Heimilisritið - 01.11.1944, Side 42

Heimilisritið - 01.11.1944, Side 42
ar í rúminu, og talaði stundum • óráði. Alltaf var hún hjá honum — Eitt kvöld sagði Holböl: „Eg hef barist og átt erfitt uppdráttar. Eg hef þó aldrei legið á liði mínu. En ég hef beðið hvern ósigurinn eftir annan. Og þig hef ég líka misst, Marta“. Hún strauk mjúklega enni hans. Hann hélt áframj: „En það skal breyt- ast. Eg vona að ég sigri að þessu sinni. Eg þykist viss um það. Þá skal líf okkar byrja fyrir alvöru __u „Já já, Jörgen“. Svo kom langur erfiður tími. Læknirinn ypti öxlum. — Auðvit- að væri von, af tícki kæmi önnur veikindi í viðbót. Hann fór undan í flæmingi. — Sagði ekkert ákveð- ið. Nú nálgast «á dagur, er teikningarnar skyldu dæmdar. jörgen varð órólegri og órólegri. Ekkert annað komst að í huga hans. Annað hvort sigraði hann eða missti kjarkinn, eyðilagðist. Jörgen þyngdi, sló niður sem kallað er, af æsingu út af mála- lokum keppninnar. Svo kom dómsniðurstaðan í blöðunum. Jörgen var ekki nefnd- ur. Læknirinn sagði frúnni þenn- a.n dag, að Jörgen mætti ekki frétta úrslitin. Hann ætti varla eftir að lifa nema einn til tvo sól- arhringa. Marta hlustaði á þennan dóm, án þess að á henni sæjust svip- brigði. Hún hugsaði ekki urrj sig eða börnin, heldur um mann sinn. Hún settist við rúm hans, beygði sig niður að honum og sagði hon- um ósatt í fyrsta skipti síðan þau giftust. Hún mælti: „Jörgen, þú hefur sigrað“. Ósegjanleg gleði Ijómaði frá andliti hans. Hann var liamingjusamur. Nú sofnaði hann vært. Svo gerðist hið ótrúlega. Jörgen fór að batna. Smám saman jóks þróttur hans. Dag nokkurn mælti læknirinn við Mörtu: „Það virðist svo sem einhver sterk hugsun hafi vakið lífslöngun og lífskraft manns yðar. Honum tekst að sigr- ast á veikindunum“. Marta Holböl hafði reynt mik- ið á sig. Hún grét af gleði. Kraft- ar hennar voru þrotnir. Hún hugs- aði um það, hve maður hennar hefði átt bágt, og hve mjög liann hefði þráð sigurinn. Bati Jörgens tók langan tíma. Og Marta varð að þegja um csannsögli sína. Sem beturfórbað hann ekki um nein skjöl viðvíkj- andi sigri sínum. En hann talaði margt um óskir sínar og vonir, þegar hann var svo hress að geta talað lengi í einu. Marta gladdist yfir bata manns síns. En hún óttaðist þann dag er vonbrigðin dyndu yfir hann. Hvað myndi þá gerast? Dag nokkurn tók hún strang- ann með hinum endursendu upp- drátturrg sem hún hafði látið liggja í umbúðunum, og gekk á fund framkvæmdastjórans. Ör- 40 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.