Heimilisritið - 01.11.1944, Qupperneq 39
eftir henni og voru þau Lil Damita
og Ernest Torrence þá í hlutverk-
um þeim, sem Lynn Bari og Akim
Tamiroff fara nú með.
Lynn Bari
Sagan segir, að árið 1772 hafi
brú ein bilað í Perú er fimm
manns voru að ganga yfir hana.
Fólkið fórst allt. Ungur prestur,
sem sér slysið, fer svo að for-
vitnast um, hversvegna þetta
fólk hafi verið þarna á ferð —
iivers vegna einmitt það lenti í
slysförunum — hvað forsjónin
hafi meint með þessu.
Frances Lederer leikur aðal-
hlutverkið á móti Lynn Bari.
— Þetta er kvikmynd, sem að
mörgu leyti er mikið í spunnið,
en nokkuð langdregin á köfium.
(United Artists — Tjarnarbíó).
Brasðórefirnir ,
í þessari gamanmynd leika
skopleikararnir Stan Laurel
(Gög) og Oliver Hjirdy (Gokkei
tvo dansandi og spilandi flæk-
inga semi rata í ýms æfintýri.
Vivian Blaine hefur aðal kven-
hlutverkið með höndum og syng-
ur nokkur lög.
Laurel, sá magri, er vel að sér í
mállýskum og sýnir það í mynd-
inni. Þótt myndin sé í sjálfu sér
lítt merkileg vekja þessir vel-
þekktu gamanleikarar væntanlega
hlátur margra á hinum drungalegu
skammdegiskvöldum Reykjavíkur.
(20th Century-Fox — Nýja Bíó).
ÞaO aerðist á morgun
Dick Powell hefur sjaldan verið
betri, en hann er í hlutverki sínu
í þessari mynd, senu fréttaritari
er getur fyrir milligöngu látins
vinar aflað sér frétta í dag, sem
gerast á morgun. Velgengnin og
jafnframt skelfingin sem þetta
hefur í för með sér fyrir hann
veitir myndinni líf og liti. Jack
Oakie leikur þarna fjörgandi
hlutverk og hin fagra Linda
Damell leikur stúlkuna sem elsk-
ar blaðamanninn. Ást þeirra er
fögur og hrífandi. (Pressburger
U.A. — Tjarnarbíó).
Rökkursaqa
Þetta er atburðaríkur gleði-
leikur með hinum þekktu og vin-
sælu kvikmyndaleikurum Lorette
Young og Fredric March í aðal-
hlutverkunum. Þau leika auðug og
fræg hjón, sem ekki kemur rétt
vel saman þótt allt endi vel.
HEIMILISRITIÐ
37