Keflavíkurgangan - 19.06.1960, Side 30
var sem neistar flygju um loftið, tendruðu bál í brjóstum
manna. Orsökin var auðskynjuð: þeir fundu að o r ð hafa
annað og meira gildi, þegar sá sem þau mælir hefur lagt á
sig 50 km göngu til staðfestingar sannfæringu, sem að baki
býr; mönnum var ljóst, að formælendur hernámsins hefðu
aldrei farið slíka göngu hersetunni til vegsemdar.
Samstilling þúsundanna varð þvi voldugri sem á leið fund-
inn og náði hámarki, er Þorvarður Ömólfsson flutti mann-
fjöldanum í fundarlok Samþykkt Keflavíkurgöngunnar. Hann
las hvern lið fyrir sig hátt og skýrt, og fólkið staðfesti hana
lið fyrir lið með langvarandi lófataki. E. B.
Til vinstri:
Guðgeir Jónsson,
fundarstjóri
Til hægri:
Sigurður Guðnason
að skeiðslokum
Sigurjón Þorbergsson:
— Já, það er ekki hægt að skerast úr leik, þegar slíkar að-
gerðir standa fyrir dyrum. Ég er að vísu í heldur lélegri æf-
ingu til að ganga, en ég æfði þó eitt sinn íþróttir og reikna
þess vegna með því, að gangan reynist mér tiltölulega auðveld.
— Og þú gengur til að mótmæla hersetunni?
— Ég lít á Keflavíkurgönguna fyrst og fremst sem yfir-
lýsingu um vilja til samstöðu og baráttu í þessu máli. Ég held
líka, að þessi tegund mótmæla sé eins góð og hver önnur.
— Ætlarðu að ganga í rigningu?
— Já, í hvaða veðri sem er, ef ætlunin er að ganga.
Eftirfarandi viðtöl
birtust á Æskulýðssíðu Þjóðviljans:
Æskulýðssiðan fagnar þessum nýja áfanga í baráttunni
gegn hernámi íslands og hvetur eindregið alla unga sósíalista
til þátttöku í göngunni.
Félagar í Æskulýðsfylkingunni, Félagi róttækra stúdenta,
ungir sósíalistar í verkalýðsfélögunum og hvar sem þið starf-
ið: fylkjum liði í Keflavíkurgönguna á sunnudaginn og sýn-
um með því hug okkar til hernámsins.
Mótmælum 20 ára smán og niðurlægingu erlendrar hersetu.
Burt með erlendan her af íslandi.
Franz A. Gíslason:
Hernámsandstæðingar hafa ákveðið að efna til mótmæla-
göngu gegn hernámi Bandaríkjanna á fslandi n.k. sunnudag
19. júní. Er ætlunin að ganga frá herstöðinni í Keflavík sem
leið liggur gegnum Hafnarfjörð og Kópavog og enda göng-
una með útifundi í Reykjavík á sunnudagskvöld.
Finnur T. Hjörleifsson:
Fyrst komum við að máli við Finn T. Hjörleifsson, formann
Reykjavíkurdeildar Æskulýðsfylkingarinnar.
— Þú tekur náttúrlega þátt í göngunni, Finnur?
— Auðvitað. Ungt fólk og hraust getur ekki lagt minna á
28
Keflavíkurgangan