Heimilisritið - 01.07.1945, Blaðsíða 41

Heimilisritið - 01.07.1945, Blaðsíða 41
„Mér þykir þetta mjög leiðin- legt“. Hann sné.ri sér að manninum ■og hélt áfram: „Ég er tilbúinn“. Þau gengu öll saman niður stigann. Er út á götuna kom, kvaddi hann Christie. „Vertu sæll“, svaraði l hún mjög hnuggin. Að svo mæltu fór hún inn í bílinn og ók af stað. Alec sneri sér að manninum og sagði: „Yður tókst velaðleika hlutverkið, sem yður var falið. Hvað á ég að borga?“ „Tíu dollara“. „Hér eru fimmtán. Sælir“. Næstu nótt dreymdi Alec Christie. Þegar hann vaknaði fór hún ekki úr huga hans. — Hann gekk út og kom ekki heim fyrr en síðari hluta dagsins. Þá var honum sagt, að John Lou- don hefði hringt til hans og bæði hann að hringja til sín þeg- ar hann kæmi heim. Alec bað um samtal við hr. Loudon og spurði: „Hvað er að? Ég áleit að allt væri komið í kring“. „Verið ekki reiður, Alec, þér hafið staðið yður vel. Og þessi stefna var ágætt uppátæki. En ég skil kvenfólkið ekki. Ástin er blind, eins og máltækið seg- ir. Christie kom heim og sagði hvað gerst hefði. En hún ásakar yður ekki, heldur konuna“. Alec svaraði: „Ég vil helzt ekki tala meira um þetta“. „Ég þakka yður fyrir, hve vel þér hafið komið fram í þessu máli“, sagði John. „Ætti ég ekki að útvega yður stöðu?“ „Nei, þakka yður fyrir, ég kemst af án yðar hjálpar. Ég hef í dag selt það, sem ég má missa, og fest kaup á ljósmynda- fyrirtæki. Á morgun byrja ég starf mitt þar“. „Jæja“, sagði Loudon. „Halló“, kallaði Alec. Ég ætla að staðfesta ráð mitt. Eftir ár spyr ég ef til vill Cristie, hvort hún elski mig“. „Eftir ár?“ Loudon hló. „Nei, góði maður. Ég hugsa að hún vilji sjá yður strax“. Loudon sagði við Cristie þeg- ar samtalinu var lokið: Ég býst við að Alec verði kominn hing- að eftir kortér“. Cristie faðmaði föður sinn að sér og sagði: „Okkur hefur tekist að breyta Alec. Hann hefur rifið sig upp úr aðgerðaleysinu og ákveðið að verða nýr maður. Hugmynd okkar var ágæt“. „Já“j svaraði faðir hennar. — „Ég veit, að þessi tími hefur reynt á þig. En þú verður bara að gæta þess, að segja Alec aldr- ei frá þessu. — Nú er hann að koma“. ENDIR HEIMILISRITIÐ 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.