Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Síða 29

Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Síða 29
mætti sínum vegna langvarandi misnotkunar valdsmanna á azt á ný þann áhrifamátt, sem áður var saknað. Flysjungs- tungunni. Ekkert gladdi mig nú jafn mikið og finna, hvernig laus einbeittni ræðumanna hafði dýpri áhrif á áheyrendur einmitt o r ð i ð hafði gengið í endurnýjun lífdaganna: öðl- en ég hef nokkru sinni numið fyrr á útifundi í Reykjavík. Það Mannfjöldinn fyllti Lækjargötu og svæðið austan hennar alla leið niður að Bankastræti unina 1944. Nú höfum við brugðizt von forfeðranna, og kallað yfir okkur nýtt hernám, jafnvel hættu á dauða og algerri tor- tímingu. Sagt er, að okkur sé nauðsynlegt að hafa her, en hvar í flokki sem við stöndum, hljótum við þó að sjá hvilík fjarstæða slík fullyrðing er. Við megum ekkert tækifæri láta ónotað til að lýsa andúð okkar á hernámi Islands og bægja frá hættunni sem af því stafar. Eitt slíkt tækifæri gefst okk- ur með Keflavíkurgöngunni. Allir sannir hernámsandstæðingar, sem tök hafa á, hljóta að sameinast um að gera þá göngu sem glæsilegasta“. Bryndís Schram: Bryndís var að koma frá því að sjá listdanssýninguna í Þjóðleikhúsinu, þegar blaðamaður hitti hana á götu úti. Bryndís kvaðst ætla að ganga Keflavíkurgönguna, ef hún gæti komið því við. Hún sagðist ekki vera flokksbundin og yfirleitt ekki taka þátt í neinni pólitiskri starfsemi, en bætti því við, að sér þætti krafan um brottför hersins vera þann- ig mál, að það hlyti að vera hafið yfir alla pólitíska flokka- drætti. — Mér finnst í rauninni, að allir ættu að vera sammála um þessa kröfu. Ég býst líka við, að margir muni fagna þessu tækifæri til að láta i ljós andúð sína á hernáminu. Auk þess finnst mér þetta ágætt tækifæri fyrir mann að létta af sér fáeinum kílóum. Hallveig Thorlacius: — Já, ég ætla að ganga, sagði Hallveig. Og ég fór að æfa mig á sunnudaginn eins og Alþýðublaðið ráðlagði. — Hvemig gekk? — Eg fékk hælsæri, ég verð að fá mýkri skó! — Hvers vegna gengurðu? — Ætli við göngum ekki öll í sama skyni, það er fólgið í sjálfri athöfninni. Ég held, að okkur geti ekki liðið vel í þessu landi, meðan við vitum af því í hers höndum. Hvers vegna ég geng? Ja, mér finnst stundum, að okkur sé líkt far- ið og lúsugu barni, — við klórum okkur og látum öllum ill- um látum. En það er ekki nóg að klóra sér. Lúsin kippir sér ekki mikið upp við það. Og nú á sem sagt að reyna ofurlítið róttækari aðgerðir til þess að hrista af sér óþverrann. Mér lízt ágætlega á þessa læknisaðgerð og ætla að taka þátt í henni. Auk þess er þetta upplagt tækifæri fyrir unga stúlku að ná sér í eiginmann í hrauninu, einhverja hetju, sem er fús að halda á manni síðasta spottann og reyndar það sem eftir er í lífinu. Keflavíkurgangan 27

x

Keflavíkurgangan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Keflavíkurgangan
https://timarit.is/publication/962

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.