Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Síða 28

Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Síða 28
en elzta konan er þreytti gönguna alla, Sigríður Sæland, ljós- móðir, hafði fengið sér sæti í skólatröppunum. Fundarstjóri hyllti þessar öldnu öðlingsmanneskjur, og var undir tekið með dynjandi lófataki. Þá las fundarstjóri eftirfarandi kveðj- ur, er fundinum höfðu borizt: Skrifstofan, Mjóstræti 3, Reykjavík. Tek undir kröfu hernámsand- stæðinga um uppsögn svonefnds varnarsamnings, brottvísan hers frá íslandi og að ísland lýsi yfir ævarandi hlutleysi. Andrés Guðjónsson, Skagaströnd. Skrifstofa Keflavíkurgöngu, Mjóstræti 3, Reykjavík Styðjum göngu ykkar af heilum hug. Væntum þess að hún hafi vekjandi áhrif á íslenzka þjóð. Höldum baráttunni ótrauð áfram. Þjóðvarnarmenn í Skagafirði. Keflavíkurgangan við Miðbæjar- barnaskólann, Reykjavík. Sósíalistafélag Neskaupstaðar þakkar forustumönnum Keflavíkur- göngunnar frumkvæði nýrrar bar- áttuaðferðar gegn erlendum her á Islandi og vonar að hún sé upphaf þess að allir sannir íslendingar sam- einist um kröfurnar: engan her á íslandi, ævarandi hlutleysi, ísland alfrjálst, Sósíalistafélag Neskaupstaðar. Utifundur hernámsandstæðinga, Reykjavík. Hernámsandstæðingar á Horna- firði senda útifundinum við Mið- bæjarskólann 19. júní 1960 beztu árnaðaróskir um leið og við vonum að nýafstaðin kröfuganga megi verða upphaf að þróttmikilli bar- áttu fyrir brottför bandaríska her- liðsins og endurheimt hlutleysis ís- lands. Keflavíkurgangan, útifundurinn við Miðbæjarbarnaskólann, Reykjavík. ítrekum samhug okkar og sam- stöðu, þökkum forustu ykkar og baráttuþrek. Burt með víghreiðrin og hernaðarbandalagið. Ævarandi hlutleysi íslands. Hugheilar bar- áttukveðjur. — F. h. Alþýðubanda- lagsins í Höfðakaupstað. Friðjón Guðmundsson Guðjón Andrésson Lárus Þ. Valdimarsson. Kveðja frá Hofsósi. Vottum ykkur fylgi okkar í bar- áttunni fyrir brottrekstri hersins. Hugur okkar fylgir ykkur á mót- mælagöngunni. Lóa Stefánsdóttir Guðmundur Helgi Þórðarson Eyrún Gísladóttir Árni Sigurðsson Því næst gaf fundarstjóri Jóhannesi skáldi úr Kötlum orð- ið, og fer ræða hans hér á eftir ásamt ræðum fjögurra göngu- manna, er töluðu til mannfjöldans — þeirra Gils Guðmunds- sonar, Magnúsar Kjartanssonar, Jónasar Árnasonar og Þor- varðar Örnólfssonar. Ræðumenn allir áttu sammerkt í því, hve heitt þeim var í hamsi og af hvílíkum þunga þeir fluttu mál sitt. Kannski hafði þessi ganga framar öðru verið farin vegna þess, að mönnum fannst o r ð i ð vera farið að glata áhrifa- Frá útifundinum — Veiztu um einhverja fleiri, sem ætla að ganga? — Já, já! Ég þekki nokkrar ungar stúlkur sem verða okk- ur samferða. — Laglegar? — Já, mjög laglegar! — Og ertu búin að kaupa þér skó eftir ábendingum Vísis? — Nei, ég þarf þess ekki. Ég ætla að nota sömu skóna og ég gekk á í vetur, þegar ég labbaði frá Hveragerði til Reykja- • víkur. Jóhann Gunnarsson: — Þáð stendur líklega hálfilla á fyrir mér á sunnudaginn og þess vegna veit ég ekki enn, hvort ég hef aðstöðu til þess að mæta. Jóhann er maður kvæntur og hefur fyrir heimili að sjá. Hann sagðist vera mjög hlynntur Keflavíkurgöngunni og reyndar vera búinn að skrá sig til þátttöku, en nú væri skyndi- lega útlit fyrir, að hann yrði að skreppa austur fyrir fjall á sunnudagsmorguninn. — En það er víst, að þessi ganga á hug minn og ég ætla að minnsta kosti að reyna að vera með síðasta spölinn. Þetta er einstakt tækifæri til að láta í ljós andstöðu sína gegn her- náminu á áberandi hátt. Hugrún Gunnarsdóttir: Hugrún sagðist vera mjög hlynnt þessum mótmælaaðgerð- um og hefði ekkert á móti því að taka þátt í göngunni. Hún vinnur í Mjólkursamsölunni um þessar mundir og hafði svo mikið að gera, að hún mátti varla vera að því að spjalla við blaðamann. Hún var ekki viss um, að hún treysti sér í alla gönguna, en hún var ákveðin í að labba það, sem hún gæti. — En hvernig er það, spurði Hugrún. Á að stoppa alla um- ferð á veginum? Því miður var blaðamaðurinn ekki nógu klár á skipulags- málunum og benti henni því á að hringja á lögreglustöðina — eða hafa samband við skrifstofu Keflavíkurgöngunnar, Mjó- stræti 3, sími 23647. Og hið síðara ættu reyndar sem flestir að gera. Jón Sigurðsson: Jón Sigurðsson, hljóðfæraleikari, var beðinn að segja álit sitt á Keflavíkurgöngunni. Svar hans er þetta: „Forfeður okkar ólust upp í öryggisleysi og fátækt sem leiddi af danskri kúgun, en í brjósti þeirra brann draumurinn um frjálst Island. Sá draumur rættist loks við lýðveldisstofn- 26 Keflavíkurgangan

x

Keflavíkurgangan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Keflavíkurgangan
https://timarit.is/publication/962

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.