Heimilisritið - 01.03.1945, Síða 52
um var amerísk stúlka, sem
hann hafði hitt í Varsjá. Þau
höfðu flækst um víðáttur Aust-
ur-Póllands í þrjár vikur, milli
pólsku og þýzku herjanna. Hann
sagði, að þau hefðu dregið fram
lífið á brauðskorpum og ráfað
úr einu þorpi í annað.
1 flestum þorpunum höfðu ráð
verið sett á stofn. A. geðjaðist
aldrei að Pólverjum, en féll all-
vel við nazistana, en hann segir
þó, að þorp í Austur-Póllandi,
fjarri mannavegum, jámbrautum
og þjóðbrautum, þorp, sem enga
hernaðarþýðingu höfðu af neinu
tagi, hafi verið gjöreydd eftir
þýzkar loffárásir, alveg að á-
stæðulausu að því er hann gat
séð. Hann segir, að þýzkar flug-
vélar renni sér oft yfir einmana
bændakonur á afskekktum ökr-
um og hendi á þær sprengjum
eða sendi þem gusu af vélbyssu-
kúlum. Hann sá líkin. A. og vin-
kona hans komust loks til þýzka
hersins, óku nokkra daga í opn-
um flutningabílum með þýzkum
landflóttamönnum og komust svo
loks til Þýzkalands.
Whitley er kominn frá Pól-
landi. Hann segist hafa flogið
yfir Varsjá á laugardaginn og
borgin hafi staðið í báli. Þær fáu
byggingar í miðborginni, sem
ekki brunnu, voru þegar i rúst-
um. Hann hyggur, að þúsundir
óbreyttra borgara hafi farist.
Þrjá daga var hann með rauða
hemum og fannst ekki mikið
til um hana.
Berlín, 5. okt. 1939
Sovétríkin fengu ómótmælan-
lega nærri því hálft Pólland or-
ustulaust og einnig steinbítstak á
;baltnesku ríkjunum og standa
nú á milli Þýzkalands og tveggja
markmiða þess í austri, rúm-
ensku olíulindanna og hveitakra
Ukraníu. Hitler hefur flutt í
flýti alla Þjóðverja burt úr
baltnesku ríkjunum, þar sem
ættir flestra þeirra hafa verið
búsettar öldum saman. Eistland
hefur gefið sig á vald og miskun
Rússa og leyft þeim að byggja
flugvelli og flotahafnir 1 landinu.
Utanríkisráðherrar Lettlands og
Litháen em á þönum milli höf-
uðborga sinna og Moskvu, til þess
að reyna að bjarga því, sem auð-
ið er. Og þegar Rússar hafa náð
tangarhaldi á þessum baltnesku
ríkjum, hve skjótt munu þau þá
taka trú kommúnista? Bráðlega,
mjög bráðlega.
Berlín, 6. okt. 1939.
Hitler flutti hinar margboðuðu
„friðartillögur“ sínar í ræðu í
Ríkisþinginu í dag um hádegið.
Eg var við þessa sýnisathöfn eina
ferðina enn. Hann lagði fram
„friðartillögurnar“, og þær voru
um það bil nákvæmlega eins og
aðrar, sem ég hef heyrt hann
flytja úr sömu pontunni eftir
hvert hernám sitt, síðan hann
ruddist inn í Rínarlöndin 1936.
Hitler bauð frið í Vestur-
Evrópu ef Bretar og Frakkar
láta Þjóðverjum eftir „lífsrými“
50
HEIMILISRITIÐ