Heimilisritið - 01.11.1944, Page 57

Heimilisritið - 01.11.1944, Page 57
til Skotlands áður, var gagntek- in af öllu sem fyrir augu bar. Þau komust á ákvörðunarstað- inn þegar yfirborð stöðuvatnanna blikaði eins og gull í bjarma hnígandi sólar, og fjöllin gnæfðu í fegursta litskrúði upp í blámóðu himinhvelfingarinnar. Konungshótelið í Belbrae var lítið en hlýlegt og vinalegt. Mart- in hafði dvalið þar áður í veiði- ferð með kunningjum sínumi, og þegar hann ók upp að framdyr- unum, flýtti hinn holdugi veitinga- maður sér til þeirra. „Martin Foster, mikið er gam- an að sjá þig aftur!“ „Sæll og bless, Mack, gamli skarfur!“ hrópaði Martin. Svo sneri hann sér að önnu og bætti við: „Við Mack erum gamlir vin- ir. Mack þetta er konan mín“. Farangur þeirra var borinn inn í litlu notalegu forstofuna, þar sem gríðarstór St. Bemhards- hundur hafði legið fram á lappir sínar við arineldinn, en kom nú fagnandi á móti þeim. Brátt var þeim vísað upp í stórt herbergi. Þaðan var stórfengleg útsjón yfir vatnið og skógiklæddar fjallshlíð- amar. Veitingamaðurinn rétti Martin símskeyti. Það var glampi í aug- umi hans. „Eg geri ekki ráð fyrir að þú hafir sjálfur sent þetta sím- skeyti“, sagði hann og hló lágt. Martin hristi höfuðið. „Nei, hver í fjáranum hefur getið sér þess til að við ætluðum hingað?“ sagði hann hátt. „Við héldum því leyndu, svo engan hefði átt að gruna ferðaáætlun okkar“. Anna leit á skeytið og sá að þar var beðið um morgunverð, er skyldi færður þeim í rúmið á hverjum morgni. Undir því stóð — „Foster“. „Það hlýtur einhver að hafa verið að gera að gamni sínu, Foster“, sagði Mack glaðlega. Anna hló. „Við ætlum alls ekki að borða morgunmatinn í rúm- inu, er það?“ Martin hristi höfuðið hlægjandi. Þau gengu niður í borðsalinn og gleymdu þessu atviki. Næstu daga á eftir var Anna í sjöunda himni. Hún og Martin gengu umi hæðimar í kring, flat- möguðu í heitu sólskininu í nám- unda við litla gistihúsið, eða réru út á glitrandi vatnið og veiddu silung. Eitt sinn skömmu fyrir kvöld- verð voru þau úti á vatni. Anna sat undir árum en Martin veiddi. Dimmir þokubólstrar geistust yf- ir fjallsbrúnirnar, en Martin áleit að ekki myndi fara að rigna fyrr en síðar um kvöldið. Þeim hvarf brátt úr hug yfir- vofandi óveður. Það var mikið af fiski og þau höfðu allan hugann við veiðina. Þegar stórir regndropar fóru að detta úr lofti leit Martin snögglega upp. „Eg held að það sé bezt að ég taki við árunum“, sagði hann. „Rigningin er víst að skella á“. HEIMILISRITIÐ 55

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.