Fréttatíminn - 11.02.2011, Blaðsíða 59
Á hljómgrunnur.is er að finna að-
gengilegt yfirlit yfir tónlistarviðburði
sem eru fram undan. Rokk, djass,
popp, klassík og allt þar á milli.
dægurmál 51Helgin 11.-13. febrúar 2011
Föstudagur 11. Febrúar
Gréta Salóme
Café rósenberg kl. 22
Gréta Salóme blæs til tónleika
ásamt 15 manna fylgdarliði .
Auk Grétu koma meðal annars
fram Varsjárbandalagið, Erik
Quick, Ásgeir Ásgeirsson, Birgir
Kárason, Birgir Bragason og
Stefán Henrýsson. Aðgangur
1.500 kr.
XXX ROTTWEILER
sódóma reykjavík kl. 22
XXX ROTTWEILER taka fram
míkrafóna og aðrar græjur.
Sveitt kvöld í vændum.
Laugardagur 12. Febrúar
KK
tjarnarbíó kl. 20.30
KK kemur fram einn og
óstuddur, en það er langt síðan
KK hefur haldið tónleika með
þeim hætti. Hann ætlar að flytja
blöndu af lögum frá ferli sínum
sem hefur staðið yfir í um 25 ár.
Aðgangur 2.500 kr.
GLYMSKRATTINN — VAGG-
ANDI & VELTANDI
sódóma reykjavík kl. 22
X97.7, Wildcat Vintage,
Reykjavík Ink og Tuborg bjóða
til rockabilly kvölds þar sem
koma fram: The 59’s, Langi Seli
& Skuggarnir, Blues Willis, Arnar
Ingi (The Johnny Cash Kid) og
DJ Óli Dóri. Að auki verður
rockabilly verslun á staðnum.
Aðgangur 1.000 kr.
sunnudagur 13. Febrúar
Frakkland/Ítalía — Sinfóníu-
hljómsveit áhugamanna
seltjarnarneskirkja kl. 17
Hljómsveitin leikur Pavön eftir
Ravel og Fauré, Ancient Airs &
Dances eftir Respighi og Gítar-
konsert nr. 1 eftir Castelnuovo-
Tedesco. Einleikari er Þórarinn
Sigurbergsson og stjórnandi:
Oliver Kentish. Aðgangur 2.000
kr. og 1.000 kr. fyrir nemendur
og eldri borgara.
B essastaðabækur Gerðar Kristnýjar – Ballið á Bessastöðum
(2007) og Prinsessan á Bessastöð-
um (2009) – hafa alveg farið fram
hjá mér og krökkunum mínum,
kannski
vegna yfir
þyrmandi
áhugaleys
is lesara á
tignarfólki.
Því vissum
við ekkert
við hverju
var að búast þegar við mættum á
leikritið, en vorum sko alls ekki
svikin því leikritið er fjörugt og
skemmtilegt, litríkt og hressandi.
Söguþráðurinn er nú kannski
ekki neitt svakalega margslung
inn. Á Bessastöðum situr forsetinn
og stritar við að svara bréfum, sem
póststrákur á hjólabretti hrúgar á
hann. Forsetinn er með þrjá ritara
og ráðskonu sér til aðstoðar. Er
lendur kóngur og drottning koma í
heimsókn og með þeim barnabarn
ið, prinsessan. Kóngafólkið vill
skoða Ísland en prinsessan nenn
ir því ekki svo að hún fær að vera
á Bessastöðum. Þá fer ráðskonan
í brúðkaup úti á landi. Hún hefur
bakað forláta kransaköku til að taka
með í veisluna, sjálfa brúðkaupstert
una. Kakan verður óvart eftir svo að
forsetinn og prinsessan leggja upp í
langferð til að koma henni til skila.
Eflaust er farið mun dýpra í þetta
allt í bókunum, en í leikritinu virk
ar söguþráðurinn eins og hálfgerð
afsökun fyrir alls konar skemmti
legum senum með gríni og glensi
og söng. Líklega nær maður betra
sambandi við verkið hafi maður les
ið bækurnar. Stundum lætur Gerð-
ur persónurnar segja eitthvað spak
legt sem fær fullorðna til að brosa í
kampinn, en aðallega er þó keyrt á
góðu og einlægu stuði á þessu balli.
Forsetinn er viðkunnanlegur ná
ungi og ég myndi eflaust kjósa hann
ef hann byði sig fram í alvörunni.
Hann er fyndnastur allra í leikritinu
og Jóhannes Haukur Jóhannes-
son leikur hann af öryggi og krafti.
Fyrst heldur maður að prinsessan,
sem Þórunn Arna Kristjánsdótt-
ir leikur sannfærandi, sé frekjudós,
en þegar allt kemur til alls er hún
bara sveitastúlka á rangri hillu.
Gamall bakaradraugur, sem Kjart-
an Guðjónsson rúllar upp, flæk
ist um forsetabústaðinn og skelfir
yngstu börnin í fyrstu, en er fljótur
að breytast í krútt. Önnur hlutverk
eru minni og tekin föstum tökum.
Nett hljómsveit er alltaf á sviðinu
og það er mjög flott og virðingarvert
að boðið skuli vera upp á lifandi tón
listarflutning. Leikmynd og búning
ar eru bjartir, glaðlegir og virkilega
smart, og svo ganga leikararnir út
um allan sal, sem er alltaf skemmti
legt trix.
Bragi Baggalútur semur lög og
texta í samvinnu við Gerði. Nokkrir
raktir smellir eru í verkinu: lokatitil
lagið sem gestir syngja hástöfum
þegar þeir koma út, Bréfalagið og
Fagrar litlar diskókýr, sem eru flótta
kýr af Diskóeyjunni. Lögin hafa ver
ið gefin út og standa vel ein og sér.
Mér fannst skemmtilegt og
krökkunum fannst rosagaman.
Þau voru sammála um að hápunkt
ur sýningarinnar hefði verið þegar
beljan Lilja skeit. Það er náttúrlega
bara á allra bestu böllum sem beljur
skíta á sviðið! Dr. Gunni
Ballið á Bessa-
stöðum
Eftir Gerði Kristnýju og Braga
Valdimar Skúlason
Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir
Þjóðleikhúsið
leikdómur Ballið á Bessastöðum
Gott stuð ballinu á