Heimilisritið - 01.07.1945, Blaðsíða 16
að byggja höfn, en það verður
svo kostnaðarsamt, að svartsýn-
ar sálir segja, að það muni verða
betra og ódýrara að flytja alla
íbúana inn til meginlandsins.
Það er ekki annað en heimska,
sem enginn eyjarskeggi myndi
heldur fallast á. Menn, sem
þekkja strandbyggðirnar betur
en ég, fullyrða, að hvergi í Nor-
egi sé fólk tryggara átthögum
sínum, en einmitt hér. Enginn
máttur reynist þess megnugur,
að þoka fólkinu af staðnum,
sem það hefur valið sér fyrir
bólfestu.
Grip eyjaklasinn liggur úti í
hafi, 9 mílufjórðunga norðvest-
ur af Kristiansund. Á stóru
korti lítur þessi landshluti út lík-
ast eins og hnefafylli af stein-
völum hefði verið kastað í hafið,
skipaferðum til hindrunar og að
öðru leýti tilgangslaust. Þegar
maður nálgast Grip, er staðurinn
til að sjá eins og lítill, gráleitur
bær, sem væri byggður á fleka
úti 1 hafinu. Umhverfis eru fá-
ein brimsollin sker, og á einu
þeirra — drjúgan spöl norður
frá byggða hólmanum — stend-
ur vitinn, sem setur mestan svip
.á umhverfið.
EFTIR því, sem skýrslur hag-
fræðinnar segja, er Griphéraðið
82 hólmar. í raun og veru gæti
þó leikið vafi á, að það sé alls-
14
kostar rétt að kalla þessar 82
smáagnir af Noregi land. í ó-
kyrrum sjó skolar yfir flesta
hólmana. Samtals eru þeir 0,48
ferkm. Og þar sem 1 Grip eru
270 íbúar, er þetta hérað þétt-
býlast allra í Noregi, samsvarar
nefnilega 562 manns á ferkm.
Hér eru meðtalin öll sker og
smáeyjar, sem vitanlega heyra
til sveitarfélaginu, en eru með
öllu óbyggileg.
Hér er því aðeins um að ræða
eina byggilega eyju, er heitir
Grip, og með því nafni er venju-
lega átt við hana eina. Stærð
hennar er 0,04 ferkm. Allt ein-
tóm grá og gróðurlaus klöpp, að
undanteknum smágörðum —
sem vekja eftirtekt á þessum
stað — undir nokkrum húsveggj-
um, þar sem jarðvegi hefur ver-
ið safnað saman með erfiðismun-
um.
Á þessum örlitla hólma búa
270 sálir, þéttar en víðast ann-
arsstaðar í Noregi. Á Grip er til-
gangslaust að gera áætlanir um
nýbyggðir út um allt, þar er
eru byggð og íbúafjölda skýr
takmörk sett. Að vísu hafa eyjar-
skeggjar verið allt að 600 áður
fyrr, en í þá daga voru gerðar
aðrar kröfur til híbýla og heilsu-
samlegs aðbúnaðar, en nú á tím-
um. Hinar 270 sálir hafa fært
sig sem næst miðju eyjarinnar,.
og þó kemur það fyrir, að út-
HEIMILISRITII>