað prósent
náttúrulegar
Youngblood-förðunarvörurnar eru
nýkomnar til landsins. Þær eru
hundrað prósent náttúrulegar,
olíulausar og án allra kemískra
efna. Vörurnar eru án ilm- og
rotvarnarefna og þær halda
húðinni opinni. Þær hafa þann
eiginleika að anda í gegnum
húðina og skapa létta áferð
sem hylur roða og litabreytingar
í húðinni. Farðinn er fyrir allar húð-
tegundir og sérstaklega fyrir viðkvæma húð.
Förðunarlínan hefur farið vel af stað í Evrópu og það
stefnir í að hún nái gríðarlegum vinsældum hér á landi.
Nú í byrjun febrúar hófst sala á förðunarvörunum í
Hagkaupi í Smáralind.
Marley hannar
fatnað fyrir Ól-
ympíuleikana
Í vikunni tilkynnti fyrirtækið Puma,
sem sér um landsliðsbúningana fyrir
Jamaíku, að Cedella Marley, elsta
dóttir Bobs Marley, myndi hanna
íþróttabúningana fyrir þá keppendur
sem halda á Ólympíuleikana 2012.
Cadella segir þetta vera mikinn
heiður, ekki síst að fá að klæða fótfrá-
asta mann í veröldinni, Usian Bolt.
Cadella er enginn byrjandi þegar
kemur að hönnun á íþróttafatnaði.
Hún rekur verslunina Catch a Fire,
sem er nefnd eftir einni af plötum
Bobs Marley, þar sem hún selur sér-
hannaðan íþróttafatnað fyrir konur.
5
dagar
dress
Föstuagur
Skór: Kaupfélagið
Buxur: Vero Moda
Bolur: H&M
Klútur: H&M
Vesti: Armani Exchange
Frískar og endurnærir á áhrifa
ríkan hátt, dregur úr þreytu
merkjum og hrukkum í kringum
augun. Inniheldur Q10 leyndar
málið sem finnst náttúru lega í
húðinni og vinnur gegn hrukkum.
Nivea Q10 aNti-wriNkle
aUGNrOller
NÝtt!