Heimilisritið - 01.11.1944, Side 46
Ætli hann sé að bogna, þótt hann
tali hraustlega.
Síðar: — Eg verð að fara til
3?ýzkalands. Murrow hringdi til
mín um) miðnættið frá London og
sagði mér tíðindin. Bretar og
Frakkar hafa komð sér saman
um að berjast ekki vegna Tékkó-
slóvakíu, krefjast þess af tékk-
nesku stjórninni, að hún gefist
upp skilmálalaust og láti Súdeta-
héruðin af hendi við Þýzkaland.
Eg þrætti við Ed og sagði að
Tékkar gengju ekki að þessu, þeir
myndu berjast einir ------
„Ef til vill. Ég vona, að þér
verið sannspár. En Mr. Chamber-
lain fer nú samt til fundar við
Hitler í Godesberg á miðvikudag-
inn og við viljum, að þér séuð þar
á hnotskóg. Ef ófriður skellur á,
getið þér farið til Prag“.
„Allt í lagi“, svaraði ég en
átti satt að segja erfitt með að
trúa því að þessar fréttir gætu
verið sannar.
Maurice tekur útvarpið að sér
meðan ég er fjarverandi. Ég flýg
til Berlínar í fyrramálið. Fer í
rúmið klukkan fjögur, þreyttur
og fullur af viðbjóði.
Berlín, 19. sept. 1938.
Nazistar eru í sjöunda himni yf-
ír þessum mesta sigri, sem þeir
telja að Hitler hafi ennþá unnið,
og þeir mega vera það. „Og
blóðsúthellingalaust eins og hann
er vanur“, létu þeir klingja allan
daginn. Og blessuðu fólkinu hefur
létt fyrir hjarta. Það er lifandi
fegið. Það vill ekki ófrið. Naz-
istablöðin eru full af kolvitlaus-
um fyrirsögnum. Tóm haugalýgi.
Nokkur dæmi: Tékkneskar bryn-
reiðir brytja niður konur og börn,
eða Blóðug ógnarstjórn — enn
myrða Tékkar Þjóðverja. „Börsen
Zeitung” hefur metið: Eiturgas-
árás á Aussig? Hamburg Zeitung
tekst líka vel: Kúgun, rán, mann-
dráp — Tékkneska ógnarstjórnin
í héruðum Súdetaþjóðverja verður
grimmari með degi hverjum.
Ekki heyrðist orð frá Prag í
kvöld um það, hvort Tékkar munu
vilja hlíta úrslitakostum Cham-
berlains. Ég þrávona enn, að þeir
berjist. Því að geri þeir það, hlýt-
ur það að valda Evrópustyrjöld
og hana getur Hitler ekki unnið.
Lauk útvarpsþætti mínum í kvöld
á þessum orðum: „Mr. Chamber-
lain mun vissulega fá hlýjar mót-
tökur í Godesberg. Satt að segja
varð ég þéss greinilega var í
Berlín í dag, að Mr. Chamiberlain
er maður mjög vinsæll hér“.
Gadesberg, 22. september 1938
Hakakrossfáninn og brezki
samveldisfáninn blakta hlið við
hlið yfir þessari yndislegu Rínar-
borg — og á það einstaklega vel
við, finnst mér. Og þá sómir það
ekki síður, finnst mér, að halda
þennan vinafund í Wagnersbæ,
því að þeir segja, að hér hafi Cð-
inn, Þór og aðrir guðir hinna
fornu Tevtóna jafnan skemmt
sér.
•44
HEIMILISRITIÐ