Fréttatíminn - 11.02.2011, Blaðsíða 12
F
jöldi þrotabúa á Íslandi
hefur margfaldast á undan-
förnum árum. Að skipta upp
búum er orðið að hundraða
milljóna króna bransa sem
lögmenn sækja í. Og flestir
vilja meira. Úttekt Fréttatímans á fjölda
þrotabúa sem skipt var á árinu 2010 leiðir í
ljós að alls var 1.001 bústjóri skipaður yfir
jafnmörg bú á landinu öllu. Alls skiptu 197
lögmenn með sér búunum. Í öllum búum
er svokölluð skiptatrygging sem er 250
þúsund krónur. Tryggingin er greidd af
skiptabeiðanda, það er þeim sem fer fram
á gjaldþrot, sem í nær öllum tilvikum eru
bankar eða innheimtustofnanir á vegum
ríkisins. Í langflestum tilvikum er um að
ræða eignalaus bú en eftir því sem Frétta-
tíminn kemst næst er það ekki nema eitt
prósent búa sem rýfur 250 þúsund króna
múrinn. Varlega áætlað má gera ráð fyrir
því að þrotabúabransinn á Íslandi hafi velt
um 350 milljónum króna árið 2010. Ljóst er
að flestir flá ekki feitan gölt af skiptastjórn
en þetta er góður aukapeningur og tryggar
tekjur sem lögmenn ásælast.
Það er ekki vandalaust eða óumdeilt að
skipa skiptastjóra yfir þrotabú. Héraðs-
dómur Reykjavíkur úthlutar langflestum
þrotabúum á ári hverju. Þar ræður ríkjum
héraðsdómarinn Jón Finnbjörnsson, sem
hefur útlutað búum undanfarin tvö ár. Jón
er, að sögn yfirmanns hans, Helga Jóns-
sonar, „farsæll og passasamur maður“
en hann er langt í frá óumdeildur innan
lögmannastéttarinnar. Jón er eiginmaður
Erlu S. Árnadóttur, hæstaréttarlög-
manns hjá Lex. Við vinnslu þessarar út-
tektar létu margir lögmenn þá skoðun
sína í ljós að Lex sæti nær kjötkötlunum en
Lögmenn
berjast um 350
milljóna króna
þrotabústekjur
Héraðsdómar á Íslandi skipuðu bústjóra yfir 1.001 þrotabúi á árinu 2010.
Tekjur af búskiptum nema hundruðum milljóna á ári hverju og hafa farið
vaxandi á undanförnum árum.
Lögmenn sem fengu úthlutað þrotabúum árið 2010
Pétur Kristinsson 18 Málflutningsstofa Snæfellsness
Andrés Valdimarsson 13 Andrés Valdimarsson
Þorsteinn Einarsson 13 Forum lögmenn
Jónas Rafn Tómasson 13 KPMG
Smári Hilmarsson 13 Legis ehf. lögfræðistofa
Guðrún Björg Birgisdóttir 13 Logia ehf.
Birgir Már Björnsson 12 Birgir Már Björnsson
Sveinn Andri Sveinsson 12 Lögfræðiskrifstofa Reykjavíkur
Benedikt Sigurðsson 12 Löggarður ehf.
Bjarni S. Ásgeirsson 12 Lögmenn Hafnarfirði
Erlendur Þór Gunnarsson 12 Opus lögmenn
Jón Haukur Hauksson 12 PACTA lögmenn/Lögheimtan
Einar Sigurjónsson 11 E. Sigurjónsson lögmannsstofa ehf.
Einar Hugi Bjarnason 11 ERGO lögmenn ehf.
Erla S. Árnadóttir 11 Lex lögmannsstofa
Þórdís Bjarnadóttir 11 Lögfræðimiðstöðin ehf.
Bragi Björnsson 11 Lögvörn ehf.
Berglind Svavarsdóttir 10 Acta lögmannsstofa
Jóhann Haukur Hafstein 10 ERGO lögmenn ehf.
Guðmundur H. Pétursson 10 GHP Lögmannsstofa ehf.
Helgi Jóhannesson 10 Lex lögmannsstofa
Sigurður I. Halldórsson 10 Lögmannsstofa Sigurðar I. Halldórssonar
Lúðvík Örn Steinarsson 10 Lögmál ehf.
Björgvin Jónsson 10 Lögmenn ehf.
Jónas Þór Guðmundsson 10 Lögmenn Strandgötu 25 ehf.
Börkur Hrafnsson 10 Lögvörn ehf.
Eggert B. Ólafsson 10 Reykjavík Legal slf.
Guðrún Helga Brynleifsdóttir 9 Lögfræðiskrifstofa Reykjavíkur
Sigurður Sigurjónsson 9 Lögfræðiþj. Sigurðar Sigurjónssonar hrl. ehf.
Magnús Guðlaugsson 9 Lögmál ehf.
Guðmundur Örn Guðmundsson 9 Sönn gildi ehf.
Guðni Á. Haraldsson 8 Advo ehf.
Grímur Hergeirsson 8 JP lögmenn
Sigurður Gizurarson 8 Lög og réttur ehf.
Helga Leifsdóttir 8 Lögfræðistofa Helgu Leifsdóttur
Ingi Tryggvason 8 Lögfræðistofa Inga Tryggvasonar ehf.
Christiane L. Bahner 8 Lögmannsstofa Christiane Leonor
Jón G. Briem 8 Lögmannsstofa Jóns G. Briem hrl.
Ágúst Þórhallsson 8 M10 ehf. Fyrirtækjaráðgjöf – Lögmannsstofa
Benedikt Ólafsson 8 Mandat lögmannsstofa
Margrét Gunnlaugsdóttir 7 Acta lögmannsstofa
Ingibjörg Björnsdóttir 7 Embla lögmenn
Birgir Tjörvi Pétursson 7 GHP Lögmannsstofa ehf.
Lilja Jónasdóttir 7 Lex lögmannsstofa
Jóhannes Albert Sævarsson 7 Lögfræðiskrifstofa Reykjavíkur
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson 7 Lögfræðiskrifstofa Reykjavíkur
Sigmundur Guðmundsson 7 Lögmannshlíð, lögfræðiþjónusta ehf.
Þórður H. Sveinsson 7 Lögmannsstofa Björns Líndal ehf.
Logi Egilsson 7 Lögmannsstofa Loga Egilssonar hdl. ehf.
Rúnar S. Gíslason 7 Lögmannsstofa Rúnars S. Gíslasonar
Eyvindur Sólnes 7 Lögmenn v/Austurvöll
Grímur Sigurðarson 7 Opus lögmenn
Tryggvi Guðmundsson 7 PACTA lögmenn/Lögheimtan
Baldvin Hafsteinsson 7 Tjónamat og skoðun ehf.
Grétar Hannesson 7 Vík lögmannsstofa
Ólöf Heiða Guðmundsdóttir 6 ADVEL lögfræðiþjónusta
Ómar Örn Bjarnþórsson 6 ERGO lögmenn ehf.
Halldór Jónsson 6 Jónsson & Harðarson ehf.
Tryggvi Agnarsson 6 Lagarök ehf. lögmannsþjónusta
Þorbjörg I. Jónsdóttir 6 Lagaþing sf.
Karl Jónsson 6 Lögafl lögmannsstofa
Bjarni Eiríksson 6 Lögmannsstofa Bjarna Eiríkssonar
Guðmundur Ómar Hafsteinsson 6 Lögmannsstofan Fortis ehf.
Ólafur Björnsson 6 Lögmenn Suðurlandi
Torfi Ragnar Sigurðsson 6 Lögmenn Suðurlandi
Stefán Bj. Gunnlaugsson 6 Lögmenn Thorsplani
Bergþóra Ingólfsdóttir 6 Mandat lögmannsstofa
Erla Skúladóttir 6 Málþing ehf.
Örlygur Hnefill Jónsson 6 Örlygur Hnefill Jónsson hdl.
Ásdís J. Rafnar 5 Ásdís J. Rafnar
Gunnhildur Pétursdóttir 5 Einar Gautur Steingrímsson hrl.
Stefán Geir Þórisson 5 Forum lögmenn
Guðbjörg Þorsteinsdóttir 5 Guðbjörg Þorsteinsdóttir lögfræðingur
Klemenz Eggertsson 5 Klemenz Eggertsson
Páll Kristjánsson 5 Kr.St. Lögmannsstofa ehf.
Jóna Björk Helgadóttir 5 Landslög
Arnar Þór Stefánsson 5 Lex lögmannsstofa
Guðmundur Ingvi Sigurðsson 5 Lex lögmannsstofa
Stefán Ólafsson 5 Lex lögmannsstofa
Unnar Steinn Bjarndal 5 Lögfræðistofa Suðurnesja
Þorsteinn Pétursson 5 Lögfræðistofa Þorsteins Péturssonar
Þuríður Halldórsdóttir 5 Lögfræðistofa Þuríðar Halldórsdóttur hdl.
Örn Höskuldsson 5 Lögmannsstofa Arnar Höskuldssonar hrl.
Árni Ármann Árnason 5 Lögmannsstofa Árna Ármanns Árnasonar
Jóhann Baldursson 5 Lögmannsstofa Jóhanns Baldurssonar hdl.
Helgi Jónsson,
dómstjóri
Héraðsdóms
Reykjavíkur.
L
jó
sm
yn
d/
H
ar
i
framhald á næstu opnu
12 úttekt Helgin 11.-13. febrúar 2011