Heimilisritið - 01.03.1945, Blaðsíða 39
gaman að ferðalögum og munt
sennilega feröast talsvert, enda
er ekki ólíklegt að þú finnir þinn
betri helming í einu af þessum
ferðalögum.
1 ástamálum er samt betra
fyrir þig að fara gætilega og
flana ekki að hlutunum. Það er
ekki allt guil sem glóir og það
er ekki heldur ölium gefin hin
einlæga og hlýja lund þín.
Hjónaband þitt vcrður hamingju-
samt, en þó ekki án nokkurra erf-
ioleika, og gera má ráð fyrir
orðasennum við og við. Það er
nauðsynlegt fyrir þig að leggja
á þig nokkurt erfiði til að reyna
að skilja málstað hjúskaparfé-
laga þíns í þessum deilum.
Þú ættir að giftast persónu
sem fædd er undir merki krabb-
ans. Föstudagur er þér til heilla
og einnig talan 2. Rauðir litir
eru litir hamit.gj u þinnar.
30. marz — 10. apríl.
Mars og solin valda áhrifum
á skaplyndi þitt. Hefur marz þó
nokkru meiri áhrif. Þig muu aldr-
ei skorta hugrekki og táp þegar
þú mætir erfiðleiknm, og venju-
lega munt þú bera sigur af
hólmi, ef þú lærir að stjórna
skapi þínu og hefur svolitla þol-
inmæði.
Þér mun geðja3t bezt að þeirri
stöðu, sem veitir þér tækifæri til
að stjórna öðrum og þú munt
vissulega vinna þér álit sem
duglegur stjórnandi. Samt verður
þú að vera gætinn, þegar þú tek-
ur ákvarðanir. Mundu þennan
gamla en sígilda málshátt: „I
upphafi skal endirinn skoða“.
Vegna ákafans í skapi þínu, gæt-
ir þú ekki að öllum aðstæðum,
áður en þú hefst hanaa, og þetta
veldur þér oft mikilla erfiðleika
og getur oft haft alvarlegar af-
Jeiðingar í för með sér. Þess
vegna skaltu alltaf gæta ýtrustu.
varkámi í fjármálastarfi þínu.
Eins og sigrar þínir munu verða
glæsilegir eins verða ósigrar þín-
ir óglæsilegir.
Hvað viðvíkur hinu andstæða
kyni þá verður þú að varast að
sýna því of mikla frekju, og þar
sem tilfinningar þínar eru heitar
og ástríðufullar, þá átt þú alltaf
á hættu að eyðileggja hamingju
þína vegna ástæðulausrar af-
brýðisemi eða vegna hinnar miklu
yfirgangsemi þinnar.
Þú ættir að giftast persónu,
sem fædd er undir merki vatns-
berans eða ljónsins.
Hamingjulitir þínir eru gulir
litir. Þriðjudagur færir þér gæfu
og gengi og venjulegast máttu
vænta þér góðs af tölunni S.
11. — 20. apríl.
Hér eru það Marz, Venus og
Júpíter, sem sitja að völdum og
eru áhvif þeirra í þessu sam-
bandi einkum þessi:
Framtíð þín, sem fædd(ur) ert
á þessu tímabili, er óvenjulega
björt. Gleði, gengi og sönn ham-
ingja mun falla þér í skaut, ef
þú hlýðir eðlishvöt þmni og læt-
HEIMILISRITIÐ
37