Heimilisritið - 01.07.1945, Qupperneq 42
--------------------------------1
Spurningar og svör {
.......................... mmJ
GRÆNMETI CXi BÆTIEFNI.
Sp. Eg hef komið mér upp dálitlum
grænmetisgarði handa fjölskyldunni. Nú
er mér ekki grunlaust um að næringar-
efni grænmetis sé meira eða minna
skemmt við matreiðsluna. Þú gætir nú
ekki gefið mér nokkur heilræði í þess-
um efnum. S. J.
Sv.: Matreiddu grænmetið nýtt upp úr
garðinum. Taktu ekki hýðið utan af garð-
ávextinum og sjóddu hann í heilu lagi,
ef unnt er. — Legðu hann aldrei í bleyti.
Málmsölt og einnig B og C vítamín eyð-
ast í vatni. Láttugrænmetið ofan í sjóð-
andi vatn, þegar þú ætlar að elda það,
og hafðu vatnið eins lítið og hægt er að
komast af með — venjulega er hægt að
komast af með 2—3 sm. djúpt vatn í
pottinum. Láttu sjóða vel, en ekki lengi.
Hafðu lokið þétt ofan á pottinum og
taktu það ekki af nema þú megir til.
Notaðu soðið í súpur eða framreiddu
grænmetið í því. — Forðastu að láta
natrón saman við grænmeti, því það
skemmir lit, bragð og bætiefni. Borða
skal grænmetið strax og það hefur verið
soðið (ef það er ekki borðað hrátt). Sé
það geymt soðið — eða hrátt — missir
það bætiefnin. Matreiðið hæfilega mikið
í einu, því að upphitaðar grænmetisleif-
ar hafa lítið næringargildj.
ER HANN SKYLDUR MÉR?
Mér þótti góð greinin í síðasta Heim-
ilisriti, sem var eftir C. R. Adams. En
ég vona að þú móðgist ekki þó að ég
spyrji hvort hann sé nokkuð skyldur þér.
er viss um, að marga fleiri langar til
að vita svar við þeirri spurningu.
Ég bíð alltaf með óþolinmæði eftir út-
komu ,,ritsins“ og les það með mikilli
ánægju, ekki sízt dálkana þína.
Hvernig líst þér á skriftina?
Þrítug húsmóðir.
Dr. Clifford R. Adams er yfirmaður
..Marriage Counseling Service, Pennsyl-
vaniaí State College, School of Educa-
tion", og skrifar mánaðarlega nokkrar
smágreinar í ameríska tímaritið ,,Com-
panion". Onnur deili veit ég ekki á
honum, en auðvitað getur hann verið eitt-
hvað^skyldur mér fyrir því.
Skriftin gæti verið betri. Þú hefur auð-
sjáanlega fengist töluvert við skriftir og
skrifar fremur skýrt, en hefur ekki hirt
um að vanda rithöndina. Mætti segja mér
að þú værir samt töfrandi kona, sem
maðurinn þinn gæti verið ánægður með.
SÓLSKIN OG HRUKKUR.
Sp.: Er það rétt, sem ég hef heyrt
haldið fram, að ef maður er mikið úti
í sólskini sé háett við að maður fái hrukk-
ur? Ef svo er, geturðu þá gefið nokkuð
ráð gegn því?
Ó. S.
Sv.: Já, Mörgum hættir við að fá
hrukkur, ef þeir eru mikið í sólskini.
Gættu þess að hafa sólgleraugu í sterku
sólskini. Þau fara vel við andlit með
rauðar varir!
SVÖR TIL VEGAVINNMANNS.
1. Víkingsprent. — 2. Nei, tæplega. —
3. Já, verið getur þið. — 4. Bókasafni Há-
skólans, Reykjavík. — 5. Hvert hefti, sem
út hefur komið, kostar 5 krónur. Janúar-
og febrúarheftin 1944 fást ekki sérstök,
þótt enn megi fá þau, ef allur árgangur-
inn er keyptur. Fleiri hefti munu vera á
þrotum. Annars gefur skrifstofa Víkings-
prents frekari upplýsingar.
40
HEIMILISRITIÐ