Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.02.2011, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 11.02.2011, Blaðsíða 18
Allt er uppi á borðinu og ekkert öðru líklegra á þessari stundu. E N N E M M / S ÍA / N M 45 32 9 Endurbótum er nú lokið á Vínbúðinni Skeifunni og við bjóðum ykkur velkomin í nýja og glæsilega búð. vinbudin.is Höfum opnað nýja og betri Vínbúð í Skeifunni F jórar leiðir eru ræddar í þeirri nefnd sem falið var að gera tillögur um við­ brögð stjórnvalda eftir að Hæstiréttur ógilti stjórn­ lagaþingskosninguna. Ágúst Geir Ágústsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, er formað­ ur nefndarinnar. Hann segir að í fyrsta lagi ræði nefndin uppkosn­ ingu með sömu frambjóðendum, í öðru lagi nýja kosningu með nýjum framboðum, í þriðja lagi að Alþingi kjósi þá 25 sem kosnir voru til stjórnlagaþingsins í nóvemberlok og fjórða leiðin sem er rædd er endurtalning með svipuðum hætti og fram kemur í varatillögu Gísla Tryggvasonar en hann hefur farið fram á endur­ upptöku ákvörðunar Hæstaréttar þar sem aðaltillaga er að kosn­ ingin verði talin gild þrátt fyrir formgalla við framkvæmd. Gísli er einn þeirra sem kosnir voru á stjórn lagaþingið. Ágúst Geir segir allt uppi á borðum í nefndinni, ekkert sé öðru líklegra á þessari stundu en nefndin hefur stuttan tíma, til 15. febrúar, til að gera tillögu um hvaða leið skuli fara. Í framhaldi þess yrði frumvarp lagt fyrir Alþingi. Hvað varðar leið eitt, þ.e. upp­ kosningu með sömu frambjóð­ endum, yrðu gerðar lágmarks­ breytingar á lögunum með tilliti til þeirra athugasemda sem Hæstiréttur gerði en engu öðru breytt. „Það er sú leið sem er eðlilegust frá lagalegum sjónar­ miðum. Ef þetta væru stjórnar­ skrárbundnar og lögskyldar kosningar væri þetta leiðin,“ segir Ágúst Geir en bendir jafn­ framt á að þar sem um ráðgef­ andi stjórnlagaþing sé að ræða og ekki skylt að halda það nema löggjafinn ákveði svo, veiti það stjórnvöldum og Alþingi meira svigrúm til að meta hvernig bregðast eigi við niðurstöðu Hæstaréttar. Þess vegna séu menn að skoða aðrar leiðir, m.a. endurskoðun á öllum pakkanum þar sem málið yrði tekið upp frá grunni. Ný kosning færi þá fram með nýjum framboðum. „Þá opnast miklu víðtækari möguleikar fyrir stjórnvöld til að endurskoða lögin, bæði fyrirkomulag stjór­ nlagaþings og aðferðafræðina sem notuð var til að framkvæma kosninguna,“ segir Ágúst Geir. Í þriðja lagi kemur til greina að Alþingi kjósi hreinlega þá 25 menn sem hlutu kosningu til stjórnlagaþingsins. „Það yrði að byggja á þeirri forsendu að það væri mat Alþingis, þrátt fyrir þá annmarka sem Hæstiréttur telur að hafi verið á framkvæmd kosningarinnar, að lýðræðislegt umboð þeirra fulltrúa sem náðu kosningu sé í raun ekki dregið í efa með gildum rökum því ann­ markarnir lúti að formsatriðum. Mat Alþingis sé því að umboðið hafi að þessu leyti ekki verið skert,“ segir Ágúst Geir. Hann segir að skýrt yrði að koma fram í slíkri ákvörðun af hálfu Alþing­ is að með þessu væri á engan hátt verið að vefengja niðurstöðu Hæstaréttar enda yrði tekið tillit til hennar við kosningar framveg­ is. „Þarna skiptir enn á ný höfuð­ máli að að þetta er ráðgefandi stjórnlagaþing sem Alþingi hefur í raun á forræði sínu. Ella væri ekki verið að tala um aðrar leiðir. Við værum bara að tala um upp­ kosningu,“ segir Ágúst Geir. Fjórða leiðin hefur síðan komið til umræðu í nefndinni. Í henni felst að löggjafinn geti ákveðið endurtalningu og látið þar við sitja. „Það yrði þá með sama rök­ stuðningi og kemur fram í endur­ upptökubeiðninni; að mögulegt sé að eyða báðum þeim annmörk­ um sem Alþingi taldi að væru verulegir,“ segir Ágúst Geir. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Ágúst Geir Ágústsson nefndarformaður, skrifstofustjóri í for- sætisráðuneytinu. Lj ós m yn d/ H ar i. Nefnd ræðir fjóra möguleika Uppkosning með sömu frambjóðendum, ný kosning frá grunni, 25-menningarnir kosnir af Alþingi eða að löggjafinn ákveði endurtalningu þar sem eytt sé þeim annmörkum sem Hæstiréttur taldi verulega. 18 úttekt Helgin 11.-13. febrúar 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.