Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.02.2011, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 11.02.2011, Blaðsíða 8
Vinsælustu kiljurnar Utangarðsbörn „… spennuþrungið verk … sagan heldur athygli lesandans allt til enda.“ Kolbrún Bergþórsdóttir / Morgunblaðið Prjónaklúbburinn „Frábær bók – lestu hana núna.“ Glamour Kiljulisti 02-08.02.11 Kiljulisti 02-08.02.11 L andsdómur kom saman í fyrsta skipti síðdegis í gær, fimmtudag, í húsakynnum Hæstaréttar. Um var að ræða undirbúningsfund en ekki eiginlegt þinghald. Samkvæmt stjórnarskrá fer dómurinn með og dæmir mál sem Alþingi ákveður að höfða gegn ráðherr- um út af embættisrekstri þeirra en á liðnu hausti ákvað meirihluti Alþingis að höfða mál gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir meinta vanrækslu í starfi í aðdraganda efnahagshrunsins hér á landi. Lög um landsdóm voru fyrst sett árið 1905 en endur- skoðuð 1963. Í dómnum sitja 15 menn, átta kjörnir af Alþingi, fimm hæstaréttardómarar sem hafa lengstan starfsaldur, dómstjórinn í Reykjavík og prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands. Forseti Hæsta- réttar er forseti landsdóms. Alþingi kaus sína fulltrúa í landsdóm síðast 11. maí árið 2005 en kosning átta aðalmanna og jafnmargra varamanna er til sex ára. Aðalmenn voru kosnir Linda Rós Michaelsdóttir kennari, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, Sigrún Magnúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæsta- réttarlögmaður, Fannar Jónasson viðskiptafræðingur, Hlöðver Kjartansson hæstaréttarlögmaður, Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður og Brynhildur Fló- venz, dósent við lagadeild HÍ. Varamenn voru kosnir Ástríður Grímsdóttir sýslu- maður, Lára V. Júlíusdóttir, lögmaður og formaður bankastjórnar Seðlabankans, Már Pétursson hæsta- réttarlögmaður, Sveinbjörn Hafliðason lögfræðingur, Björn Jóhannesson héraðsdómslögmaður, Magnús Embættismissir, sektir eða fangelsi L andsdómur hefur ekki verið kallaður saman fyrr en í máli Geirs H. Haarde þótt lög um dóminn hafi verið sett árið 1905 og endurskoðuð 1963. Lands- dómi er gert að dæma í mál- um sem falla undir lög um ráðherraábyrgð. Ráðherra ber ekki einungis pólitíska ábyrgð gagnvart kjósend- um heldur einnig lagalega ábyrgð og getur skapað sér refsiábyrgð ef hann brýtur gegn stjórnskipunarlögum landsins eða öðrum lögum. Hið sama gildir ef hann mis- beitir stórlega valdi sínu eða framkvæmir nokkuð eða veldur því að framkvæmt sé nokkuð sem stofnar heill ríkisins í fyrirsjáanlega hættu. Brot gegn þessum lögum varða embættismissi, sektum eða fangelsi allt að tveimur árum og eru dómar landsdóms fullnaðardómar sem verður ekki áfrýjað. Embættismissir á augljós- lega ekki við í tilfelli Geirs en hann lét af ráðherraemb- ætti snemma árs 2009. -jh Einn dómar- aranna við landsdóm, Vilhjálmur H. Vil- hjálmsson hæstarétt- arlögmaður, mætir í hús Hæstaréttar í gær. Lög um landsdóm voru fyrst sett árið 1905 en endurskoð- uð 1963.  ráðherraábyrgð MáLið gegn geir h. haarde Dómarar milli þrítugs og sjötugs Dómarar við landsdóm verða að uppfylla eftirfarandi skilyrði: aVera milli þrítugs og sjötugs. aVera lög- og fjárráða. aHafa óflekkað mannorð. aEiga heima á Íslandi. aVera ekki alþingismenn eða starfsmenn í tjórnarráðinu. aVera ekki skyldir öðrum dómanda í fyrsta eða annan lið. Reynir Guðmundsson bæjar- fulltrúi, Jónas Þór Guðmunds- son (sem kosinn var 30. nóvember 2009) og Sigrún Benediktsdóttir lögmaður. Þeir fimm hæstaréttardómarar sem lengstan starfsaldur hafa eru Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen, Ingibjörg Benediktsdóttir, forseti Hæstaréttar – og þar með lands- dóms, og Markús Sigurbjörnsson. Árni víkur sæti og tekur Viðar Már Matthíasson sæti í dómnum í hans stað. Aðrir hæstaréttardómarar með lengri starfsaldur en Viðar Már lýstu yfir vanhæfi. Dómstjórinn í Reykjavík er Helgi I. Jónsson. Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti, tekur ekki sæti í landsdómi. Hennar sæti tekur Benedikt Bogason, dósent við lagadeild HÍ. Dögg Pálsdóttir hefur greint frá því í bréfi að hún hafi setið sem varamaður Geirs H. Haarde á þingi og víkur því sæti. Við tekur Ástríður Grímsdóttir sýslumaður. Þá er Jóna Valgerður Kristjánsdóttir vanhæf vegna aldurs. Magnús Reynir Guðmundsson tekur hennar sæti en varamenn á undan honum lýstu yfir vanhæfi, þau Lára V. Júlíusdóttir vegna persónulegra tengsla við Geir og Sveinbjörn Hafliðason vegna aldurs, að sögn Þorsteins A. Jóns- sonar, ritara landsdóms. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Garðar Gíslason hæstaréttar- dómari. Gunnlaugur Claessen hæstaréttar- dómari. Markús Sigurbjörnsson hæstaréttar- dómari. Ingibjörg Benediktsdóttir hæstaréttar- dómari og forseti landsdóms. Viðar Már Matthíasson hæstaréttar- dómari. Linda Rós Mikaelsdóttir kennari, valin af Alþingi af hálfu A-lista þáverandi stjórnarflokka, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks. Sigrún Magnúsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, valin af Alþingi fyrir hönd A-lista. Fannar Jónsson viðskiptafræð- ingur, valinn af Alþingi fyrir hönd A-lista. Hlöðver Kjartansson hæstaréttarlög- maður, valinn af Alþingi fyrir hönd B-lista. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæsta- réttarlögmaður, valinn af Alþingi fyrir hönd B-lista, þáverandi stjórnarandstöðu- flokka, Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslynda flokksins. Brynhildur Flóvenz dósent við lagadeild HÍ, valin af Alþingi, valin af hálfu B-lista. Magnús Reynir Guðmundsson fyrrverandi bæjar- fulltrúi, valinn af Alþingi af hálfu B-lista. Ástríður Grímsdóttir sýslumaður, valin af Alþingi af hálfu A-lista. Helgi I. Jónsson dómstjóri í Reykjavík. Benedikt Bogason dósent við lagadeild HÍ. Landsdómur kom saman í fyrsta sinn Fimmtán menn sitja í dómnum en Alþingi kýs átta þeirra. Fimm hæstaréttardómarar sitja einnig í dómnum. Landsdóm skipa 15 dómarar Lj ós m yn d H ar i 8 fréttir Helgin 11.-13. febrúar 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.