Heimilisritið - 01.03.1945, Blaðsíða 16

Heimilisritið - 01.03.1945, Blaðsíða 16
Bernhard Shaw greinum Nobelsættarinnar og fulltrúar frá stofnunum þeim, er áttu að útbýta verðlaununum. Árið 1900 var störfum þessarar nefndar lokið, og var reglugerðin borin undir sænsku stjórnina og fékk að lokum staðfestingu kon- ungs 29. júní sama ár. Um þessar mur.cir var búið að gera upp dánarbúið. Allir skatt- ar og ýms önnur gjöld voru greidd. Miklar fjárhæðir höfðu runnið til lögfræðinga víðs vegar í Evrópu fyrir aðotoð þeirra við forráðamenn dánarbúsins. Erf- ingjarnir höfðu fengið drjúgan skilding fram yfir það, sem erfða- skráin ákvað, en engar upplýs- ingar hafa verið gefnar um þá upphæð. Afgangurinn, 31,225,000 krónur, rann til Nobelsstofnunar- innar. Ársvextir af þessari fjár- upphæð voru 850,000 krónur. Nobelstofnanirnar voru eigin- lega tvær, önnur 1 Noregi og hin í Svíþjóð. Norska stofnunin starf- aði í einni deild, þar eð hún skyldi einungis útbýta friðar- verðlaununum. Sænska Nobels- stofnunin starfaði í þremur deildum, og hafði ein þeirra með höndum útbýtingu bókmennta- verðlaunanna, önnur verðlaun- anna í læknisfræði eða lífeðlis- fræði og hin þriðja verðlaunanna í eðlisfræði og efnafræði. Allt starf hinna einstöku Nobels- nefnda og stjóm stofnananna var kostuð af Nobelssjóðnum. Þótt Nobelsstofnunin væri kom- in á laggimar og ekkert virtist vera því til fyrirstöðu að farið yrði að veita ve-’ðlaimin, drógst það samt enn um hríð, en 10. des. 1901 vom þau veitt í fyrsta skipti. Reglugjörðin mælti svo fyrir að á þeim degi, er var dán- ardagur stofnandans og hátíðis- dagur stofnunarinnar, skyldi út- býta verðlaununum. Hefur sú athöfn jafnan síðan farið frara með mikilli viðhöfn í viðurvist konungs, ríkisstjórnar, erlendra sendiherra og fremstu vísinda- manna Svía. Það kom þegar í Ijós við fyrstu veitingu að lítið tillit var tekið til vilja gefandans um val þeirra manna, er verðlaunin hlutu. Hann ætlaðist til þess að ungir gáfu- menn, er væm að berjast áfram við lítil efni fengju þau fremur 14 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.