Keflavíkurgangan

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Qupperneq 21

Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Qupperneq 21
En nú hafði líka rækilega á sannazt, að við gengum undir heillastjörnu: Enginn í þessum hartnær tvöhundruð manna hóp hafði misstigið sig að ráði í torfærunum, allir komust klakklaust á leiðarenda. Og eldvígslu höfðum við hlotið: Upp frá þessari þrekraun fannst öllum gangan létt. í Kúagerði hvíldumst við í tæpan klukkutíma. Óvænt áhyggjuefni hafði skotið upp kollinum: að við kæmum of snemma til Hafnarfjarðar. Við höfðum sprengt allar tíma- áætlanir og nú varð að tjasla þær saman á ný — og bíða. Það var ekki örgrannt um, að farið væri að gæta nokkurrar óþreyju hjá göngufólkinu, þegar loks var búizt til ferðar. Klukkan var 13.55. Töluverðrar bílaumferðar var nú farið að gæta á vegin- um, og blaðamenn og ljósmyndarar stóðu víða með vegbrún- um. Lögregluþjónar á bifhjólum, með hvíta hjálma á höfði, stjórnuðu umferðinni af hinum mesta skörungsskap, og hvergi urðu tálmar á vegi okkar. Sýnilegt var, að margir bifreiðaeigendur höfðu gert sér er- indi hingað suðureftir gagngert til að virða fyrir sér göng- una. Og þeim fjölgaði stöðugt þegar á daginn leið. Sumt af þessu fólki hefur sennilega gert sér vonir um að hafa nokkra illgirnislega skemmtan af að sjá þunnskipaðan hóp sárfættra og göngumóðra ofstækismanna á reiki milli vegbrúna. En þegar til kom mætti það snúðugu liði sem gekk rösklega braut- ina fram, án þess að bera nein sýnileg merki þreytu eða mæði, og ofstæki þess reyndist ekki annað en æðrulaus baráttu- vilji. Hinsvegar urðum við göngumenn vitni að því, hvernig háðsleg brosin á andlitum þessa hermangaralýðs stirðnuðu og frusu þegar við nálguðumst og breyttust í heimóttarleg- an flóttasvip. „Lögregluþjónar á bifhjólum .... stjórnuðu umferðinni" tíma umboðsmaður Bandaríkjanna og bandarískra herstöðva þar í landi, og vafalaust í Natovinafélagi. Meðan Guðmundur I. og Bjarni sátu á fundi með dús- bræðrum sínum úr Nato-klíkunni undir „Hundtyrkjans merki“, gengu stúdentar og háskólakennarar þar í landi Menderes og aðra umboðsmenn Natoklíkunnar og bandarískra herstöðva úr veldisstólunum. I Japan eru stúdentar í þann veginn að ganga umboðsmenn bandarískra herstöðva í því landi úr veldisstólunum. Og sósí- aldemokratar þar hafa lagt niður þingmennsku til að reyna að hindra samninga um bandarískar herbúðir þar næstu 10 árin. Af þessu sýnist mér mega draga nokkurn lærdóm. Það lítur út fyrir það, að kviksyndi erlendrar herstöðva- menningar fari á hreyfingu, ef menn byrja friðsamlega mót- mælagöngu. Það er því öruggt, að Keflavíkurgangan vekur ekki aðeins athygli um allt okkar land, heldur og utan landsteinanna, enda eru stjórnarblöðin hér sýnilega mjög taugaveikluð út af göngunni. Hulda Bjarnadóttir: Gapandi byssukjaftar, vigbúnir skriðdrekar, sprengjufyllt- ar flugvélar og hermenn gráir fyrir járnum, er það sem aug- anu mætir suður á Keflavíkurflugvelli. Það samrýmist ekki íslenzku landslagi. Ég fer í gönguna af því ég tel að herseta, vígbúnaður og allt sem að hermennsku og styrjöldum lýtur, sé smánarblett- ur á siðmenningunni. Hér er ekki og verður aldrei neitt annað en flokkur manndrápara, sem hefir þá aðaliðju, svo þokka- leg sem hún er, að læra á hárnákvæman og vísindalegan hátt að drepa menn. Með morðvélar í bak og fyrir, uppi yfir sér og allt í kring æfa þeir sig liðlangan daginn í því hvernig þeir eigi að fara að því að drepa meðbræður sína. Manneskjan en undarlegt fyrirbrigði. Ef óður maður verð- ur manni að bana, verða allir felmtri slegnir og eru ekki í rónni fyrr en búið er að handsama morðingjann og koma honum undir lás og slá. En þó erlendir dátar í hundraðatali hafi hreiðrað um sig suður á Keflavíkurflugvelli umkringdir þeim hryllilegustu morð- og vítisvélum, sem mannsandinn hefur getað fundið upp, fyrirfinnst fólk, sem hefur ekkert við það að athuga. Og þó orustuflugvélar hlaðnar kjarnorkusprengjum svífi yfir landinu, nótt og nýtan dag, er fólk undarlega sljótt fyrir þeirri hættu, sem af því stafar. Og þó þyrfti kannske ekki annað en einni flugvélinni hlekktist á, eins og alltaf getur komið fyrir, og hrapaði til jarðar, til þess að tortíma okkur öllum með tölu. Það fer vel á því, að Keflavíkurgangan skuli verða þreytt á Keflavíkurgangan 19
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Keflavíkurgangan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Keflavíkurgangan
https://timarit.is/publication/962

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.