Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.02.2011, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 11.02.2011, Blaðsíða 16
N afn Amy Chua hefur farið eins og eldur í sinu um barnalands- síður Bandaríkjanna, eftir að bókin hennar „Baráttusöngur tígrismömmunnar“ kom út. Þar tíundar Chua reglurnar sem hún sjálf hefur fylgt í uppeldi dætra sinna. Markmið hennar, fyr- ir hönd dætranna, er að þær skari fram úr og séu ávallt efstar í bekkn- um. Krafan um að dæturnar geri sitt besta er ófrávíkjanleg. Meira að segja afmæliskortið sem dótt- irin Lulu teiknaði handa mömmu sinni þótti Chua ófullnægjandi. „Þetta vil ég ekki sjá,“ sagði Chua við dóttur sína og krafðist þess að Lulu teiknaði nýtt kort og vandaði sig þá meira. Námsárangur ofar öllu Í stuttu máli snúast uppeldisaðferðir Chua um að skemmtun sem ekki skilar beinum framförum í náms- árangri er ekki leyfð. Dæturnar Sophia og Lulu, sem nú eru 18 og 15 ára, hafa ekki mátt fá vini í heim- sókn, tekið þátt í skólaleikritum eða fengið að gista hjá vinkonum sínum. Það þarf vart að taka það fram að tölvuleikir og sjónvarpsgláp eru bannorð. Eina tómstundaiðjan sem stúlkunum hefur staðið til boða – eða öllu heldur verið uppálag — er tónlistarnám á píanó eða fiðlu. Þar gildir sami járnaginn og ekki eins- dæmi að píanóæfingar nái sex tím- um á dag. Um árangurinn þarf enginn að efast. Dætur Chua eru fyrirmyndar- námsmenn og Sophia er í fremsta f lokki hljóðfæraleikara á sínum aldri. Mörgum Bandaríkjamönn- um hefur hins vegar blöskrað hvað Chua er til í að leggja á dætur sínar til að þvinga þær í fremstu röð. Bandarísk linkind, kínversk harka Amy er sjálf hneyksluð á vestrænum foreldrum, sem eru að hennar mati allt of eftirlátssamir. Í heimi þar sem aðeins þeir bestu ná árangri er sjálfsagi og elja besta veganestið — og þetta læra börnin ekki af sjálfu sér. „Kínverskir foreldrar skilja hins vegar að ekkert er skemmti- legt fyrr en maður er góður í því,“ skrifar hún. „Til þess að verða góð- ur í einhverju þarf maður að æfa sig en börn hafa ekki sjálf löngun til að æfa sig. Þess vegna er lykilatriði að leyfa þeim ekki að ráða.“ Eiginmaður Amy og faðir stúlkn- anna, bandaríski gyðingurinn Jed, er í bókinni nokkurs konar hold- gervingur vestrænna viðhorfa. Hann biður börnunum vægðar und- an þindarlausum píanóæfingum og hörkulegum tóni móðurinnar en lýtur oftast í lægra haldi. Í þessari sjálfsævisögulegu úttekt á móður- hlutverkinu hvikar Amy hvergi í gallharðri trúnni á réttmæti eigin aðferða. Minnimáttarkennd? Bókin situr nú í öðru sæti met- sölulista New York Times og hin stranga Amy Chua er á milli tann- anna á Bandaríkjamönnum. Margir eru rasandi reiðir en aðrir hrífast af hreinskilinni frásögninni. Tígris- mamman er umræðuefni sem fólk hikar ekki við að hafa sterkar skoð- anir á og Amy segist hafa fengið orð- ljót skilaboð og jafnvel morðhótan- ir frá reiðum lesendum. Fjölmiðlar hafa jafnvel reifað að múgæsingin sé til marks um minnimáttarkennd Bandaríkjamanna gagnvart upp- gangi Asíulandsins. Grunnskóla- nemendur í Shanghai náðu fyrsta sæti í PISA rannsókninni fyrir jól en bandarískir jafnaldrar þeirra sátu í 17. sæti að meðaltali og náðu ekki nema 31. sæti í stærðfræði. Kínverskir nemendur í Bandaríkj- unum hafa einnig orð á sér fyrir að ná góðum árangri. Ekki þess virði Velgengni Kínverja á sér ofurein- faldar skýringar. Þetta kemur allt fram í bók tígrismömmunnar: meiri heimavinna, lengri píanóæfingar, aukin einbeiting og metnaður — en um leið minni leikur. Leiðin er greið og vel vörðuð en þorri vestrænna foreldra kýs meðvitað að fara hana ekki. Ef járnagi og þrotlaus vinna er það sem þarf til að vestrænu börnin standi jafnfætis tígrisungunum kín- versku, þá finnst foreldrunum topp- árangur ekki vera erfiðisins virði. Þeir neita að takmarka valkosti barnanna, leiktíma og áhugamál. „Vestrænir foreldrar hafa miklar áhyggjur af sjálfstrausti barnanna sinna,“ skrifar Amy um muninn á menningarheimunum. „Þeim er mjög annt um að leyfa börnunum að þróa sinn eigin persónuleika, eltast við ástríður sínar og það sem þau langar til að gera. ... Kínverskir for- eldrar telja hins vegar að besta leið- in til að hlúa að börnunum sínum sé að búa þau hæfileikum, vinnusemi og sjálfstrausti.“ Ættgengur agi Amy var sjálf alin upp af mjög ströngum kínverskum foreldrum. Hún segir að járnaginn hafi gert henni kleift að ná þeim frama sem hún vildi; hún er núna kennari við lagadeildina í Yale-háskóla. Nú þeg- ar stúlkurnar nálgast fullorðinsárin segist Amy hins vegar vera farin að slaka á klónni og segir að dæturnar megi velja sér hvaða starfsframa sem er, svo lengi sem þær sýni metnað og eljusemi í því sem þær taka sér fyrir hendur. Sophia og Lulu hafa tekið upp hanskann fyrir móður sína í fjöl- miðlum vestra og segjast sjálfar munu beita svipuðum uppeldisað- ferðum, — þó þær muni líklega veita börnum sínum meiri tíma með vin- unum. Lulu segir meira að segja að henni finnist viðbrögð móður sinn- ar við afmæliskortinu réttlætanleg. „Það var bara svo einfalt að kortið var lélegt og ég var tekin á beinið fyrir það“, skrifar Lulu í New York Post. „Ef ég hefði gert mitt besta þá hefði [mamma] aldrei brugðist svona við.“ Tígrismamman kínverska og bandarískir óþekktarangar Börn eru sterk Amy Chua gagnrýnir banda- ríska foreldra meðal annars fyrir að ofvernda börnin sín. Hún segir mikilvægt að líta á börn sem sterka einstak- linga sem geti tekist á við erfiðleika. Hara Estroff Marano, höf- undur bókarinnar „Aum- ingjaþjóðin“ (e. A nation of wimps), skrifar í sálfræði- tímaritið Psychology Today að bandarískir foreldrar gangi of langt í að vernda börn sín fyrir óþægindum og áföllum. „Börn sem fá vart að takast á við áskoranir upp á eigin spýtur skortir hæfi- leikann til að finna lausnir á alvanalegum áskorunum síð- ar í lífinu. Þetta veldur því að þau forðast að taka áhættu og eru berskjaldaðri fyrir kvíða og öðrum sálfræðileg- um veikleikum.“ Endurtekningar eru af hinu góða Þegar Sophia varð önnur í hraðakeppni í margföldun í skólanum (slakur árangur, að mati tígrismömmunnar) lét Amy dóttur sína æfa sig á hverju kvöldi í heila viku; tók tímann með skeiðklukku og spurði hana út úr. Endurteknar æfingar og aftur æfingar eru lykillinn að framúrskarandi árangri en mikilvægi endurtekninga er vanmetið í Bandaríkjun- um,“ segir Daniel Willing- ham, prófessor í sálfræði við Virginíuháskóla í samtali við bandaríska tímaritið Time. Við það að endurtaka sömu æfinguna aftur og aftur fer heilinn að geta klárað verk- efnið sjálfvirkt og áreynslu- laust, segir Willingham, og bætir við að þetta auki færni heilans til að takast á við önnur og flóknari verkefni. Hól í óhófi Tígrismömmunni Chua er meinilla við þegar banda- rískir foreldrar hlaða börnin sín óverðskulduðu hrósi, fyr- ir árangur sem henni þykir miðlungsgóður eða lakari. Carol Dweck, sálfræðipró- fessor við Stanford-háskóla, segir að það sé einnig eðlis- munur á hrósi bandarískra og asískra foreldra. Þeir bandarísku hrósi gjarnan fyrir gáfur, segi eitthvað eins og: „þú ert svo klár í stærð- fræði“ en asískir foreldrar hrósi frekar fyrir vinnusemi. Rannsóknir Dweck sýna að hrós fyrir vinnusemi sé líklegra til að hvetja börn til dáða. Börn sem fengu hrós fyrir gáfur í rannsókn Dweck, tókust mun síður á við ný og erfiðari verkefni. „Þau vildu ekki taka áhætt- una á að afhjúpa eigin veik- leika,“ segir Dweck í samtali við Time. Niðurrifsuppeldi Flestum fræðimönnum ber þó saman um að hótanir og uppnefni, sem Chua notar markvisst til að ýta dætrum sínum áfram, sé skaðlegt bæði fyrir þroska barnsins og fyrir samband foreldra og barns. Þá eru skiptar skoð- anir um ofuráherslu á vinnu, á kostnað leiktíma. David Elkind, prófessor í þroska- sálfræði við Tufts-háskóla, skrifar að börn þurfi frjálsan leiktíma til að þroska félags- vitund sína. Í grein í New York Times skrifar hann að ein af höfuðástæðum þess hve einelti hafi aukist á undanförnum árum sé sú að börn hafi ekki svigrúm eins og áður til að læra á lífið og mannleg samskipti í frjáls- um leik. Er ofuragi of mikill agi? Mörgum blöskra uppeldisaðferðir Amy Chua en rannsóknir í uppeldisfræðum skjóta stoðum undir margt í kenningum hennar. Amy Chua Höfundur hinnar umdeildu bókar Baráttusöngur tígrismömmunnar. Hin kínverskættaða Amy Chua náði forsíðu Time fréttaskýringa- tímaritsins aðeins rúmri viku eftir að bók hennar um hörkulegar uppeldisaðferðir kom út í Bandaríkjunum í janúar. Þar sakar hún bandaríska foreldra um linkind og segist sjálf ekki sætta sig við annað en toppárangur frá dætrum sínum. Vestrænt uppeldi í Kína Ólíkt Amy Chua hrífast æ fleiri foreldrar í Kína af vestrænum gildum og aðhyllast frjálslyndari og eftirlátssamari uppeldisaðferðir. Bestu nemendurnir Grunnskólanem- endur í Shanghai í Kína stóðu sig best í PISA-rannsókninni á námsárangri í fyrra. Það verður þó að hafa í huga að námsárangur í stórborginni Shanghai gefur fegraða mynd af meðalframmi- stöðu kínverskra skólabarna á landsvísu. Lj ós m yn di r/ N or di c Ph ot os /G et ty Im ag es 16 úttekt Helgin 11.-13. febrúar 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.