Vísbending


Vísbending - 17.12.2007, Page 34

Vísbending - 17.12.2007, Page 34
Ég kyssti Kristján ekki fyrir spóluna. Það kom ekki til greina, hvemig sem mamma suðaði í mér. Hún getur kysst þennan karl eins og henni sýnist. En ég þoli hann ekki. Fyrst sá ég að vísu eitt jákvætt við hann. Þegar mamma kynntist honum hætti hún að gráta. Hún var búin að gráta stanslaust frá því að pabbi fór og það var orðið vægast sagt þreytandi. Þess vegna fannst mér alveg ágætt að Kristján skyldi byija að bjóða henni í bíó. Ég bjóst hins vegar aldrei við því að hann færi að gista héma um helgar. Hvað þá að þessi hundleiðinlega dóttir hans kæmi þá stundum með honum. Núna vildi ég gjaman skipta. Ég vildi miklu frekar hafa mömmu hágrátandi inni í rúmi, eins og einu sinni, en að karlinn og stelpan ryðjist hingað inn allar helgar með allt sitt hafúrtask. Það er ömurlegt! Það myndi enginn trúa því hvað þessar tvær manneskjur geta haft mikið drasl með sér. Ég hef reynt að segja pabba ffá því en hann heldur að ég sé að ýkja. Það er bókstaflega ekki þverfótandi í íbúðinni þegar þau gista héma. Kristján kemur alltaf með hrúgu af æfingagöllum og strigaskóm og fúllt af íþróttadóti. Hann er svo mikið fýrir hreyfingu og útivist, segir hann. Og það em sko engar ýkjur. Við erum alltaf að gera eitthvað svoleiðis um helgar — synda, skreppa á skíði, ganga á Esjuna, hjóla um bæinn eða fara í körfúbolta. Kristjáni dettur alltaf eitthvað í hug. í næstu viku ætlar hann til dæmis að kaupa línuskauta handa okkur öllum. Mamma er mjög spennt. Stelpan hans Kristjáns heitir Silja. Þegar hún kemur með honum bætist við rauður hermannabeddi og stór, svartur plastpoki með sængurfötum, bangsa, bókum og dúkkudóti. Og hvert er farið með þetta allt? Beinustu leið inn til mín! Samt er varla nokkurt pláss eftir á gólfínu þegar búið er að rétta úr hennannabeddanum. En þegar ég byija að kvarta setur mamma alltaf upp þennan sérstaka svip sem þaggar alveg niður í mér. Ég get einhvem veginn ekki verið með leiðindi við mömmu þegar ég sé þennan svip á andlitinu á henni. Hún er alls ekki reiðileg eða neitt svoleiðis. Hún verður bara eitthvað svo biðjandi. Ég á erfítt með að útskýra það nákvæmlega. Silja fer óskaplega í taugamar á mér. Hún getur kannski ekki að því gert. Hún er bara fædd svona. Mér fmnst allar stelpur ömurlegar. Þar að auki er hún þremur ámm yngri en ég. Það gerir illt verra. Litlar stelpur em enn leiðinlegri en stórar stelpur. Þær þurfa svo mikla athygli. Mamma fær ekki ffið fyrir Silju. Hún eltir hana um íbúðina eins og hundur. Það er alveg ótrúlegt að mamma skuli þola þetta. En hún virðist kunna þessu vel. Hún snýst að minnsta kosti nógu mikið í kring um þennan krakka. Hún er alltaf að greiða stelpunni, setja í hana spennur og klæða hana í asnalega kjóla. Það mætti halda að hún væri í dúkkuleik. Mamma segir að Silja líti upp til mín. Ég skil það nú ekki. Ég sem tala eiginlega aldrei við hana. Stundum neyðist ég reyndar til þess. Það er ekki hægt að ganga steinþegjandi alla leið upp á topp á Esjunni og niður affur. Maður verður einstaka sinnum að segja eitthvað. Svo öskra ég oft á hana þegar við erum í körfúbolta með Kristjáni og mömmu. Líka þegar ég fer í kapp við hana á hjólinu eða þykist ætla að kaffæra hana í sundlaugunum. Þá æpi ég eitthvað ljótt og hún flissar eins og fífl. Ég er mjög feginn að það skuli ekki vera nein stelpa heima hjá pabba. Hann hefúr átt margar kæmstur síðan hann fór ffá okkur mömmu. Ég hef hitt nokkrar. En sem betur fer hafa þær allar verið bamlausar. Þegar ég er hjá pabba erum við mest inni. Hann segir að veðrið á Islandi sé of vont til að fólk geti verið úti. Við byijum oftast á því að leigja nokkrar vídeóspólur og kaupa kók og bland í poka. Ef pabbi er þreyttur leggur hann sig á meðan ég horfi á myndimar. Það hefúr líka komið fyrir að hann sé svo svakalega þreyttur að hann láti ömmu og afa passa mig. Mamma segir að hann megi það ekki. Hann eigi sjálfúr að hafa mig. Það sé alveg sama hvað hann sé þreyttur. Alltaf verði hún að hafa mig. Hvað sem hún sé uppgefm. Mér fínnst dálítið óþægilegt að heyra þau rifast um þetta. Þegar pabbi er búinn að hvíla sig pantar hann oftast pítsu. Það er svo þægilegt því þá þarf hann ekki að elda. Ég skil ekkert í henni mömmu að gera þetta ekki líka. Ég væri alveg til í að borða pítsur á hveijum degi. Kæmstumar hans pabba koma í heimsókn þegar við emm búnir að borða. Auðvitað ekki allar í einu. Hann á bara eina kæmstu í einu. En þær em allar mjög líkar. Ég þekki þær varla í sundur. Og engin þeirra þolir mig. Þær vilja að pabbi fari út að skemmta sér með þeim í staðinn fyrir að hanga heima með mér. Oft verður hann að skreppa út með þeim þótt ég sé hjá honum. Þær linna ekki látunum fyrr en hann lætur undan. Það er líka allt í fína lagi. Ég horfí bara á sjónvarpið á ineðan. Ég verð aldrei hræddur nema ég sé að horfa á hryllingsmynd. Þá verð ég að kveikja öll ljósin í íbúðinni og get ekki sofhað fyrr en pabbi er kominn heim aftur. Einu sinni kom pabbi ekkert heim. Það vildi svo illa til að þá var einmitt hryllingsmynd í sjónvarpinu. Annars hefði ég ömgglega steinsofnað. En ég beið og beið og aldrei kom pabbi. Klukkan sex um morguninn fannst mér einhver vera að kíkja á gluggann. Ég var viss um að það væri annað hvort draugur eða innbrotsþjófúr. Það munaði engu að ég gæti ekki hringt í mömmu. Ég var svo hræddur að ég gat ómögulega munað símanúmerið. Þegar mér tókst loksins að muna það var ég farinn að gráta. Svo mamma hélt náttúrlega að ég væri veikur eða stórslasaður. Ég held að hún hafi verið enn hræddari en ég. Eftir nokkrar mínútur vom þau bæði komin til að ná í mig — mamma og Kristján. Og pabbi var hundskammaður næsta dag. Aumingja pabbi. Hann hafði bara gleymt að ég væri hjá honum og gist hjá kæmstunni sinni. Hann gerði þetta ekki viljandi. Pabbi er alveg ágætur. Ekki vildi ég eiga neinn annan pabba. Hann er langbestur af öllum. En núna fæ ég aldrei að fara til hans lengur. Mamma segir að hann sé búinn að svíkja mig nógu oft. Hún vilji ekki að ég verði fyrir meiri vonbrigðum. Hún tók þessa ákvörðun eftir skemmtunina í skólanum um daginn. Þar var ég látinn lesa ljóð eftir Jónas Hallgrímsson. Kennarinn ákvað það. Honum fannst það svo sniðugt. Og mamma trylltist af því að pabbi kom ekki. Þetta var svona fjölskylduskemmtun fyrir foreldra og systkini og pabbi var búinn að lofa að koma. Ég minnti hann meira að segja á það daginn áður. Hann sagðist ætla að sitja á fremsta bekk og taka ljóðalesturinn upp á vídeómyndavélina sína. Hann lofaði því. En svo kom hann ekki neitt. Ég var dauðhræddur um eitthvað hefði komið fyrir hann. Þess vegna hringdi ég heim til hans eftir skemmtunina. Ég vildi bara vera viss um að hann hefði ekki lent í slysi. Og sem betur fer var hann heill á húfi. Hann hafði einfaldlega ruglast á dögum. Það var allt og sumt. Mér fannst mamma gera alltof mikið úr þessu. Það var ekki eins og pabbi hefði ekki viljað hlusta á mig flytja þetta ljóð. Hann vildi það alveg. Hann ruglaðist bara í ríminu. Það geta allir lent í því. Sérstaklega pabbi sem er alltaf svo ofboðslega utan við sig. Svo var þetta líka ljómandi góður dagur, þrátt fyrir allt. Kristján og Silja komu með mömmu á skemmtunina og þau tóku margar ljósmyndir af mér. Það lá við að ég fipaðist af flassinu. Þegar ég var búinn með ljóðið klappaði Silja svo mikið að það var eins og ég hefði verið að fá Oskarsverðlaun. Um kvöldið bauð Kristján okkur síðan á veitingastað til að halda upp á daginn. Ég saknaði pabba þess vegna ekkert mikið. En af því að hann er bestur af öllum ætla ég að gefa honum eina af myndunum sem mamma tók af mér. ra Jónína Leósdóttir gefur út tvœr bœkur fyrir jólin: Kossa og ólífur og Talað út - um lífið og tilveruna. 34 IVÍSBENDING

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.