Prentarinn - 01.04.1987, Qupperneq 22

Prentarinn - 01.04.1987, Qupperneq 22
verður aðstaðan öll önnur. Og ef þörfin fyrir mannleg samskipti verður mjög aðkallandi er jafnvel hægt að bregða undir sig betri fætinum og hitta aðra í svipaðri aðstöðu, til að skiptast á skoð- unum og fá nýjar hugmyndir, sem nýtzt geta í skapandi starfi. Við erum öll félagsverur. Heimavinnan getur verið mjög þægileg lausn fyrir atvinnurekendur, þeir þurfa ekki að hafa vinnustaðina jafn stóra og geta sparað útgjöld á ýmsan annan hátt, að ekki sé minnzt á hvaða skyldur þjóðfélagið losnar við, sem eru samfara aukinni atvinnuþátttöku kvenna. Réttarstaða. Fyrir utan þá félagslegu einangrun, sem heimavinnu fylgir, eru ýmsar aðrar hættur og ber þá hæst, að þar sem kon- urnar séu orðnar nokkurs konar verk- takar, þá falli þær út úr sínu stéttarfé- lagi, og njóti þar af leiðandi ekki annars en almannatrygginga, ef til slysa eða sjúkdóma kemur, nema þá að þær hafi í tíma keypt sér sérstakar tryggingar. Vissulega geta þær einnig verið ráðnar sem venjulegir launþegar, þótt vinnan sé framkvæmd heima við. Því er það svo óendanlega mikilsvert að konur geri sér grein fyrir að hvaða skilyrðum þær ganga, þegar þær hefja tölvuvinnu heima, og hverjar afleiðingarnar geti orðið. Ég ætla ekki að fara nánar út í samningsákvæði eða bókanir, sem gerðar hafa verið á þessu sviði, en slík- ar upplýsingar er að sjálfsögðu bæði að finna í samningum og einnig hjá starfs- mönnum Félags bókagerðarmanna og Félagi íslenzka prentiðnaðarins. Vinnuaðstaða. í sjálfu sér þarf ekki mikla umgjörð í kringum tölvuvinnu og því hefur mér flogið í hug, að ein lausn á félagslegu þáttunum gæti verið sú, að konur sem vinna þessi störf kæmu sér upp litlum vinnustofum eða verkstæðum, ekki ósvipað því, sem ýmsar listakonur hafa gert t. d. Þetta mætti gera í íbúða- hverfunum og jafnvel hafa einhvers konar samvinnu, þannig að barnagæzl- an væri leyst innan hópsins. Einn fylgikvilli heimavinnunnar er sá, að vinnuaðstöðu og stellingum er gjarnan mjög ábótavant, jafnvel eld- húsborðið og venjulegur stóll látið duga til að spara þau útgjöld, sem eru samfara þeim búnaði, sem hollastur er og beztur. Þetta er líka atriði sem ber að hafa í huga þegar afstaða er tekin til þessa vinnuforms. Að öllu samanlögðu er mjög mikil- vægt, að konur gangi ekki að því grufl- andi þegar þær ákveða að vinna tölvu- vinnuna sína heima, hver félags-, rétt- ar- og vinnustaða þeirra er. Það má e. t. v. geta þess til gamans hér, að konur eru ótrúlega hugmynda- ríkar þegar þær þurfa að leysa sín mál, eins og t. d. að hafa börnin með sér, þegar þær eru að aka strætisvögnum, eða jafnvel stöðva vagninn augnablik fyrir framan verzlun og kaupa inn. Því virðast engin takmörk sett, sem konur leggja á sig. Ahættuþættir. Ef við víkjum að þeim áhættuþáttum, sem tölvuvinnu eru samhliða, þá hafa verið framkvæmdar margvíslegar kannanir, sem lúta að henni, enda öll- um ljóst, að ekkert fær snúið þessari byltingu við, og því bezt að gera sér grein fyrir vandamálunum hið skjót- asta og spara ekkert til að gera þær rannsóknir, sem mega verða til þess að draga úr skaðlegum áhrifum. Ýmsar erlendar rannsóknir hafa þegar verið gerðar og ber ekki öllum saman. Auk þess sem talsvert hefur verið um það rætt, að fjölmiðlar hafi slegið upp rann- sóknaniöurstöðum á þann hátt, að fall- ið sé til að sá hræðslu og öryggisleysi meðal þeirra, sem þessi störf vinna. Einnig hefur komið fram, að könnun- um hafi verið stungið undir stól, þar sem tölvutæknin sé orðin svo stór og ríkjandi þáttur á mörgum framleiðslu- sviðum, að neikvæðir þættir hennar myndu hafa mjög umfangsmikil áhrif. Margvíslegar hættur hafa verið nefnd- ar, en lítið hefur fengizt af rannsókna- niðurstöðum, sem sanna þær eða af- sanna, auk þess sem ekki er hægt að slíta hættur, sem stafa af skjávinnu úr tengslum við önnur atriði í viðkomandi vinnuumhverfi. Hér er þó rétt að benda á grein, sem birtist í Þjóðviljan- um 16. september s.l. og greinir frá sænskum rannsóknum á geislun og raf- hleðslu við tölvuskjái og gefur ákveðn- ar vísbendingar um orsakir t.d. húð- vandamála innskriftarfólks. Sífellt eru að koma fram nýjar upplýsingar og því mikið atriði að halda vöku sinni. Ég vil einungis taka hér upp tvö atriði, sem oft hafa komið fram í umræðunni. í fyrsta lagi sjóntruflanir. Nánast allir eru sammála um, að skjávinna valdi augnóþægindum, svo sem sviða, til- finningu eins og maður sé með korn í augunum o. fl. Skýringarnar eru álitn- ar vera endurkast, blikk, ljómi, læsi- leiki á skjáinn og litur hans. Engar nið- urstöður eru þó fyrir hendi um, að þessar sjóntruflanir leiði til varanlegra augnskemmda, eða sjúkdóma. í öðru lagi vil ég nefna hættuna á fóstur- skemmdum. Rannsóknir þar segja hvorki af eða á, þ. e. þær má túlka á tvennan hátt, að hætta sé ekki fyrir hendi, eða að ef hún sé fyrir hendi sé hún mjög lítil. Hér vil ég þó bæta því við, að mér þykir full ástæða til að taka hér tillit til hins sálræna þáttar. Þung- uð kona, sem óttast fósturskemmdir vegna skjávinnu sinnar getur búið við mikla vanlíðan, og því þykir mörgum, sem rétt sé, að þessar konur eigi kost á öðrum störfum á meðgöngutíma, svo lengi sem ekki liggja fyrir óyggjandi niðurstöður um hættuleysi, og er þegar farið að taka tillit til þessara sjónar- miða erlendis. 22 PRENTARINN 4.7.'87

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.