Heimilisritið - 01.11.1944, Page 8

Heimilisritið - 01.11.1944, Page 8
minni fyrir það. Hann barðist fyr- ir öllu sem gat orðið fasistum að falli eða tjóni; því vildi hann láta eyðileggja brúna. En hann var sá maður, að hann vissi að orustur eru ekki unnar mieð tilfinningun- um einum. „Þú sást flugvélarnar í dag?“ spurði hann. „Já“. „Það hafa aldrei fyrr verið svona margar flugvélar hérna. Og það eru hermenn á leiðinni hingað“. „Við höfum líka séð þá“, sagði Jordan. „Þeir vita að þeir munu mæta mótstöðu“, sagði E1 Sordo.- „Getur verið“. Þetta var það versta, af því að það var líka satt. Því þeir vissu að Golz myndi hefja sókn, og sókn hans myndi enda eins og allar hinar. Þó var það ekki víst. Ef til vill myndi styrjöldin nú lokins breytast lýðveldissinnum í vil. E1 Sordo sagði: „Við gætum eyðilagt brúna í nótt“. „Nei“, sagði Róbert. „Er það mikilvægt á hvaða tíma brúin er sprengd?“ „Mjög mikilvægt“, sagði Jord- an. „Þá er að hlíta því“, sagði E1 Sordo. Þeir lögðu svo áætlanir um hvar og hvenær skæruliðarnir skyldu koma saman og hvernig öllu skyldi hagað. E1 Sordo hlust- aði rólegur á fyrirætlanir Ró- berts og kinkaði kolli endrum og eins. E1 Sordo taldi áætlanir Ró- berts vera svo góðar, að ef nokk- ur leið var til þess að inna verk- ið af hendi, þá var það með því að fara eftir þeim. Það var á leiðinni heim frá E1 Sordo, að Pilar nam enn staðar Undir grenitrjánum, við grösugt dalverpi, sneri hún sér að Róbert og Maríu. „Hlustið þið á mig“, sagði hún óþýðlega. „Tíminn er naumur. í stríði verður dagurinn að koma í stað árs og vikan í stað aldar. Eg hef séð í augu ykkar; munið að tíminn er naumur“. „Hvað hefurðu séð í augum okkar?“ spurði Róbert. „Talaðu ekki eins og auli“, sagði Pilar. „Þú ert það alls ekki. Hélstu að ég hefðj^ beðið Maríu að koma með, af því að ég gæti ekki gengið á mínum eigin fótum eða hvað ?“ „Pilar —“, sagði María. „Hún þarfnast blíðu“, hélt Píl- ar áfram. „Hún þarfnast blíðu og hlýju og ástar, já, ástar. Hún hefur séð of mikið af heift um ævina. Framar öllu blíðu, skil- urðu það?“ „Já“, sagði Róbert. „Eg ætla að skilja við ykkur núna“, sagði Pilar. „Verið þið kyrr þar sem þið eruð“. „Þess gerist ekki þörf“, sagði Róbert. „Víst svo, eins og ég hef sagt“, sagði Pilar. 6 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.