Heimilisritið - 01.11.1944, Page 16

Heimilisritið - 01.11.1944, Page 16
& PARÍS, höfuðborg tízkunnar, hefur nú verið endurheimt. Og þegar hinar sameinuðu þjóðir fengið aftur aðgang að þessari tizkunnar borg, vakti það í fyrstu furðu, hve margar hinna fögru dætra Parísar sáust í fallegum föt- um á götum úti. En Parísarstúlkurnar höfðu haft aðra aðstöðu en stúlkur Bandaþjóðanna. 1 Frakklandi hugsaði fólk mest uml að vinna gegn yfirvöldunum, að krækja í allt semJ hægt var að klófesta, að gera þýzka innrásarhernum eins mikla bölvun og kostur var á og verða Bandamönnum þannig beint eða óbeint til hjálpar. Hinsvegar sýna Englendingar heima fyrir þegnskap sinn með því að hjálpa yfirvöldunum eftir beztu getu, meðal annars á þann hátt að spara við sig og kappkosta að nota sem minnst af skömmtunar- vörum. Eins og vitað er, hafa Þjóð- verjar ekki haft fataefni nema af skornum skammti handa sér og hernumdu þjóðunum. En Parísar- stúlkurnar víluðu ekki fyrir sér að borga okurverð fyrir fatnað handa sér, ef þær höfðu nokkur ráð til þess. Og þær hafa haldið sínu áliti sem drottningar tízkunnar, þrátt fyrir langa einangrun frá Ame- riku og Bretlandi . Tízka hattanna er að breytast. Hattur á nú að vera ,,100 prósent hattur“. Hattarnir hafa stækkað, hækkað, orðið íburðarmeiri og persónulegri. Fjöldaframleiðsla af samskonar höttum er nú dauða- dæmd. Það á að vera svipur og stíll yfir hattinum, sem hæfir eig- andanum einum og fegrar hann. Túrban verður til dæmis að vera rAeira en einfaldur túrban. Það á að vera meiri lyfting, og jafn- framt, dýpt og listrænt yfirbragð yfir honum, nú en áður. Draktir úr ullarefnum eru mikió notaðar, og þá oft með lokufell- ingum að framan og aftan. Fallegt þykir að brydda líningar jakkans að framan og útlínur vasanna, ef vasar eru, með mjóum borða úr efni með öðrum lit en draktin er sjálf, til dæmis svörtum, ef drakt- in er grá. Mikil áhérzla er lögð á að nýta sem mest eldri föt, með þvi að breyta sniði eða sauma nýjan klæðnað úr einni eða fleiri göml- um flíkum, þótt úr kunni að verða marglitur fatnaður, ef það er einungis gert smekklega. 14 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.