Heimilisritið - 01.07.1945, Blaðsíða 22
Eg geng víða um með kaup-
manninum og fræðist um margt
af honum. í sjóbúðinni hans er
unnið að fiskverkun, sem menn
vænta að gefi nokkuð af sér -í
aðra hönd. Flökin eru þar und-
irbúin til reykingar. Aflinn var
mjög lítill síðustu vertíð, en
selst vel, það sem á land kemur.
Reykt fiskflök þykja sælgæti í
bæjunum og eru því eftirsótt.
En uppáhaldsmatfiskur Grip-
verja sjálfra er helzt ýsa, sem
þeir vilja sjóða þannig, að hún
verði sem þéttust í sér.
í sjóbúðinni vinnur margt
kvenfólk að fiskverkuninni. Það
er gaman að sjá af hve mikilli
leikni það beitir grófgerðum
verkfærunum. Annars er hér
stunduð fiskvinna, sem sérstak-
legg er kvennaverk. Það er að
verka sundmaga. Á einum stað
í veröldinni er markaður fyrir
saltaða og reykta sundmaga,
nefnilega í Havana, þár sem þeir
þykja hið mesta sælgæti. En það
er mikil vinna við að gera þá
söluhæfa. Það verður að salta þá
fimm sinnum, þurrka og skafa
— það er í rauninni heimilisiðn-
aður, sem gefur talsvert í aðra
hönd. Kg. selst á 10 krónur.
ÉG rekst á einn af hafnsögu-
mönnunum, en þeir eru margir
hér. Það er þægilegur karl, ó-
svikinn sjóari. Hann hefur helzt
til lítið að gera sem stendur —
en fyrir stríðið, það var nú dá-
lítið annað! Hann hvíslaði að
mér, hve mikið hann sigldi inn
síðasta, óviðjafnanlega árið, en
ég segi ekki nánar frá því.
Ég reyni að fá hann til að
segja mér eitthvað úr sjómanna-
lífinu. Hér hafa án efa gerzt
mikilfenglegir atburðir á liðn-
um árum, björgun úr sjávar-
háska, bátar molast sundur úti
á grunninu. — Ojá, vera kann
það, segir hann, og meira fæst
hann ekki til að segja. Það er
of hversdagslegt, og því leiðin-
legt umræðuefni. — — En þú
getur ef til vill talað við hann
Oluf Stokke. Hann er sem stend-
ur niðri við sjóbúðina með skút-
una sína. Hann dró vænan drátt
hér á dögunum, þegar hann
bjargaði „Höegh Carier“.------
Ég minnist undir eins sögunn-
ar um „Höegh Carier“. 'Sannar-
lega glæsilegt sjómannsafrek.
„Höegh Carier“ var stórt flutn-
ingaskip, fermt korni, á leið inn
með Grip. Ofsarok var á er vélin
bilaði. Skipið fór að reka í átt-
ina til Gjeslingene, sem eru
blindsker ekki langt frá Grip.
Oluf Stokke sigldi skútunni
sinni, sem heitir „Plöy“ upp að
eimskipinu og kom kaðli um
borð. Svo fór hann að draga haf-
skipið á þesari litlu skútu. Hon-
um heppnaðist að draga það ná-
20
HEIMILISRITIÐ