Heimilisritið - 01.07.1945, Qupperneq 25

Heimilisritið - 01.07.1945, Qupperneq 25
ástæðu til að ætla, og ég beið þarna og sat um færi til að kom- ast heim með amerísku skipi, sem tæki mig með, án þess að seilast allt of djúpt ofan í buddu mína, sem var heldur óbeisin. Meðan ég beið, dvaldi ég á kaffi- húsi Chicago-Toms. Þarvarsvalt, eftir því sem verið getur 1 Buenaventura. Þ^r er gott vín á borðum og matur að hætti sið- aðra manna. í stuttu máli, þarna vottar fyrir menningu nútímans, þótt við miðjarðarlínuna sé og hitinn nær óþolandi hvítum mönnum. Einn daginn hitti ég þar John Bedford, sem er skrif- ari hjá ameríska konsúlnum, lipur náungi. „Halló, Jessie“, sagði hann um leið og hann sá mig. „Viltu fá atvinnu?“ „Er nokkuð upp úr henni að hafa?“ spurði ég. „Komdu og fáðu þér staup“, sagði Bedford, „þú getur að minnsta kosti aflað þér farareyr- is heim, ef þú vilt endilega fara héðan, og dálítið að auki. Það er viðkomandi lækni nokkrum, Ny- manns heitir hann, sem hefur í hyggju að ferðast dálítið um frumskóginn, og vill endilega fá einhvern til að taka að sér að stjórna leiðangrinum". „Hvert er erindi hans þang- að?“ spurði ég. „Spurðu hann sjálfan", svar- aði Bedford. „Eg held að það sé eitthvað vísindalegt. En hann þarf að fá barnfóstru, sem skil- ar honum heilum á húfi heim til konu sinnar“. „Verður hún með í leiðangrin- um?“ spurði ég. „Nei, hún bíður hans hérna“, svaraði Bedford. „Það er kven- maður sem segir sex, skal ég segja þér. Maður trúir ekki sín- um eigin augum, þegar maður sér hana. Nú, en ef þú vilt taka þetta að þér, þá farðu inn á Hótel Americano og talaðu við hann. Eg hef lofað að láta hann vita, ef ég fyndi einhvern, sem gæti tekið að sér að sjá um leið- angurinn fyrir hann“. Eg tæmdi staupið og hugsaði mig um. Jú, hvers vegna ekki? Fara dálitla skemmtiferð inn í landið, og fá heimferðina borg- aða. Það voru sannarlega ekki sem verstir skilmálar. „Eg held að ég verði að hitta þennan náunga“, sagði ég. MÉR var vísað upp í hótelher- bergi Nymanns læknis. Hann var hávaxinn, lotinn í herðum, og hætti til að týna gleraugunum sínum. Að öðru leyti minnti hann helzt á stóran dreng og ( mér féll hann vel í geð. Eg skýrði fyrir honum svo hæversk- lega sem ég gat, að ég væri ein- mitt sá, sem hann þyrfti á að HEIMILISRITIÐ 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.