Heimilisritið - 01.03.1945, Side 51

Heimilisritið - 01.03.1945, Side 51
meira. Þegar við vorum að fara út úr hermálaráðuneytinu, kom einhver starfsmaður og færði okkur Reuterskeyti, sem til- kynnti, að Browning væri kom- inn til Bahia í Brasilíu með alla áhöfn af Royal Sceptre lieila á húfi. Hvert happið elti annað. Þeg- ar við vorum komnir vel af stað með útvarpið liðkaðist foringinn svo í enskunni eins og spáð var, að ég furðaði mig á. Málblærinn var skelfilegur, en einhvem veg- inn streymdu orðin skýrt út úr honum. Hvert atkvæði var auð- skilið. (Síðar staðfesti brezka flota- málaráðuneytið sögusögn hans, bæði um skeytið og Royal Sceptre, og þá um leið að Schultze hefði ekki verið tekinn.) Berlín, 29. sept. 1939. Rússar eru nú teknir að styðja friðarsókn Þjóðverja. Ribbentrop og Molotov undir- rituðu í gær samning og áforms- yfirlýsingu. Texti hennar segir söguna alla: „Þar sem stjórnir Þýzkalands og Sovétríkjanna hafa með samningi, undirrituðum í dag, endanlega leyst vandamál, er risu út af upplausn pólska ríkisins, og með því lagt varanlega undir- stöðu að friði í Austur-Evrópu, lýsa þær sameiginlega yfir Jpeirri skoðun sinni, að það væri öllum þjóðum til velfamaðar og endir yrði bundinn á styrjöldina. Ef tilraunir beggja ríkisstjórn- anna skyldu samt sem áður reynast árangurslausar, er með því sönnuð sú staðreynd, að Bretland og Frakkland eru á- byrg á framhaldi styrjaldarinn- ar, og ef svo fer, munu stjómir Rússlands og Þý^alands bera ráð sín saman um nauðsynlegar ráðstafanir". Þetta er broslegt, en getur þýtt það, að Rússar dragist inn í styrjöldina með Þjóðverjum. Berlín, 30. sept. 1939. Friðarhjalið yfirgnæfir hér allt í dag. Þjóðverjar eru fullvissir um frið, og starfsmáður í rúss- neska sendiráðinu sagði mér, að sama hljóðið væri í Moskvu. Hann sagði að nú myndi Bretar og Frakkar taka friðinum fegins hendi. Völkische Beobachter segir í dag: Öll Evrópa bíður friðarorðsins frá Lordon. Vei þeim, sem hafna fiiði. Þeir munu einhvern tíma verða grýttir af sinni eigin þjóð“. Kom á kveðjuútvarpi í kvöld. Berlín, 2. okt. 1939. Ræða Churchills í útvarpinu í gærkvöldi lægði heldur friðar- ákafann hér. Eg er fullur af skelfingu yfir þessum eina raksápustaut, sem mér er skamtaður fyrir fjóra mánuði. Skeggið á mér verður rautt. A. rakst hér inn á laugardag- inn (30. sept.) og í för með hon- HEIMILISRITIÐ 49

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.